22 Markgildi
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- meðalhraði
- breyting á staðsetningu hlutar deilt með lengd tímabils; meðalhraði hlutar á tímabilinu [𝑡,𝑎] (ef 𝑡<𝑎 eða [𝑎,𝑡] ef 𝑡>𝑎), þar sem staðsetning hans er gefin með 𝑠(𝑡), er 𝑣ave=𝑠(𝑡)−𝑠(𝑎)𝑡−𝑎
- regla um fastamargfeldi markgildis
- markgildisreglan
- samfelldni í punkti
- Fall er samfellt í punkti a þá og því aðeins að eftirfarandi þrjú skilyrði séu uppfyllt: (1) er skilgreint, (2) er til og (3)
- samfelldni frá vinstri
- Fall er samfellt frá vinstri í punktinum b ef lim𝑥→𝑏−𝑓(𝑥)=𝑓(𝑏)
- samfelldni frá hægri
- Fall er samfellt frá hægri í punktinum a ef lim𝑥→𝑎+𝑓(𝑥)=𝑓(𝑎)
- samfelldni á bili
- fall sem hægt er að teikna með blýanti án þess að lyfta honum; fall er samfellt á opnu bili ef það er samfellt í sérhverjum punkti bilsins; fall 𝑓(𝑥) er samfellt á lokuðu bili af gerðinni [𝑎,𝑏] ef það er samfellt í sérhverjum punkti í (𝑎,𝑏), samfellt frá hægri í a og samfellt frá vinstri í b
- mismunaregla fyrir markgildi
- markgildisreglan
- deildareikningur
- sú grein stærðfræðigreiningar sem fjallar um afleiður og notkun þeirra
- ósamfelldni í punkti
- Fall er ósamfellt í punkti, eða hefur þar ósamfelldni, ef það er ekki samfellt í punktinum
- epsílon-delta-skilgreining á markgildi
- ef fyrir sérhvert er til þannig að ef þá er
- óendanleg ósamfelldni
- Óendanleg ósamfelldni verður í punktinum a ef lim𝑥→𝑎−𝑓(𝑥)=±∞ eða lim𝑥→𝑎+𝑓(𝑥)=±∞
- óendanlegt markgildi
- Fall hefur óendanlegt markgildi í punktinum a ef gildi þess vex eða minnkar án takmarka þegar breytan nálgast a
- augnablikshraði
- Augnablikshraði hlutar með staðsetningarfallið 𝑠(𝑡) er það gildi sem meðalhraðarnir á bilum af gerðinni [𝑡,𝑎] og [𝑎,𝑡] nálgast þegar t nálgast 𝑎, að því gefnu að slíkt gildi sé til
- heildareikningur
- sú grein stærðfræðigreiningar sem fjallar um heildi og notkun þeirra
- Milligildissetningin
- Látum fallið f vera samfellt á lokuðu og takmörkuðu bili [a,b]; ef z er rauntala milli 𝑓(𝑎) og 𝑓(𝑏), þá er til tala c í [𝑎,𝑏] sem uppfyllir 𝑓(𝑐)=𝑧
- innsæ skilgreining á markgildi
- Ef öll gildi fallsins 𝑓(𝑥) nálgast rauntöluna L þegar 𝑥(≠𝑎) nálgast a, nálgast 𝑓(𝑥) töluna L
- stökkósamfelldni
- Stökkósamfelldni verður í punktinum a ef lim𝑥→𝑎−𝑓(𝑥) og lim𝑥→𝑎+𝑓(𝑥) eru bæði til, en lim𝑥→𝑎−𝑓(𝑥)≠lim𝑥→𝑎+𝑓(𝑥)
- markgildi
- sú aðgerð að láta x eða t stefna á a í stæðu; markgildi fallsins 𝑓(𝑥) þegar x stefnir á a er gildið sem 𝑓(𝑥) stefnir á þegar x stefnir á a
- reiknireglur fyrir markgildi
- einstakar reiknireglur fyrir markgildi; fyrir hverja reglu látum og vera skilgreind fyrir öll á einhverju opnu bili sem inniheldur a; gerum ráð fyrir að L og M séu rauntölur þannig að og látum c vera fasta
- stærðfræðigreining margra breyta
- sú grein stærðfræðigreiningar sem fjallar um föll tveggja eða fleiri breyta
- einhliða markgildi
- Einhliða markgildi falls er markgildi þess þegar viðfang fallsins nálgast tiltekið gildi frá vinstri eða hægri
- veldisregla fyrir markgildi
- markgildisreglan lim𝑥→𝑎(𝑓(𝑥))𝑛=(lim𝑥→𝑎𝑓(𝑥))𝑛=𝐿𝑛 fyrir sérhverja jákvæða heiltölu n
- margfeldisregla fyrir markgildi
- markgildisreglan
- deiliregla fyrir markgildi
- markgildisreglan fyrir
- afmáanleg ósamfelldni
- Afmáanleg ósamfelldni verður í punktinum a ef 𝑓(𝑥) er ósamfellt í a, en lim𝑥→𝑎𝑓(𝑥) er til
- rótarregla fyrir markgildi
- markgildisreglan lim𝑥→𝑎𝑛√𝑓(𝑥)=𝑛√lim𝑥→𝑎𝑓(𝑥)=𝑛√𝐿 fyrir öll L þegar n er oddatala og fyrir 𝐿≥0 þegar n er slétt tala
- sniðill
- Sniðill við graf fallsins 𝑓(𝑥) í punktinum a er lína sem liggur gegnum punktinn (𝑎,𝑓(𝑎)) og annan punkt á grafi fallsins; hallatala sniðilsins er gefin með 𝑚sec=𝑓(𝑥)−𝑓(𝑎)𝑥−𝑎
- Klemmureglan
- segir að ef fyrir öll á opnu bili sem inniheldur a og þar sem L er rauntala, þá
- summuregla fyrir markgildi
- markgildisreglan lim𝑥→𝑎(𝑓(𝑥)+𝑔(𝑥))=lim𝑥→𝑎𝑓(𝑥)+lim𝑥→𝑎𝑔(𝑥)=𝐿+𝑀
- snertill
- Snertill við graf falls í punktinum (𝑎,𝑓(𝑎)) er línan sem sniðlar gegnum (𝑎,𝑓(𝑎)) nálgast þegar hinn punkturinn á grafi fallsins er valinn þannig að x-hnit hans nálgast a; hallatala snertilsins í a mælir breytingarhraða fallsins þar
- þríhyrningsójafnan
- Ef a og b eru rauntölur, þá er |𝑎+𝑏|≤|𝑎|+|𝑏|
- lóðfella
- Fallið hefur lóðfelluna 𝑥=𝑎 ef markgildi þess þegar x nálgast a frá hægri eða vinstri er óendanlegt