7.10.0 Yfirlit kennslustundar
7.10.0 Yfirlit kennslustundar
Í þessari kennslustund heldur þú áfram að vinna með annars stigs stæður og föll. Þú lærir að sýna með algebru að tvær ólíkar stæður geti skilgreint sama fall. Þú kannar hvernig ólík form annars stigs stæðna tengjast eiginleikum grafanna sem sýna stæðurnar. Þú sérð líka að sumar tölur í stæðunum tengjast skurðpunktum grafa við - og -ás þegar stæðurnar eru á staðalformi eða þáttuðu formi.
Að lokinni kennslustund getur þú:
- útskýrt hvað skurðpunktar á grafi annars stigs falls merkja í þeim aðstæðum sem fallið lýsir.
- útskýrt hvernig tölurnar í þáttuðu formi annars stigs stæðu tengjast skurðpunktum grafs hennar við ásana.
Hér eru verkefnin sem hjálpa þér að ná þessum markmiðum:
- 7.10.1: Gröf línulegra jafna
- 7.10.2: Form annars stigs stæðna og gröf þeirra
- 7.10.2: Sjálfspróf
- 7.10.2: Viðbótarefni
- 7.10.3: Skurðpunktar annars stigs stæðna við - og -ás
- 7.10.3: Sjálfspróf
- 7.10.3: Viðbótarefni
- 7.10.4: Að nota staðalform jöfnu til að finna skurðpunkta við - og -ás
Eftir það æfir þú þig og rifjar upp.
- 7.10.5: Æfingar
- 7.10.6: Samantekt kennslustundar