4.15.1 Hver eru mynstrin?
4.15.1 • Hver eru mynstrin?
Upphitun
Skoðaðu talnamynstrin hér fyrir neðan.
- 40, 120, 360, 1.080, 3.240
- 2, 8, 32, 128, 512
- 1.000, 500, 250, 125, 62,5
- 256, 192, 144, 108, 81
1.[Sýna/fela lausn]
Berðu svarið þitt saman:
- Fyrstu tvær runurnar eru vaxandi og seinni tvær eru minnkandi.
- Næsta tala í hverjum lista fæst alltaf með því að margfalda töluna á undan með sama gildi.
- Ef við veljum tölu í listanum og deilum henni með tölunni á undan fáum við alltaf sama gildi.
2.Hvað veltir þú fyrir þér?
[Sýna/fela lausn]
Berðu svarið þitt saman:
- Af hverju byrja allar runurnar á sléttum tölum?
- Fær síðasta runan að lokum tugabrot eins og runan á undan, þar sem hún er líka minnkandi?
- Tengjast þessar runur á einhvern hátt?
- Er næsti liður í annarri rununni 1.024?