Lykilhugtök
Lykilhugtök
- hugstormun
- hugmyndasköpun án dóma eða andmæla með það að markmiði að skapa lausnir
- sköpunargáfa
- þróun frumlegra hugmynda
- hönnunarhugsun
- aðferð þar sem ákvarðanir um hönnun og þróun vöru taka mið af þörfum viðskiptavinarins; yfirleitt er fylgt ferli sem byggist á samkennd til að skilgreina flókin vandamál og skapa lausnir á þeim
- dreifingargjá
- mikilvægasti vendipunktur innleiðingar, sem kemur oft þegar fyrstu notendur hafa tekið uppfinninguna í notkun, áður en fyrri meirihlutinn tekur við og staðfestir hvort hún dreifist í raun
- umbyltandi nýsköpun
- ferli sem hefur veruleg áhrif á markað með því að gera vöru eða þjónustu ódýrari eða aðgengilegri, oft fyrir tilstilli smærri fyrirtækja í atvinnugrein
- samkennd
- hæfni fólks til að skynja líðan annarra; í samhengi sköpunar, nýsköpunar og uppfinninga er hún nauðsynleg í upphafi mannmiðaðs hönnunarferlis
- hugmyndavinna
- markvisst ferli þar sem fólk opnar hugann fyrir nýjum hugsunarleiðum sem greinast í margar áttir út frá tilteknu markmiði eða vandamáli
- stigvaxandi nýsköpun
- nýsköpun sem breytir vöru eða þjónustu sem þegar er til
- nýsköpun
- ný hugmynd, nýtt ferli eða ný vara, eða breyting á vöru eða ferli sem þegar er til
- uppfinning
- raunverulega nýstárleg vara, þjónusta eða ferli sem byggist á fyrri hugmyndum og vörum en felur í sér stórt stökk frá því sem áður þekktist
- ítrekuð þróun
- ferli þar sem uppfinningafólk og nýsköpunaraðilar eiga stöðug samskipti við hugsanlega viðskiptavini til að þróa vörur sínar og viðskiptavinahópa samtímis
- hliðræn hugsun
- frjáls og opin hugsun þar sem fólk hunsar markvisst rótgróin mynstur röklegrar hugsunar eða ögrar þeim jafnvel
- línuleg hugsun
- röklegt ferli sem er unnið skref fyrir skref
- lágmarksstarfhæf vara (MVP)
- fyrsta útgáfa eða frumgerð vöru sem er ef til vill hvorki fáguð né fullgerð en virkar nógu vel til að hægt sé að byrja að markaðssetja hana eða prófa hana með hugsanlegum notendum
- opin nýsköpun
- að leita lausna utan skipulagsheildarinnar og finna þær
- sársaukapunktur
- vandi sem fólk glímir við í tengslum við vöru eða þjónustu og ef til vill má leysa með breyttri útgáfu
- brautryðjandi nýsköpun
- nýsköpun sem byggist á nýrri tækni, framförum á viðkomandi sviði eða framförum á skyldu sviði sem leiða til þróunar nýrrar vöru
- vísindaleg aðferð
- aðferð sem oftast er tengd náttúruvísindum og lýsir ferlinu við að finna svar við spurningu eða lausn á vandamáli
- notandaviðmót
- það sem notandinn sér og hefur samskipti við