Kafli 5
Kafli 5
Matsspurningar
A
Menningarmótun er það ferli þegar fólk tileinkar sér einkenni, gildi og reglur sem gera því kleift að taka þátt í samfélaginu. Menningaraðlögun felst hins vegar í að gildi, heimsmynd, hugmyndafræði eða starfshættir einnar menningar berast inn í aðra.
Neysluhyggja er óhófleg áhersla á kaup og eignir. Hún gengur gegn vaxandi áherslu á siðfræði og farsæld fólks í viðskiptum, enda skilgreinir hún fólk eftir kaupmætti fremur en mennsku þess.
B
A
B
B
Shlensky gegn Wrigley
veitti stjórnum félaga og stjórnendum aukið svigrúm til að ákveða hvernig vega ætti saman hagsmuni ólíkra hagsmunaaðila. Þetta var ólíkt dóminum í
Dodge gegn Ford Motor Company
, sem staðfesti meginregluna um forgang hluthafa.
C
A
Staðfærsla er ferlið við að laga vöru að notkun eða sölu í öðrum löndum og menningarheimum. Hún getur meðal annars falist í þýðingu texta, aðlögun efnis að smekk og neysluvenjum á staðarmarkaði og umreikningi mælieininga.
Þetta getur falist í að stýra væntingum. Stjórnendur verða að skila því sem samningurinn krefst en gera það af menningarlegri næmni. Það getur kallað á að semja um atriði á borð við skilafresti og fundafyrirkomulag og sætta sig við að fólk í öðru menningarlegu samhengi hafi aðrar væntingar.
A
D
Samviskan er ein uppspretta siðferðilegrar hegðunar í viðskiptum, enda mynda einstaklingar fyrirtæki og skipulagsheildir þegar þeir starfa saman af fúsum og frjálsum vilja. Innri rödd þeirra getur hvatt þá til að koma ábyrgt fram hver við annan og við hagsmunaaðila sína, en hún tryggir það ekki.
Margir eru sammála um mikilvægi gilda á borð við heiðarleika og sanngirni og þess að koma fram við fólk sem markmið en ekki tæki. Það getur þó reynst mjög flókið að framfylgja þeim. Fólk leggur nefnilega ólíkan skilning í það hvað telst heiðarlegt og sanngjarnt eða hvað felst í því að vera markmið í sjálfu sér. Niðurstaðan kann því að verða fjöldi ólíkra reglna í stað eins sameiginlegs reglusafns.
Mannmiðað viðskiptalíkan beinir sjónum að leiðtogaþróun og niðurstöðum félagsvísinda um það hvernig hvetja megi fólk. Hugvísindaleg nálgun í siðfræði leitar hins vegar í tilvikagreiningar, skáldsögur, smásögur og leikrit til að öðlast innsýn í mannlega hegðun.