22 Samskipti í Austur-Asíu og á Indlandshafi
Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Á sextándu öld var mikið um landkönnun og þá hófust hnattræn sjóviðskipti. Þegar Evrópuþjóðir á borð við Spán, Portúgal, Niðurlönd, England og Frakkland voru rétt að hefja landkönnunarferðir og koma á sjóverslunarnetum, voru blómleg úthafsviðskipti þegar stunduð á Indlandshafi. Verðmæt hráefni og fagrir iðnmunir bárust frá strandhéruðum Indlands um Malakkasund til hafna í Suðaustur-Asíu, Kína og Japan og aftur til baka (Mynd 2.1). Með þeim bárust trúarskoðanir, heimspekihugmyndir, tækninýjungar og önnur menningaráhrif.

