Samantekt
Samantekt
8.1 Fjölbreytni og inngilding á vinnustað
Fjölbreytt starfslið skilar fyrirtæki margvíslegum ávinningi. Aðgangur að stórum hópi hæfileikaríks fólks, jákvæð upplifun viðskiptavina og góður árangur eru allt skjalfestir kostir. Fjölbreytni getur einnig skapað áskoranir í upphafi og sumt starfsfólk kann að eiga erfitt með að sjá kosti hennar. Stjórnendur sem leggja sig fram geta þó yfirstigið þessar hindranir og látið fjölbreytnina skila árangri með virkri inngildingu.
8.2 Að mæta þörfum fólks með ólíka getu og trú
Fyrirtæki ættu að veita viðeigandi aðlögun eftir því sem unnt er svo starfsfólk geti lagt sitt af mörkum, hvort sem þarfir þess tengjast trúarsannfæringu, trúleysi eða fötlun. Til þess kann að þurfa sveigjanlegt vaktaskipulag, sérbúnað eða einfaldlega skilningsríkan stjórnanda.
8.3 Kynvitund og kynhneigð
Dómur Hæstaréttar Bandaríkjanna árið 2020 staðfesti að bann VII. bálks CRA-laganna við mismunun vegna kyns næði einnig til kynhneigðar og kynvitundar. Mörg fylki veita auk þess sérstaka vernd á þessum sviðum. Árangursrík fyrirtæki láta sér ekki nægja að fara að gildandi lögum heldur setja sér siðlega stefnu sem sýnir skýrt að starfshæfni og geta ráða ákvörðunum þeirra, ekki kynhneigð, kynvitund eða einkalíf fólks.
8.4 Tekjuójöfnuður
Tekjuójöfnuður hefur aukist verulega á sama tíma og bandaríska millistéttin hefur haldið áfram að minnka, þótt hún sé mikilvæg fyrir hagvöxt. Þegar bókin var skrifuð voru alríkislágmarkslaun 7,25 dalir á klukkustund og mörg fylki fylgdu einfaldlega fordæmi alríkisins þegar þau ákváðu eigin lágmarkslaun. Sumir hagfræðingar draga í efa að bein tengsl séu milli minnkandi millistéttar og þess að stjórnvöld hafi ekki hækkað lágmarkslaun nægilega hratt. Fyrirtæki geta engu að síður tekið forystu með því að greiða hærri lágmarkslaun. Þau geta einnig ráðið fólk sem launafólk fremur en sjálfstæða verktaka, staðið straum af starfsmannahlunnindum og greitt konum sömu laun og körlum fyrir sambærilega vinnu.
8.5 Réttindi dýra og áhrif þeirra á atvinnulíf
Fyrirtæki í rótgrónum atvinnugreinum, allt frá lyfja- og lækningafyrirtækjum til matvöruverslana og veitingastaða, þurfa öll að taka mið af vaxandi vitund almennings um siðlega meðferð annarra dýra en manna. Þetta hefur sérstök áhrif á landbúnaðar- og matvælaiðnaðinn, enda snýst málið um hvaða dýr við teljum rétt að ala og borða. Á heimsmarkaði þurfa snyrtivörufyrirtæki í auknum mæli að uppfylla lagakröfur og á heimamarkaði þrýsta neytendur á þau að setja sér siðlega stefnu um dýratilraunir. Upplýstir neytendur geta áfram knúið fram betri meðferð dýra.