Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 4.1 Tengdir breytingarhraðar
    3. 4.2 Línulegar nálganir og deildi
    4. 4.3 Hágildi og lággildi
    5. 4.4 Meðalgildissetningin
    6. 4.5 Afleiður og lögun grafs
    7. 4.6 Markgildi þegar x stefnir á óendanlegt og aðfellur
    8. 4.7 Hagnýt bestunarverkefni
    9. 4.8 Regla l’Hôpital
    10. 4.9 Aðferð Newtons
    11. 4.10 Stofnföll
    12. Lykilhugtök
    13. Helstu jöfnur
    14. Meginatriði
    15. Yfirlitsverkefni
  2. A | Tafla yfir heildi
  3. B | Tafla yfir afleiður
  4. C | Upprifjun fyrir stærðfræðigreiningu
  5. Atriðaskrá

Bókin og glærur

Sækja bókina (PDF)PowerPoint-glærur
Stærðfræðigreining, 1. bindi (IS)4 Notkun afleiða

4.8 Regla l’Hôpital

Námsmarkmið

  • 4.8.1 Átta sig á því hvenær beita á reglu l’Hôpital.
  • 4.8.2 Greina óákveðin form sem myndast við deilingu, margföldun, frádrátt og veldisreikning og beita reglu l’Hôpital í hverju tilviki.
  • 4.8.3 Lýsa hlutfallslegum vaxtarhraða falla.

Í þessum undirkafla skoðum við öflugt verkfæri til að reikna markgildi. Þetta verkfæri, sem nefnist regla l’Hôpital, notar afleiður til að reikna markgildi. Með þessari reglu getum við reiknað mörg markgildi sem okkur hefur hingað til ekki tekist að ákvarða. Við þurfum þá ekki lengur að styðjast við tölulegar vísbendingar til að giska á að markgildi sé til. Við getum sýnt með fullri vissu að það sé til og fundið nákvæmt gildi þess.

Beiting reglu l’Hôpital

Reglu l’Hôpital má beita til að reikna markgildi sem fela í sér kvóta tveggja falla. Skoðum

limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x).

Ef limx→a⁢f⁡(x)=L1oglimx→a⁢g⁡(x)=L2≠0, þá

limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x)=L1L2.

En hvað gerist ef limx→a⁢f⁡(x)=0 og limx→a⁢g⁡(x)=0? Við köllum þetta eitt óákveðnu formanna, af gerðinni 00. Þetta telst óákveðið form vegna þess að án frekari greiningar getum við ekki ákvarðað nákvæma hegðun f⁡(x)g⁡(x) þegar x→a . Við höfum áður séð dæmi um þetta í textanum. Skoðum til dæmis

limx→2⁢x2−4x−2oglimx→0⁢sin⁡xx.

Í fyrra þessara dæma getum við reiknað markgildið með því að þátta teljarann og rita

limx→2⁢x2−4x−2=limx→2⁢(x+2)⁢(x−2)x−2=limx→2⁢(x+2)=2+2=4.

Fyrir limx→0⁢sin⁡xx gátum við sýnt með rúmfræðilegum rökum að

limx→0⁢sin⁡xx=1.

Hér beitum við annarri aðferð til að reikna markgildi á borð við þessi. Með henni er ekki aðeins auðveldara að reikna þessi markgildi. Það sem meira máli skiptir er að með henni getum við reiknað mörg önnur markgildi sem við gátum ekki reiknað áður.

Hugmyndina að baki reglu l’Hôpital má skýra með staðbundnum línulegum nálgunum. Lítum á tvö deildanleg föll f og g þannig að limx→a⁢f⁡(x)=0=limx→a⁢g⁡(x) og þannig að g′⁡(a)≠0. Þegar x er nálægt a, getum við ritað

f⁡(x)≈f⁡(a)+f′⁡(a)⁢(x−a)

og

g⁡(x)≈g⁡(a)+g′⁡(a)⁢(x−a).

Því gildir

f⁡(x)g⁡(x)≈f⁡(a)+f′⁡(a)⁢(x−a)g⁡(a)+g′⁡(a)⁢(x−a).
Föllin tvö y = f(x) og y = g(x) eru teiknuð þannig að gröf þeirra skerast í punkti fyrir ofan x = a. Línulegar nálganir þessara tveggja falla, y = f(a) + f’(a)(x – a) og y = g(a) + g’(a)(x – a), eru einnig teiknaðar.
Mynd 4.71. Ef limx→a⁢f⁡(x)=limx→a⁢g⁡(x), þá er hlutfallið f⁡(x)/g⁡(x) um það bil jafnt hlutfalli línulegra nálgana þeirra nærri a.

Þar sem f er deildanlegt í a, er f samfellt í a, og því er f⁡(a)=limx→a⁢f⁡(x)=0. Á sama hátt er g⁡(a)=limx→a⁢g⁡(x)=0. Ef við gerum einnig ráð fyrir að f′ og g′ séu samfelld í x=a, er f′⁡(a)=limx→a⁢f′⁡(x) og g′⁡(a)=limx→a⁢g′⁡(x). Af þessu ályktum við að

limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x)=limx→a⁢f′⁡(x)⁢(x−a)g′⁡(x)⁢(x−a)=limx→a⁢f′⁡(x)g′⁡(x).

Athugið að unnt er að slaka á þeirri forsendu að f′ og g′ séu samfelld í a og g′⁡(a)≠0. Nú setjum við reglu l’Hôpital formlega fram fyrir óákveðna formið 00. Athugið einnig að táknunin 00 merkir ekki að núlli sé í raun deilt með núlli. Þess í stað notum við táknunina 00 til að tákna kvóta markgilda sem hvort um sig er núll.

Setning 4.12

Regla l’Hôpital (tilvikið 0/0)

Gerum ráð fyrir að f og g séu deildanleg föll á opnu bili sem inniheldur a, nema hugsanlega í a. Ef limx→a⁢f⁡(x)=0 og limx→a⁢g⁡(x)=0, þá

limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x)=limx→a⁢f′⁡(x)g′⁡(x),

að því gefnu að markgildið hægra megin sé til eða sé ∞ eða −∞. Þessi niðurstaða gildir einnig ef við skoðum einhliða markgildi eða ef a=∞og−∞.

Sönnun

Við sönnum setninguna í því sértilviki að f,g,f′, sem og g′ séu öll samfelld á opnu bili sem inniheldur a. Þar sem limx→a⁢f⁡(x)=0=limx→a⁢g⁡(x) og f og g eru samfelld í a, gildir f⁡(a)=0=g⁡(a). Því

limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x)=limx→a⁢f⁡(x)−f⁡(a)g⁡(x)−g⁡(a)þar semf⁡(a)=0=g⁡(a)=limx→a⁢f⁡(x)−f⁡(a)x−ag⁡(x)−g⁡(a)x−aalgebruleg umritun=limx→a⁢f⁡(x)−f⁡(a)x−alimx→a⁢g⁡(x)−g⁡(a)x−amarkgildi kvóta=f′⁡(a)g′⁡(a)skilgreining afleiðu=limx→a⁢f′⁡(x)limx→a⁢g′⁡(x)samfelldnif′ogg′=limx→a⁢f′⁡(x)g′⁡(x).markgildi kvóta

Athugið að samkvæmt reglu l’Hôpital má reikna markgildi kvóta fg með því að skoða markgildi kvóta afleiðnanna f′g′. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að við erum ekki að reikna afleiðu kvótans fg.

□

Dæmi 4.38

Beiting reglu l’Hôpital (tilfellið 0/0)

Reiknið hvert af eftirfarandi markgildum með því að beita reglu l’Hôpital.

  1. limx→0⁢1−cos⁡xx
  2. limx→1⁢sin⁡(π⁢x)ln⁡x
  3. limx→∞⁢e1/x−11/x
  4. limx→0⁢sin⁡x−xx2

Lausn

  1. Þar sem teljarinn 1−cos⁡x→0 og nefnarinn x→0, getum við beitt reglu l’Hôpital til að reikna þetta markgildi. Við fáum
    limx→0⁢1−cos⁡xx=limx→0⁢dd⁢x⁢(1−cos⁡x)dd⁢x⁢(x)=limx→0⁢sin⁡x1=limx→0⁢(sin⁡x)limx→0⁢(1)=01=0.
  2. Þegar x→1, gildir sin⁡(π⁢x)→0 fyrir teljarann, en um nefnarann gildir ln⁡(x)→0. Þess vegna getum við beitt reglu l’Hôpital. Við fáum
    limx→1⁢sin⁡(π⁢x)ln⁡x=limx→1⁢π⁢cos⁡(π⁢x)1/x=limx→1⁢(π⁢x)⁢cos⁡(π⁢x)=(π·1)⁢(−1)=−π.
  3. Þegar x→∞, gildir e1/x−1→0 fyrir teljarann, en um nefnarann gildir (1x)→0. Því getum við beitt reglu l’Hôpital. Við fáum
    limx→∞⁢e1/x−11x=limx→∞⁢e1/x⁡(−1x2)(−1x2)=limx→∞⁢e1/x=e0=1.
  4. Þegar x→0, nálgast bæði teljarinn og nefnarinn núll. Því getum við beitt reglu l’Hôpital. Við fáum
    limx→0⁢sin⁡x−xx2=limx→0⁢cos⁡x−12⁢x.

    Þar sem bæði teljari og nefnari þessa nýja kvóta nálgast núll þegar x→0, beitum við reglu l’Hôpital aftur. Þá sjáum við að
    limx→0⁢cos⁡x−12⁢x=limx→0⁢−sin⁡x2=0.

    Því ályktum við að
    limx→0⁢sin⁡x−xx2=0.

Stöðumat 4.37

Reiknið limx→0⁢xtan⁡x.

Við getum einnig notað reglu l’Hôpital til að reikna markgildi kvóta f⁡(x)g⁡(x) þar sem f⁡(x)→±∞ og g⁡(x)→±∞. Markgildi af þessu tagi eru óákveðin form af gerðinni ∞/∞. Athugið aftur að við erum í raun ekki að deila ∞ með ∞. Þar sem ∞ er ekki rauntala er slík deiling ómöguleg; þess í stað notum við táknið ∞/∞. Það táknar kvóta falla sem hvort um sig stefnir á ∞ eða −∞.

Setning 4.13

Regla l’Hôpital (∞/∞-tilvikið)

Gerum ráð fyrir að f og g séu deildanleg föll á opnu bili sem inniheldur a, nema hugsanlega í a. Gerum ráð fyrir að limx→a⁢f⁡(x)=∞ (eða −∞) og limx→a⁢g⁡(x)=∞ (eða −∞). Þá gildir

limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x)=limx→a⁢f′⁡(x)g′⁡(x),

að því gefnu að markgildið hægra megin sé til eða sé ∞ eða −∞. Þessi niðurstaða gildir einnig ef markgildið er óendanlegt, ef a=∞ eða −∞, eða ef markgildið er einhliða.

Dæmi 4.39

Beiting reglu l’Hôpital ( ∞ / ∞-tilvikið)

Reiknið hvert eftirfarandi markgildi með því að beita reglu l’Hôpital.

  1. limx→∞⁢3⁢x+52⁢x+1
  2. limx→0+⁢ln⁡xcot⁡x

Lausn

  1. Þar sem 3⁢x+5 og 2⁢x+1 eru fyrstastigs margliður með jákvæða forystustuðla, er limx→∞⁢(3⁢x+5)=∞ og limx→∞⁢(2⁢x+1)=∞. Því beitum við reglu l’Hôpital og fáum
    limx→∞⁢3⁢x+52⁢x+1=limx→∞⁢32=32.

    Athugið að einnig má reikna þetta markgildi án þess að beita reglu l’Hôpital. Fyrr í kaflanum sýndum við hvernig reikna má slíkt markgildi með því að deila bæði teljara og nefnara með hæsta veldi x í nefnaranum. Með því sáum við að
    limx→∞⁢3⁢x+52⁢x+1=limx→∞⁢3+5/x2+1/x=32.

    Regla l’Hôpital veitir okkur aðra leið til að reikna markgildi af þessu tagi.
  2. Hér gildir limx→0+⁢ln⁡x=−∞ og limx→0+⁢cot⁡x=∞. Því getum við beitt reglu l’Hôpital og fáum
    limx→0+⁢ln⁡xcot⁡x=limx→0+⁢1/x−csc2⁢x=limx→0+⁢1−xcsc2⁢x.

    Þegar x→0+, gildir csc2⁢x→∞. Þá nálgast fyrri þátturinn í nefnaranum núll en sá síðari vex án takmarka. Í slíku tilviki getur hvað sem er gerst með margfeldið, svo að við getum ekki enn dregið neina ályktun. Til að reikna markgildið notum við skilgreininguna á csc⁡x og ritum
    limx→0+⁢1−xcsc2⁢x=limx→0+⁢sin2⁢x−x.

    Þar sem limx→0+⁢sin2⁢x=0 og limx→0+⁢x=0, getum við beitt reglu l’Hôpital aftur. Við fáum
    limx→0+⁢sin2⁢x−x=limx→0+⁢2⁢sin⁡x⁢cos⁡x−1=0−1=0.

    Því ályktum við að
    limx→0+⁢ln⁡xcot⁡x=0.

Stöðumat 4.38

Reiknið limx→∞⁢ln⁡x5⁢x.

Eins og áður hefur komið fram er regla l’Hôpital afar gagnlegt tæki til að reikna markgildi. Reglu l’Hôpital má þó aðeins beita á kvótann f⁡(x)g⁡(x), ef markgildi f⁡(x)g⁡(x) er af gerðinni 00 eða ∞/∞. Lítum á eftirfarandi dæmi.

Dæmi 4.40

Þegar regla l’Hôpital á ekki við

Skoðum limx→1⁢x2+53⁢x+4. Sýnið að ekki sé hægt að ákvarða markgildið með því að beita reglu l’Hôpital.

Lausn

Þar sem markgildi teljarans og nefnarans eru hvorki bæði núll né bæði óendanleg, getum við ekki beitt reglu l’Hôpital. Ef við reynum samt að gera það, fáum við

dd⁢x⁢(x2+5)=2⁢x

og

dd⁢x⁢(3⁢x+4)=3.

Þá myndum við ranglega álykta að

limx→1⁢x2+53⁢x+4=limx→1⁢2⁢x3=23.

En þar sem limx→1⁢(x2+5)=6 og limx→1⁢(3⁢x+4)=7, fæst í raun

limx→1⁢x2+53⁢x+4=67.

Við getum ályktað að

limx→1⁢x2+53⁢x+4≠limx→1⁢dd⁢x⁢(x2+5)dd⁢x⁢(3⁢x+4).

Stöðumat 4.39

Útskýrið hvers vegna ekki er hægt að beita reglu l’Hôpital til að reikna limx→0+⁢cos⁡xx. Reiknið limx→0+⁢cos⁡xx með öðrum aðferðum.

Önnur óákveðin form

Regla l’Hôpital er mjög gagnleg við að ákvarða markgildi sem fela í sér óákveðnu formin 00 og ∞/∞. Reglu l’Hôpital má einnig nota til að ákvarða markgildi sem fela í sér önnur óákveðin form. Stæðurnar 0·∞, ∞−∞, 1∞, ∞0, auk 00 teljast allar óákveðin form. Þessar stæður eru ekki rauntölur heldur tákna þær form sem koma fram þegar tiltekin markgildi eru reiknuð. Næst skoðum við hvers vegna formin eru óákveðin og hvernig beita má reglu l’Hôpital í þessum tilvikum. Meginhugmyndin er að umrita þau þannig að úr verði óákveðna formið 00 eða ∞/∞.

Óákveðið form af gerðinni 0 · ∞

Gerum ráð fyrir að við viljum reikna limx→a⁢(f⁡(x)·g⁡(x)), þar sem f⁡(x)→0 og g⁡(x)→∞ (eða −∞) þegar x→a. Þegar annar þátturinn nálgast núll en tölugildi hins vex án takmarka getur margfeldið haft ólík markgildi. Táknunin 0·∞ lýsir því formi. Formið 0·∞ er óákveðið því án frekari greiningar getum við ekki ákvarðað hegðun margfeldisins f⁡(x)⁢g⁡(x) þegar x→a. Látum til dæmis n vera jákvæða heiltölu og skoðum

f⁡(x)=1(xn+1)ogg⁡(x)=3⁢x2.

Þegar x→∞, gildir f⁡(x)→0 og g⁡(x)→∞. Þegar x→∞ er markgildi fallsins f⁡(x)⁢g⁡(x)=3⁢x2(xn+1) breytilegt og ræðst af n. Þegar n=2, er limx→∞⁢f⁡(x)⁢g⁡(x)=3. Þegar n=1, er limx→∞⁢f⁡(x)⁢g⁡(x)=∞. Þegar n=3, er limx→∞⁢f⁡(x)⁢g⁡(x)=0. Hér skoðum við annað markgildi sem felur í sér óákveðna formið 0·∞ og sýnum hvernig umrita má fallið sem kvóta til að beita reglu l’Hôpital.

Dæmi 4.41

Óákveðið form af gerðinni 0 · ∞

Reiknið limx→0+⁢x⁢ln⁡x.

Lausn

Fyrst skulum við umrita fallið x⁢ln⁡x sem kvóta til að beita reglu l’Hôpital. Ef við skrifum

x⁢ln⁡x=ln⁡x1/x,

sjáum við að ln⁡x→−∞ þegar x→0+ og 1x→∞ þegar x→0+. Því getum við beitt reglu l’Hôpital og fengið

limx→0+⁢ln⁡x1/x=limx→0+⁢dd⁢x⁢(ln⁡x)dd⁢x⁢(1/x)=limx→0+⁢1/x-1/x2=limx→0+⁢(−x)=0.

Við ályktum að

limx→0+⁢x⁢ln⁡x=0.
Graf fallsins y = x ln(x) er sýnt þegar x ≥ 0. Þegar x = 0 er gildi fallsins 0.
Mynd 4.72. Markgildi í x=0 fyrir fallið f⁡(x)=x⁢ln⁡x.

Stöðumat 4.40

Reiknið limx→0⁢x⁢cot⁡x.

Óákveðið form af gerðinni ∞ − ∞

Önnur gerð óákveðins forms er ∞−∞. Skoðum eftirfarandi dæmi. Látum n vera jákvæða heiltölu og látum f⁡(x)=3⁢xn og g⁡(x)=3⁢x2+5. Þegar x→∞, gildir f⁡(x)→∞ og g⁡(x)→∞. Við viljum kanna limx→∞⁢(f⁡(x)−g⁡(x)). Eftir því hvort f⁡(x) vex hraðar, g⁡(x) vex hraðar eða föllin vaxa jafnhratt getur markgildið tekið ólík gildi, eins og fram kemur hér á eftir. Þar sem f⁡(x)→∞ og g⁡(x)→∞, ritum við ∞−∞ til að lýsa formi markgildisins. Eins og önnur óákveðin form hefur ∞−∞ enga merkingu eitt og sér; greina þarf markgildið nánar til að ákvarða gildi þess. Ef til dæmis veldisvísirinn n í fallinu f⁡(x)=3⁢xn er n=3, fæst

limx→∞⁢(f⁡(x)−g⁡(x))=limx→∞⁢(3⁢x3−3⁢x2−5)=∞.

Ef hins vegar n=2, þá

limx→∞⁢(f⁡(x)−g⁡(x))=limx→∞⁢(3⁢x2−3⁢x2−5)=−5.

En ef n=1, þá

limx→∞⁢(f⁡(x)−g⁡(x))=limx→∞⁢(3⁢x−3⁢x2−5)=−∞.

Því er ekki hægt að ákvarða markgildið með því að skoða aðeins ∞−∞. Næst sjáum við hvernig umrita má stæðu sem felur í sér óákveðna formið ∞−∞ sem brot svo beita megi reglu l’Hôpital.

Dæmi 4.42

Óákveðið form af gerðinni ∞ − ∞

Reiknið limx→0+⁢(1x2−1tan⁡x).

Lausn

Með því að sameina brotin getum við ritað fallið sem kvóta. Þar sem minnsti samnefnarinn er x2⁢tan⁡x, höfum við

1x2−1tan⁡x=(tan⁡x)−x2x2⁢tan⁡x.

Þegar x→0+, gildir tan⁡x−x2→0 fyrir teljarann, en um nefnarann gildir x2⁢tan⁡x→0. Því getum við beitt reglu l’Hôpital. Við deildum teljarann og nefnarann og fáum

limx→0+⁢(tan⁡x)−x2x2⁢tan⁡x=limx→0+⁢(sec2⁢x)−2⁢xx2⁢sec2⁢x+2⁢x⁢tan⁡x.

Þegar x→0+, gildir (sec2⁢x)−2⁢x→1 og x2⁢sec2⁢x+2⁢x⁢tan⁡x→0. Þar sem nefnarinn er jákvæður þegar x nálgast núll frá hægri ályktum við að

limx→0+⁢(sec2⁢x)−2⁢xx2⁢sec2⁢x+2⁢x⁢tan⁡x=∞.

Því gildir

limx→0+⁢(1x2−1tan⁡x)=∞.

Stöðumat 4.41

Reiknið limx→0+⁢(1x−1sin⁡x).

Önnur gerð óákveðins forms sem kemur fyrir þegar markgildi eru reiknuð tengist veldisvísum. Stæðurnar 00, ∞0, auk 1∞ eru allar óákveðin form. Ein og sér hafa þessi form enga merkingu, því ekki er hægt að reikna gildi þeirra á sama hátt og gildi stæðu með rauntölum. Þess í stað tákna þau form sem koma upp þegar markgildi eru fundin. Nú skoðum við hvernig nota má reglu l’Hôpital til að reikna markgildi sem fela í sér þessi óákveðnu form.

Regla l’Hôpital á við um kvóta. Því notum við náttúrulega logrann og eiginleika hans til að breyta markgildi með veldi í hliðstætt markgildi kvóta. Gerum til dæmis ráð fyrir að við viljum reikna limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x) og fáum óákveðna formið ∞0. (Óákveðnu formin 00 og 1∞ má meðhöndla á svipaðan hátt.) Við höldum áfram sem hér segir. Látum

y=f⁡(x)g⁡(x).

Þá er

ln⁡y=ln⁡(f⁡(x)g⁡(x))=g⁡(x)⁢ln⁡(f⁡(x)).

Því gildir

limx→a⁢[ln⁡(y)]=limx→a⁢[g⁡(x)⁢ln⁡(f⁡(x))].

Þar sem limx→a⁢f⁡(x)=∞, vitum við að limx→a⁢ln⁡(f⁡(x))=∞. Því er limx→a⁢g⁡(x)⁢ln⁡(f⁡(x)) á óákveðna forminu 0·∞, svo að við getum notað aðferðirnar sem lýst var hér að framan til að umrita stæðuna g⁡(x)⁢ln⁡(f⁡(x)) þannig að beita megi reglu l’Hôpital. Gerum ráð fyrir að limx→a⁢g⁡(x)⁢ln⁡(f⁡(x))=L, þar sem L getur verið ∞ eða −∞. Þá

limx→a⁢[ln⁡(y)]=L.

Þar sem náttúrulega lografallið er samfellt ályktum við að

ln⁡(limx→a⁢y)=L,

sem gefur okkur

limx→a⁢y=limx→a⁢f⁡(x)g⁡(x)=eL.

Dæmi 4.43

Óákveðið form af gerðinni ∞ 0

Reiknið limx→∞⁢x1/x.

Lausn

Látum y=x1/x. Þá er

ln⁡y=ln⁡(x1/x)=1x⁢ln⁡x=ln⁡xx.

Við þurfum að reikna limx→∞⁢ln⁡xx. Með því að beita reglu l’Hôpital fáum við

limx→∞⁢ln⁡y=limx→∞⁢ln⁡xx=limx→∞⁢1/x1=0.

Því er limx→∞⁢ln⁡y=0. Þar sem náttúrulega lografallið er samfellt ályktum við að

ln⁡(limx→∞⁢y)=0,

sem leiðir til

limx→∞⁢y=eln⁡(y)=lim e0=1.(Öll markgildi þegar x⁢ ≥ ⁢∞.)

Því gildir

limx→∞⁢x1/x=1.

Stöðumat 4.42

Reiknið limx→∞⁢x1/ln⁡(x).

Dæmi 4.44

Óákveðið form af gerðinni 0 0

Reiknið limx→0+⁢xsin⁡x.

Lausn

Látum

y=xsin⁡x.

Því er

ln⁡y=ln⁡(xsin⁡x)=sin⁡x⁢ln⁡x.

Nú reiknum við limx→0+⁢sin⁡x⁢ln⁡x. Þar sem limx→0+⁢sin⁡x=0 og limx→0+⁢ln⁡x=−∞, er stæðan á óákveðna forminu 0·∞. Til að beita reglu l’Hôpital þurfum við að umrita sin⁡x⁢ln⁡x sem brot. Við gætum skrifað

sin⁡x⁢ln⁡x=sin⁡x1/ln⁡x

eða

sin⁡x⁢ln⁡x=ln⁡x1/sin⁡x=ln⁡xcsc⁡x.

Skoðum fyrri kostinn. Ef við beittum reglu l’Hôpital í þessu tilviki fengjum við

limx→0+⁢sin⁡x⁢ln⁡x=limx→0+⁢sin⁡x1/ln⁡x=limx→0+⁢cos⁡x−1/(x⁢(ln⁡x)2)=limx→0+⁢(−x⁢(ln⁡x)2⁢cos⁡x).

Því miður fáum við aftur stæðu á óákveðna forminu 0·∞, og nýja markgildið er auk þess enn erfiðara að reikna en það sem við byrjuðum á. Þess í stað reynum við seinni kostinn. Með því að rita

sin⁡x⁢ln⁡x=ln⁡x1/sin⁡x=ln⁡xcsc⁡x,

og með því að beita reglu l’Hôpital fáum við

limx→0+⁢sin⁡x⁢ln⁡x=limx→0+⁢ln⁡xcsc⁡x=limx→0+⁢1/x−csc⁡x⁢cot⁡x=limx→0+⁢−1x⁢csc⁡x⁢cot⁡x.

Þar sem csc⁡x=1sin⁡x og cot⁡x=cos⁡xsin⁡x, má umrita stæðuna hægra megin sem

limx→0+⁢−sin2⁢xx⁢cos⁡x=limx→0+⁢[sin⁡xx·(−tan⁡x)]=(limx→0+⁢sin⁡xx)·(limx→0+⁢(−tan⁡x))=1·0=0.

Við ályktum að limx→0+⁢ln⁡y=0. Því er ln⁡(limx→0+⁢y)=0 og við höfum

limx→0+⁢y=limx→0+⁢xsin⁡x=e0=1.

Því gildir

limx→0+⁢xsin⁡x=1.

Stöðumat 4.43

Reiknið limx→0+⁢xx.

Vaxtarhraði falla

Gerum ráð fyrir að föllin f og g stefni bæði á óendanlegt þegar x→∞. Þótt gildi beggja fallanna geti orðið eins stór og óskað er þegar x verður nægilega stórt, vex annað fallið stundum hraðar en hitt. Til dæmis stefna f⁡(x)=x2 og g⁡(x)=x3 bæði á óendanlegt þegar x→∞. Eins og eftirfarandi tafla sýnir vaxa gildi x3 þó mun hraðar en gildi x2.

x1010010001 0 , 0 0 0 10.000
f ⁡ ( x ) = x 21001 0 , 0 0 0 10.0001 , 0 0 0 , 0 0 0 1.000.0001 0 0 , 0 0 0 , 0 0 0 100.000.000
g ⁡ ( x ) = x 310001 , 0 0 0 , 0 0 0 1.000.0001 , 0 0 0 , 0 0 0 , 0 0 0 1.000.000.0001 , 0 0 0 , 0 0 0 , 0 0 0 , 0 0 0 1.000.000.000.000

Raunar gildir

limx→∞⁢x3x2=limx→∞⁢x=∞.eða, sem er jafngilt,limx→∞⁢x2x3=limx→∞⁢1x=0.

Því segjum við að x3 vaxi hraðar en x2 þegar x→∞. Ef hins vegar f⁡(x)=x2 og g⁡(x)=3⁢x2+4⁢x+1, eru gildi g⁡(x) alltaf stærri en gildi f⁡(x) þegar x>0, en hlutfallið milli gildis g⁡(x) og samsvarandi gildis f⁡(x) nálgast 3 þegar x→∞, eins og eftirfarandi tafla sýnir. Raunar

limx→∞⁢x23⁢x2+4⁢x+1=13.
x1010010001 0 , 0 0 0 10.000
f ⁡ ( x ) = x 21001 0 , 0 0 0 10.0001 , 0 0 0 , 0 0 0 1.000.0001 0 0 , 0 0 0 , 0 0 0 100.000.000
g ⁡ ( x ) = 3 ⁢ x 2 + 4 ⁢ x + 13413 0 , 4 0 1 30.4013 , 0 0 4 , 0 0 1 3.004.0013 0 0 , 0 4 0 , 0 0 1 300.040.001

Í þessu tilviki segjum við að x2 og 3⁢x2+4⁢x+1 vaxi jafnhratt þegar x→∞.

Gerum nú almennt ráð fyrir að f og g séu tvö föll sem stefna á óendanlegt þegar x→∞. Við segjum að g vaxi hraðar en f þegar x→∞ ef

limx→∞⁢g⁡(x)f⁡(x)=∞;eða, sem er jafngilt,limx→∞⁢f⁡(x)g⁡(x)=0.

Ef hins vegar er til fasti M≠0 þannig að

limx→∞⁢f⁡(x)g⁡(x)=M,

segjum við að f og g vaxi jafnhratt þegar x→∞.

Næst sjáum við hvernig nota má reglu l’Hôpital til að bera saman vaxtarhraða veldisfalla, vísisfalla og lografalla.

Dæmi 4.45

Samanburður á vaxtarhraða ln ⁡ ( x ) , x 2 , sem og e x

Notið reglu l’Hôpital fyrir hvert eftirfarandi fallapar til að reikna limx→∞⁢(f⁡(x)g⁡(x)).

  1. f⁡(x)=x2ogg⁡(x)=ex
  2. f⁡(x)=ln⁡(x)ogg⁡(x)=x2

Lausn

  1. Þar sem limx→∞⁢x2=∞ og limx→∞⁢ex=∞, getum við notað reglu l’Hôpital til að reikna limx→∞⁢[x2ex]. Við fáum
    limx→∞⁢x2ex=limx→∞⁢2⁢xex.

    Þar sem limx→∞⁢2⁢x=∞ og limx→∞⁢ex=∞, getum við beitt reglu l’Hôpital aftur. Þar sem
    limx→∞⁢2⁢xex=limx→∞⁢2ex=0,

    ályktum við að
    limx→∞⁢x2ex=0.

    Því vex ex hraðar en x2 þegar x→∞ (sjá mynd 4.73 og töflu 4.9).
    Gröf fallanna g(x) = eˣ og f(x) = x² eru sýnd. Greinilegt er að g(x) vex mun hraðar en f(x).
    Mynd 4.73 Vísisfall vex hraðar en veldisfall.
    x 5 10 15 20
    x2 25 100 225 400
    ex 148 22.026 3.269.017 485.165.195
    Tafla 4.9 Vaxtarhraði veldisfalls og vísisfalls.
  2. Þar sem limx→∞⁢ln⁡x=∞ og limx→∞⁢x2=∞, getum við notað reglu l’Hôpital til að reikna limx→∞⁢ln⁡xx2. Við fáum
    limx→∞⁢ln⁡xx2=limx→∞⁢1/x2⁢x=limx→∞⁢12⁢x2=0.

    Því vex x2 hraðar en ln⁡x þegar x→∞ (sjá mynd 4.74 og töflu 4.10).
    Gröf fallanna g(x) = x² og f(x) = ln(x) eru sýnd. Greinilegt er að g(x) vex mun hraðar en f(x).
    Mynd 4.74 Veldisfall vex hraðar en lografall.
    x 10 100 1000 10.000
    ln⁡(x) 2,303 4,605 6,908 9,210
    x2 100 10.000 1.000.000 100.000.000
    Tafla 4.10 Vaxtarhraði veldisfalls og lografalls

Stöðumat 4.44

Berið saman vaxtarhraða x100 og 2x.

Með sömu hugmyndum og í dæmi 4.45a-lið er ekki erfitt að sýna að ex vex hraðar en xp fyrir sérhvert p>0. Á mynd 4.75 og í töflu 4,11 berum við ex saman við x3 og x4 þegar x→∞.

Myndin skiptist í a- og b-hluta. Í a-hluta eru gröf fallanna y = eˣ og y = x³ sýnd; eˣ vex greinilega hraðar en x³. Í b-hluta eru gröf fallanna y = eˣ og y = x⁴ sýnd. Þar vex eˣ einnig mun hraðar en x⁴, en munurinn verður greinilegur lengra til hægri á grafinu en í samanburðinum við x³.
Mynd 4.75. Vísisfallið ex vex hraðar en xp fyrir sérhvert p>0. (a) Samanburður á ex og x3. (b) Samanburður á ex og x4.
x5101520
x 3125100033758000
x 46251 0 , 0 0 0 10.0005 0 , 6 2 5 50.6251 6 0 , 0 0 0 160.000
e x1482 2 , 0 2 6 22.0263 , 2 6 9 , 0 1 7 3.269.0174 8 5 , 1 6 5 , 1 9 5 485.165.195

Á sama hátt er ekki erfitt að sýna að xp vex hraðar en ln⁡x fyrir sérhvert p>0. Á mynd 4.76 og í töflu 4.12 berum við ln⁡x saman við x3 og x.

Myndin sýnir y = kvaðratrótina af x, y = teningsrótina af x og y = ln(x). Ljóst er að y = ln(x) vex hægar en hvort þessara falla um sig.
Mynd 4.76. Fallið y=ln⁡(x) vex hægar en xp fyrir sérhvert p>0 þegar x→∞.
x1010010001 0 , 0 0 0 10.000
ln⁡(x)2,3034,6056,9089,210
x 32,1544,6421021,544
x3,1621031,623100

Æfingar úr kafla 4.8

Reiknið markgildin í eftirfarandi æfingum.

356.

Reiknið markgildið limx→∞⁢exx.

357.

Reiknið markgildið limx→∞⁢exxk.

358.

Reiknið markgildið limx→∞⁢ln⁡xxk.

359.

Reiknið markgildið limx→a⁢x−ax2−a2,a≠0.

360.

Reiknið markgildið limx→a⁢x−ax3−a3,a≠0.

361.

Reiknið markgildið limx→a⁢x−axn−an,a≠0.

Ákvarðið í eftirfarandi æfingum hvort hægt sé að beita reglu l’Hôpital beint. Útskýrið hvers vegna eða hvers vegna ekki. Tilgreinið síðan hvort breyta megi markgildinu þannig að hægt sé að beita reglunni.

362.

limx→0+⁢x2⁢ln⁡x

363.

limx→∞⁢x1/x

364.

limx→0⁢x2/x

365.

limx→0⁢x21/x

366.

limx→∞⁢exx

Reiknið markgildin í eftirfarandi æfingum, annaðhvort með reglu l’Hôpital eða aðferðum sem þið hafið áður lært.

367.

limx→3⁢x2−9x−3

368.

limx→3⁢x2−9x+3

369.

limx→0⁢(1+x)−2−1x

370.

limx→π/2⁢cos⁡xπ2−x

371.

limx→π⁢x−πsin⁡x

372.

limx→1⁢x−1sin⁡x

373.

limx→0⁢(1+x)n−1x

374.

limx→0⁢(1+x)n−1−n⁢xx2

375.

limx→0⁢sin⁡x−tan⁡xx3

376.

limx→0⁢1+x−1−xx

377.

limx→0⁢ex−x−1x2

378.

limx→0+⁢tan⁡xx

379.

limx→1⁢x−1ln⁡x

380.

limx→0⁢(x+1)1/x

381.

limx→1⁢x−x3x−1

382.

limx→0+⁢x2⁢x

383.

limx→∞⁢x⁢sin⁡(1x)

384.

limx→0⁢sin⁡x−xx2

385.

limx→0+⁢x⁢ln⁡(x4)

386.

limx→∞⁢(x−ex)

387.

limx→∞⁢x2⁢e−x

388.

limx→0⁢3x−2xx

389.

limx→0⁢1+1/x1−1/x

390.

limx→π/4⁢(1−tan⁡x)⁢cot⁡x

391.

limx→∞⁢x⁢e1/x

392.

limx→0+⁢x1/cos⁡x

393.

limx→0+⁢x1/x

394.

limx→0-⁢(1−1x)x

395.

limx→∞⁢(1−1x)x

Notið reiknivél í eftirfarandi æfingum til að teikna graf fallsins og áætla markgildið. Beitið síðan reglu l’Hôpital til að finna markgildið beint.

396.

[T] limx→0⁢ex−1x

397.

[T] limx→0⁢x⁢sin⁡(1x)

398.

[T] limx→1⁢x−11−cos⁡(π⁢x)

399.

[T] limx→1⁢e(x−1)−1x−1

400.

[T] limx→1⁢(x−1)2ln⁡x

401.

[T] limx→π⁢1+cos⁡xsin⁡x

402.

[T] limx→0⁢(csc⁡x−1x)

403.

[T] limx→0+⁢tan⁡(xx)

404.

[T] limx→0+⁢ln⁡xsin⁡x

405.

[T] limx→0⁢ex−e−xx

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/calculus-volume-1/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

4.7 Hagnýt bestunarverkefni

NÆSTI KAFLI

4.9 Aðferð Newtons