Lykilhugtök
Lykilhugtök
- B Corp-vottað fyrirtæki
- fyrirtæki sem uppfyllir mjög strangar kröfur um samfélagslega og umhverfislega frammistöðu, gagnsæi gagnvart almenningi og ábyrgð, með það að markmiði að skapa jafnvægi milli hagnaðar og samfélagslegs tilgangs
- tilgangur fyrirtækis
- ástæðan fyrir því að frumkvöðull stofnar fyrirtækið og það sem ræður því hver nýtur ávinnings af því, hvort sem það er frumkvöðullinn, viðskiptavinir eða annar aðili
- rekstrarform fyrirtækis
- lagalegt skipulag fyrirtækis; einnig nefnt val á félagaformi
- C-félag
- hlutafélag þar sem hagnaður er skattlagður hjá félaginu og síðan aftur á skattframtölum eigenda ef félagið greiðir hluthöfum arð af tekjum sínum
- fjármagn
- fé sem aflað er til reksturs fyrirtækis
- hlutafélag
- flókið rekstrarform sem verður til þegar viðeigandi skjöl eru lögð fyrir stofnfylkið
- efnahagsleg tengsl
- óefnisleg tengsl við fylki sem byggjast á sölumagni eða fjölda viðskipta
- heildstæð áhættustýring fyrirtækis
- samþætt nálgun, þvert á svið fyrirtækisins, við að fylgjast með áhættu
- hópfjármögnun gegn eignarhlut
- fjármagnsöflun með sölu verðbréfa til almennings á netinu
- fjárhagsleg áhætta
- að hefja nýjan rekstur án nægs fjár til að halda starfseminni gangandi í lengri tíma
- fyrirtæki í hagnaðarskyni
- rekstrarform sem ætlað er að skapa hagnað sem úthlutað er til eigenda
- almennt sameignarfélag
- fyrirtæki sem verður til þegar tveir eða fleiri einstaklingar eða lögaðilar semja um að standa saman að rekstri í hagnaðarskyni
- vátrygging
- dreifing áhættu á stóran hóp fólks, það er vátryggingartaka
- samrekstrarfyrirtæki
- tímabundið samstarf tveggja fyrirtækja sem sameina krafta sína til gagnkvæms ávinnings, svo sem til að deila kostnaði og vinna að sameiginlegum markmiðum og þeim tekjum sem af þeim kunna að hljótast
- lagaleg áhætta
- áhætta sem stafar fyrst og fremst af samningsbroti, broti gegn reglum eða skaðaverki
- félag með takmarkaðri ábyrgð (LLC)
- blanda hlutafélags og sameignarfélags sem takmarkar ábyrgð eiganda
- sameignarfélag með takmarkaðri ábyrgð (LLP)
- rekstrarform fyrir fagfélög, svo sem lögmanns- eða reikningshaldsstofur, þar sem félagsmenn eru löggiltir sérfræðingar og bera takmarkaða ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum vegna samninga eða skaðaverka en fulla ábyrgð á eigin fagmistökum
- samlagsfélag (LP)
- rekstrarform með að minnsta kosti einum ábyrgðarfélagsmanni og einum eða fleiri samlagsmönnum
- félagasamtök án hagnaðarsjónarmiða (NFPO)
- rekstrarform sem vinnur yfirleitt að tilteknu samfélagslegu málefni eða gætir sameiginlegra hagsmuna og notar tekjuafgang sinn til að ná lokamarkmiði sínu
- sameignarfélag
- fyrirtæki sem tveir eða fleiri einstaklingar, það er félagsmenn, stofna og leggja hver um sig til fjármagn, búnað, færni eða önnur verðmæti
- hlutafélag í einkaeigu
- félag þar sem almenningur getur ekki átt hlutabréf, heldur er það í eigu fjölskyldu eða vina stofnandans eða lokaðs hóps fjárfesta
- hlutafélag í opinberri eigu
- hálfopinber lögaðili, það er hlutafélag sem stjórnvöld eiga eða styðja
- hlutafélag skráð á markað
- lögaðili þar sem almenningur getur átt hlutabréf
- S-félag
- gegnumstreymisaðili, einnig nefndur lítið hlutafélag, þar sem hluthafar telja hagnað fyrirtækisins fram sem eigin tekjur og greiða af honum tekjuskatt einstaklinga
- einstaklingsrekstur
- fyrirtæki í eigu og undir stjórn eins einstaklings, með litla formfestu og enga lögboðna skráningu eða tilkynningu hjá fylkinu