4Verkefni 4: Notkun falla til að líkja eftir rafhlöðuorku
Áætla hleðslutíma rafhlöðu
Áætla hleðslutíma rafhlöðu
Áætla hleðslutíma rafhlöðu
Verkefni
Í þessu verkefni skaltu hugsa um raftæki með rafhlöðu sem þú þarft að hlaða reglulega.
- Hvaða tæki er það?
- Þegar þú notar tækið, um það bil hversu langan tíma tekur það rafhlöðuna að fara úr 100% hleðslu þar til þú þarft að stinga tækinu aftur í samband til að hlaða það?
- Um það bil hversu langan tíma tekur að hlaða rafhlöðuna upp í 100% ef byrjað er í 0% eða næstum 0%?
- Um það bil hversu langan tíma tekur að hlaða tækið ef þú stingur því í samband þegar rafhlaðan er í 50% hleðslu?
- Hversu langan tíma heldurðu að það taki að hlaða tækið aftur upp í 100% úr 50% hleðslu, borið saman við tímann sem það tæki ef rafhlaðan væri í 0% hleðslu? Væri það nákvæmlega helmingur tímans, meira en helmingur eða minna en helmingur?