Umræðuspurningar
Umræðuspurningar
Hvers vegna eru Bandaríkin leiðandi í frumkvöðlastarfsemi?
Hvaða sameiginlegu einkenni hafa löndin fimm sem eru leiðandi í frumkvöðlastarfi?
Ein ástæða þess að Roxanne Quimby stofnaði fyrirtæki var að skapa atvinnu í samfélagi sínu. Að hvaða leyti samræmist þessi hvöt þeirri skilgreiningu að frumkvöðull sé sá sem greinir vandamál og leysir það, og að hvaða leyti ekki?
Hver eru líkindin og hver er munurinn á frumkvöðlaverkefnum Wander Girls og Roxanne Quimby?
Hvers vegna er mikilvægt að þekkja eigin framtíðarsýn?
Hvers vegna ættum við að setja markmið samkvæmt SMART-aðferðinni?
Hvaða gildi hefur sundurleit hugsun þegar reynt er að leysa vandamál?
Hvernig myndir þú útskýra framtíðarsýn í frumkvöðlastarfi fyrir herbergisfélaga þínum í háskólanum sem lærir sagnfræði?
Hver er helsti munurinn á sundurleitri hugsun og hugstormun?
Nefndu fimm dæmi um umbyltandi tækni og atvinnugreinarnar sem þessi tækni hefur áhrif á.
Hugsaðu um framtíðina og eigin reynslu. Hvaða tækifæri sérðu fyrir umbyltandi tækni í einni eða tveimur atvinnugreinum sem þú þekkir?
Hver er munurinn á frumkvöðlahugsun og frumkvöðlaanda?
Lýstu því að hve miklu leyti þú býrð yfir frumkvöðlaanda.