1.1.2 Umrita stikajöfnur ferils á formið y = f ( x ) .
1.1.3 Þekkja stikajöfnur einfaldra ferla, svo sem línu og hrings.
1.1.4 Þekkja stikajöfnur hjólferils.
Í þessum undirkafla skoðum við stikajöfnur og gröf þeirra. Í tvívíðu hnitakerfi nýtast stikajöfnur til að lýsa ferlum sem eru ekki endilega gröf falla. Stikinn er óháð breyta sem bæði x og y eru háð. Þegar stikinn vex rekja gildin á x og y feril í sléttu. Ef stikinn er til dæmis t (eins og oft er valið) getur t táknað tíma. Þá eru x og y skilgreind sem föll af tíma og getur lýst staðsetningu hlutar í sléttunni þegar hann hreyfist eftir boginni braut.
Stikajöfnur og gröf þeirra
Skoðum braut jarðar um sólina. Árið er um 365,25 dagar að lengd en hér miðum við við 365 daga. Þann 1. janúar ár hvert er jörðin nánast á sama stað miðað við sólina. Undantekningin er á hlaupárum, þegar tekið er tillit til þess í dagatalinu að hver umferð tekur úr degi lengur. Við köllum 1. janúar „dag 1“ ársins. Þá er dagur 31 til dæmis 31. janúar og dagur 59 er 28. febrúar og svo framvegis.
Líta má á númer dags innan árs sem breytu sem ákvarðar stöðu jarðar á braut hennar. Þegar jörðin gengur um sólina breytist staðsetning hennar miðað við sólina. Að einu heilu ári liðnu erum við aftur á upphafsstað og nýtt ár hefst. Samkvæmt lögmálum Keplers um hreyfingu reikistjarna er brautin sporöskjulaga og sólin í öðrum brennipunkti sporbaugsins. Við skoðum þetta nánar í undirkaflanum Keilusnið.
Mynd 1.2. Braut jarðar um sólina á einu ári.
Mynd 1.2 sýnir braut jarðar um sólina á einu ári. Punkturinn merktur er annar brennipunktur sporbaugsins; sólin er í hinum. Ef við leggjum hnitaása yfir grafið getum við tengt hvern punkt á sporbaugnum við raðað par (mynd 1.3). Hvert x-gildi á grafinu gefur þá x-hnit staðsetningarinnar sem fall af tíma og hvert y-gildi gefur y-hnitið á sama hátt. Hver punktur á grafinu samsvarar því staðsetningu jarðar á tilteknum tíma.
Mynd 1.3. Hnitaásar lagðir yfir braut jarðar.
Við getum ákvarðað föllin fyrir og og þannig stikað braut jarðar um sólina. Breytan nefnist óháður stiki og táknar hér tíma frá upphafi hvers árs.
Feril í -sléttunni má setja fram með stikajöfnum. Jöfnurnar sem skilgreina ferilinn nefnast stikajöfnur.
Athugið að í þessari skilgreiningu eru x og y notuð á tvo vegu. Í fyrra tilvikinu eru þau föll af óháðu breytunni t. Þegar t tekur gildi á bilinu I mynda föllin og mengi raðaðra para Þetta mengi raðaðra para myndar graf stikajafnanna. Í síðara tilvikinu eru x og y breytur sem tákna röðuðu pörin. Mikilvægt er að greina breyturnar x og y frá föllunum og
Dæmi 1.1
Að teikna stikaðan feril
Teiknið ferlana sem eftirfarandi stikajöfnur lýsa:
Lausn
Til að teikna þennan feril setjum við fyrst upp gildatöflu. Óháða breytan í föllunum og er t. Látum t vera í fyrsta dálki og og í öðrum og þriðja dálki töflunnar.
t
−3
−4
−2
−2
−3
0
−1
−2
2
0
−1
4
1
0
6
2
1
8
Í öðrum og þriðja dálki töflunnar eru hnit punktanna sem við teiknum. Punktarnir sjást á mynd 1.4. Örvarnar á grafinu sýna stefnu ferilsins, það er í hvaða átt punktur færist eftir honum þegar t breytist frá −3 til 2.
Mynd 1.4Graf ferilsins í sléttu sem stikajöfnurnar í a-lið lýsa.
Til að teikna þennan feril setjum við aftur upp gildatöflu.
t
−2
1
−3
−1
−2
−1
0
−3
1
1
−2
3
2
1
5
3
6
7
Í öðrum og þriðja dálki töflunnar eru hnit punktanna sem við teiknum (mynd 1.5). Fyrsti punkturinn á grafinu (sem samsvarar hefur hnitin og síðasti punkturinn (sem samsvarar hefur hnitin Þegar t breytist frá −2 til 3 færist punkturinn á ferlinum eftir fleygboga. Sú átt sem punkturinn færist í nefnist stefna og er sýnd á grafinu.
Mynd 1.5Graf ferilsins í sléttu sem stikajöfnurnar í b-lið lýsa.
Í þessu tilviki notum við margfeldi af fyrir t og búum til aðra gildatöflu:
t
t
0
4
0
−2
−2
0
−4
0
4
2
−2
−2
2
4
0
−4
0
Graf þessa ferils í sléttu sést á myndinni hér á eftir.
Mynd 1.6Graf ferilsins í sléttu sem stikajöfnurnar í c-lið lýsa.
Þetta er graf hrings með radíus 4 og miðju í upphafspunkti; stefnan er rangsælis. Upphafs- og endapunktur ferilsins hafa báðir hnitin
Stikanum eytt
Til að skilja betur graf ferils sem settur er fram með stikajöfnum er gagnlegt að umrita jöfnurnar tvær sem eina jöfnu sem tengir breyturnar x og y. Þá getum við notað það sem við vitum nú þegar um jöfnur ferla í sléttu til að bera kennsl á ferilinn. Jöfnurnar sem lýsa ferlinum í sléttu í dæmi 1.1, b-lið, eru til dæmis
Ef seinni jafnan er leyst með tilliti til t fæst
Þetta má setja inn í fyrri jöfnuna:
Þessi jafna lýsir x sem falli af y. Þessi skref eru dæmi um að eyða stikanum. Graf fallsins er fleygbogi sem opnast til hægri. Rifjum upp að ferillinn í sléttunni hófst í og endaði í Þessir endapunktar ráðast af skorðunni sem sett var á stikann t.
Dæmi 1.2
Stikanum eytt
Eyðið stikanum úr stikajöfnunum hér á eftir og lýsið grafinu sem fæst í hverju tilviki.
Lausn
Til að eyða stikanum getum við leyst aðra hvora jöfnuna með tilliti til t. Ef fyrri jafnan er til dæmis leyst með tilliti til t fæst
Þegar við hefjum báðar hliðar í annað veldi þarf að hafa í huga að Ef er sett inn í fæst
Þetta er jafna fleygboga sem opnast upp. Skilgreiningarmengið takmarkast þó af skorðunum á stikanum t. Þegar er og þegar er Graf ferilsins sést á myndinni hér á eftir.
Mynd 1.7Graf ferilsins í sléttu sem stikajöfnurnar í a-lið lýsa.
Stundum þarf dálitla útsjónarsemi til að eyða stikanum. Stikajöfnurnar í þessu dæmi eru
Ekki er ráðlegt að leysa aðra hvora jöfnuna beint með tilliti til t því sínus og kósínus eru ekki eintæk föll. Deilum þess í stað í fyrri jöfnuna með 4 og þá seinni með 3. Ef við sleppum jafnframt t í rithættinum fæst
Notum nú Pýþagórasarsamsemdina og skiptum og út fyrir jafngildar stæður með x og y. Þá fæst
Þetta er jafna sporbaugs með miðju í upphafspunkti. Langásinn er láréttur, langhálfásinn 4 og skammhálfásinn 3, eins og sést á myndinni hér á eftir.
Mynd 1.8Graf ferilsins í sléttu sem stikajöfnurnar í b-lið lýsa.
Þegar t vex frá til fer punktur á ferlinum einu sinni um sporbauginn rangsælis. Í upphafi undirkaflans kom fram að braut jarðar um sólina er einnig sporöskjulaga. Þetta er gott dæmi um hvernig stikaðir ferlar geta lýst fyrirbæri úr raunveruleikanum.
Hingað til höfum við eytt stikanum úr gefnum stikajöfnum sem lýsa ferli í sléttu. En hvað ef við viljum byrja á jöfnu ferils og finna tvær stikajöfnur sem lýsa honum? Það er vel hægt og raunar má stika sama feril á marga vegu. Þetta kallast stikun ferils.
Dæmi 1.3
Stikun ferils
Finnið tvö mismunandi pör stikajafna sem lýsa grafi fallsins
Lausn
Í fyrsta lagi er alltaf hægt að stika feril með því að skilgreina og skipta síðan x út fyrir t í jöfnunni fyrir Þá fæst stikunin
Þar sem engin skorða er á skilgreiningarmengi upprunalega grafsins er engin skorða á gildum t.
Við höfum frjálsar hendur við val á annarri stikun. Við getum til dæmis valið Það eina sem þarf að ganga úr skugga um er að engar skorður séu lagðar á x, það er að segja að myndmengi sé mengi allra rauntalna. Það á við um Þar sem getum við nú sett í stað x. Þá fæst
Því má rita aðra stikun ferilsins sem
Hjólferlar og aðrir stikaðir ferlar
Ímyndið ykkur hjólreiðatúr um sveitina. Dekkin snerta veginn og snúast með fyrirsjáanlegum hætti. Gerum nú ráð fyrir að mjög ákveðinn maur sé þreyttur eftir langan dag og vilji komast heim. Hann hangir því utan á dekkinu og fær ókeypis far. Ferillinn sem maurinn fylgir eftir beinum vegi kallast hjólferill (mynd 1.9). Hringur (eða reiðhjólshjól) með radíus a myndar hjólferil sem er gefinn með stikajöfnunum
Til að sjá hvers vegna þetta er rétt skulum við skoða feril miðju hjólsins. Miðjan hreyfist eftir x-ásnum í fastri hæð sem er jöfn radíus hjólsins. Ef radíusinn er a má gefa hnit miðjunnar með jöfnunum
fyrir hvert gildi á Skoðum næst maurinn, sem snýst um miðjuna eftir hringferli. Ef reiðhjólið hreyfist frá vinstri til hægri snúast hjólin réttsælis. Ein möguleg stikun hringhreyfingar maursins (miðað við miðju hjólsins) er
(Mínusmerkið snýr stefnu ferilsins við. Án þess þyrftum við að hugsa okkur að hjólið snerist rangsælis.) Þegar við leggjum jöfnurnar saman fást jöfnur hjólferilsins.
Mynd 1.9. Hjól sem rúllar eftir vegi án þess að skríða; punktur á jaðri hjólsins dregur upp hjólferil.
Gerum nú ráð fyrir að reiðhjólshjólið fari ekki eftir beinum vegi heldur rúlli eftir innra borði stærra hjóls, eins og á mynd 1.10. Á grafinu fer græni hringurinn rangsælis um bláa hringinn. Punktur á jaðri græna hringsins dregur upp rauða grafið, sem kallast innhjólferill.
Mynd 1.10. Graf innhjólferilsins sem stikajöfnurnar á myndinni lýsa.
Almennar stikajöfnur innhjólferils eru
Þessar jöfnur eru dálítið flóknari en útleiðsla þeirra er nokkuð svipuð útleiðslu jafna hjólferilsins. Hér gerum við ráð fyrir að radíus stærri hringsins sé a og radíus minni hringsins b. Þá fer miðja hjólsins eftir hring með radíus Þetta skýrir fyrri lið hvorrar jöfnu hér að framan. Lotulengd seinna hornafallsins í og er
Hlutfallið tengist fjölda odda á grafinu (oddar eru hornin eða hvössu endarnir á grafinu), eins og sýnt er á mynd 1.11. Þetta hlutfall getur gefið mjög áhugaverð gröf eftir því hvort það er ræð tala eða ekki. Mynd 1.10 samsvarar og Útkoman er innhjólferill með fjórum oddum. Mynd 1.11 sýnir fleiri möguleika. Síðustu tveir innhjólferlarnir hafa óræð gildi á Í þeim tilvikum hafa innhjólferlarnir óendanlega marga odda og snúa aldrei aftur á upphafspunktinn. Þegar stikinn fær að vaxa ótakmarkað liggur hver ferill þétt í hringbeltinu |a − 2b| ≤ √(x2 + y2) ≤ a. Það merkir að hann kemur eins nálægt sérhverjum punkti beltisins og óskað er, þótt hann fari ekki í gegnum alla punkta þess.
Mynd 1.11. Gröf ýmissa innhjólferla sem samsvara mismunandi gildum hlutfallsins
Æfingar í undirkafla 1.1
Teiknið ferlana í eftirfarandi dæmum með því að eyða stikanum t. Tilgreinið stefnu ferilsins.
1.
2.
3.
4.
Eyðið stikanum og teiknið gröfin í eftirfarandi dæmum.
5.
Notið tölvualgebrukerfi eða reiknivél til að teikna ferlana sem stikajöfnurnar í eftirfarandi dæmum lýsa.
6.
[T]
7.
[T]
8.
[T]
9.
[T]
Eyðið stikanum og teiknið ferlana í eftirfarandi dæmum. Tilgreinið allar aðfellur grafanna.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
Umritið stikajöfnur ferilsins sem jöfnu í rétthyrndum hnitum í eftirfarandi dæmum. Ekki þarf að teikna. Tilgreinið skilgreiningarmengi jöfnunnar sem fæst.
21.
22.
23.
24.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
33.
34.
35.
þar sem n er náttúrleg tala
36.
þar sem
37.
38.
Stikajöfnupörin í eftirfarandi dæmum lýsa línum, fleygbogum, hringum, sporbaugum eða breiðbogum. Nefnið þá grunngerð ferils sem hvert jöfnupar lýsir.
39.
40.
41.
42.
43.
44.
45.
46.
47.
48.
49.
Sýnið að stikajöfnurnar lýsa hring.
50.
Notið jöfnurnar í dæminu á undan til að finna stikajöfnur hrings með radíus 5 og miðju
Notið grafteiknitæki í eftirfarandi dæmum til að teikna ferilinn sem stikajöfnurnar lýsa og berið kennsl á ferilinn út frá jöfnu hans.
51.
[T]
52.
[T]
53.
[T]
54.
Flugvél flýgur lárétt með hraðanum 100 m/s yfir sléttu landi í 4000 metra hæð. Hún þarf að sleppa neyðarpakka þannig að hann lendi á marki á jörðu niðri. Ferill pakkans er gefinn með þar sem upphafspunkturinn er á jörðinni beint undir flugvélinni þegar pakkanum er sleppt. Hve mörgum metrum fyrir markið, mælt lárétt, þarf að sleppa pakkanum svo hann hitti markið?
55.
Ferill kúlu er gefinn með þar sem og Hvenær lendir kúlan á jörðinni? Hve langt frá byssunni lendir hún?
56.
[T] Notið tæknibúnað til að teikna ferilinn sem lýst er með
57.
[T] Notið tæknibúnað til að teikna
58.
Teiknið ferilinn sem nefnist útsveifarferill og lýsir braut punkts í fjarlægð c frá miðju hrings með radíus b þegar hringurinn rúllar án þess að skríða utan á hring með radíus a. Jöfnurnar eru
Látum
59.
[T] Notið tæknibúnað til að teikna kuðungsferilinn sem stikajöfnurnar lýsa á bilinu
60.
[T] Notið tæknibúnað til að teikna ferilinn sem lýst er með stikajöfnunum Hér verður að undanskilja t = 0. Ferillinn nefnist Agnesarhaddur.
61.
[T] Teiknið ferilinn sem lýst er með stikajöfnunum þar sem