Líkan af flugi eldflaugar með annars stigs jöfnu

Líkan af flugi eldflaugar með annars stigs jöfnu

Alejandra kveikir á kveikiþræði lítillar leikfangaeldflaugar. Kveikiþráðurinn brennur út og eftir 1 sekúndu fer eldflaugin á loft. Eldflaugin lendir aftur á jörðu eftir 6 sekúndur.

Eldflaugin er í 8 metra hæð 5 sekúndum eftir að Alejandra kveikti á kveikiþræðinum.

  1. Hver er annars stigs jafnan á staðalformi sem lýsir flugi eldflaugarinnar? Vísbending: Hugsaðu um verkefnið sem annars stigs fall þar sem þú þekkir núllstöðvarnar og einn punkt á grafi fallsins.
  2. Notaðu jöfnuna sem þú fannst í fyrri spurningu til að finna hæð eldflaugarinnar, í metrum, 3 sekúndum eftir að Alejandra kveikti á kveikiþræðinum.