Að skilja flatarmálslíkan
Að skilja flatarmálslíkan
Opnaðu gagnvirku hermunina til að hefja verkefnið.
Í þessu verkefni skaltu staldra við og deila svörunum þínum með félaga hvenær sem þú sérð 💬. Ef þið eruð ekki sammála skulið þið reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Fylgdu þessum leiðbeiningum í spurningum 1-8.
Notaðu skjáinn Explore í hermuninni. Þú getur skipt á milli skjáa með tækjastikunni fyrir neðan flatarmálslíkanið.
- Útskýrðu hvað gerist utan á rétthyrningnum þegar þú færir rauðu og bláu rennistikurnar.
- Útskýrðu hvað gerist inni í rétthyrningnum þegar þú færir rauðu og bláu rennistikurnar.
- Lýstu hvað breytist og hvað breytist ekki þegar rauðu og bláu rennistikurnar eru færðar. 💬
- Margfaldaðu 10 × 15 með flatarmálslíkani. Finndu tvær mismunandi leiðir til að skipta rétthyrningnum 10 × 15 í hluta. Notaðu hermunina til hjálpar þegar þú fyllir út töfluna. 💬
Dæmi Merkt flatarmálslíkan með hlutmargfeldum Skráðu hlutmargfeldin og ritaðu þau sem summu Heildarflatarmál rétthyrnings 10 × 15 
10 × 15 
- Notaðu hermunina til að setja upp líkan af 6 × 18. Hvert er heildarflatarmál rétthyrningsins? Settu heildarflatarmálið fram á fleiri en einn hátt.

- Hvernig eru hlutmargfeldin (tölurnar inni í líkaninu) reiknuð í flatarmálslíkani?
- Á hvaða tvo ólíka vegu má reikna heildarflatarmálið í flatarmálslíkani?
- Hvernig tengjast hlutmargfeldin heildarflatarmáli flatarmálslíkansins?