Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 1.1 Nálgun flatarmáls
    3. 1.2 Ákveðið heildi
    4. 1.3 Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar
    5. 1.4 Heildunarreglur og setningin um heildarbreytingu
    6. 1.5 Innsetning
    7. 1.6 Heildi með vísis- og lograföllum
    8. 1.7 Heildi sem skila andhverfum hornaföllum
    9. Lykilhugtök
    10. Lykiljöfnur
    11. Meginatriði
    12. Yfirlitsverkefni
  2. A | Heildistafla
  3. B | Afleiðutafla
  4. C | Upprifjun fyrir stærðfræðigreiningu
  5. Atriðisorðaskrá

Bókin og glærur

Sækja bókina (PDF)PowerPoint-glærur
Stærðfræðigreining 2. bindi (IS)1 Heildun

1.3 Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar

Námsmarkmið

  • 1.3.1 Lýsið merkingu meðalgildissetningarinnar fyrir heildi.
  • 1.3.2 Útskýrið merkingu 1. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar.
  • 1.3.3 Notið 1. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar til að reikna afleiður heilda.
  • 1.3.4 Útskýrið merkingu 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar.
  • 1.3.5 Notið 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar til að reikna ákveðin heildi.
  • 1.3.6 Útskýrið sambandið milli deildunar og heildunar.

Í tveimur fyrri undirköflunum skoðuðum við ákveðna heildið og tengsl þess við flatarmálið undir ferli falls. Enn sem komið er höfum við því miður aðeins tvö verkfæri til að reikna gildi ákveðins heildis: rúmfræðiformúlur fyrir flatarmál og markgildi Riemann-summa. Báðar aðferðirnar eru afar fyrirhafnarsamar. Í þessum undirkafla skoðum við öflugri og gagnlegri aðferðir til að reikna ákveðin heildi.

Þessar nýju aðferðir byggjast á tengslum milli deildunar og heildunar. Sir Isaac Newton og Gottfried Wilhelm Leibniz voru meðal þeirra sem uppgötvuðu og rannsökuðu þessi tengsl seint á 1600-árunum og snemma á 1700-árunum. Tengslin eru sett fram í því sem við köllum nú undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar. Hún er í tveimur hlutum sem við skoðum í þessum undirkafla. Heitið eitt sýnir hve miklu máli setningin skiptir fyrir alla þróun stærðfræðigreiningarinnar.

Miðlar

Framlag Isaacs Newtons til stærðfræði og eðlisfræði breytti sýn okkar á heiminn. Tengslin sem hann uppgötvaði og setti fram sem lögmál Newtons og almenna þyngdarlögmálið eru enn kennd sem undirstöðuefni í eðlisfræði. Stærðfræðigreining hans lagði jafnframt grunn að heilum greinum stærðfræðinnar. Lesið stutta ævisögu Newtons með margmiðlunarefni til að fræðast nánar.

Áður en við snúum okkur að þessari veigamiklu setningu skulum við þó skoða aðra mikilvæga setningu: meðalgildissetninguna fyrir heildi. Hún er nauðsynleg til að sanna undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar.

Meðalgildissetningin fyrir heildi

Meðalgildissetningin fyrir heildi segir að samfellt fall á lokuðu bili taki meðalgildi sitt í einhverjum punkti á bilinu. Setningin tryggir að ef f(x) er samfellt, þá sé til punktur c á bili [a,b] þannig að gildi fallsins í c sé jafnt meðalgildi f(x) á [a,b]. Við setjum setninguna fram stærðfræðilega með hjálp formúlunnar fyrir meðalgildi falls sem við settum fram í lok undirkaflans á undan.

Setning 1.3

Meðalgildissetningin fyrir heildi

Ef f(x) er samfellt á bili [a,b], þá er til að minnsta kosti einn punktur c∈[a,b] þannig að

f(c)=1b−a∫abf(x)dx.
(1.15)

Þessa formúlu má einnig rita sem

∫abf(x)dx=f(c)(b−a).

Sönnun

Þar sem f(x) er samfellt á [a,b], tekur það lággildi og hágildi samkvæmt útgildissetningunni (sjá Hágildi og lággildi). Gildin eru m og M, í þeirri röð, á [a,b]. Fyrir öll x á [a,b], gildir m≤f(x)≤M. Samkvæmt samanburðarsetningunni (sjá Ákveðið heildi) fæst því

m(b−a)≤∫abf(x)dx≤M(b−a).

Deilum með b−a og fáum

m≤1b−a∫abf(x)dx≤M.

Þar sem 1b−a∫abf(x)dx er tala á milli m og M og f(x) er samfellt og tekur gildin m og M á [a,b], er samkvæmt milligildissetningunni (sjá Samfelldni) til tala c á [a,b] þannig að

f(c)=1b−a∫abf(x)dx,

og sönnuninni er lokið.

□

Dæmi 1.15

Meðalgildi falls fundið

Finnið meðalgildi fallsins f(x)=8−2x á bilinu [0,4] og finnið c þannig að f(c) sé jafnt meðalgildi fallsins á [0,4].

Lausn

Samkvæmt formúlunni fæst meðalgildi f(x) með

1 4 − 0 ∫ 0 4 ( 8 − 2 x ) d x .

Við sjáum á mynd 1.26 að graf fallsins er bein lína sem myndar rétthyrndan þríhyrning sem afmarkast af x- og y-ásunum. Flatarmál þríhyrningsins er A=12(grunnlína)(hæð). Þá fæst

A = 1 2 ( 4 ) ( 8 ) = 16 .

Meðalgildið fæst með því að margfalda flatarmálið með 1/(4−0). Því er meðalgildi fallsins

1 4 ( 16 ) = 4 .

Jöfnum meðalgildið við f(c) og leysum jöfnuna með tilliti til c.

8 − 2 c = 4 c = 2

Þegar c=2,f(2)=4.

Graf minnkandi línunnar f(x) = 8 – 2x á [-1; 4,5]. Línan y=4 er teiknuð á [0,4] og sker fyrri línuna í (2,4). Lína er dregin frá (2,4) niður að x-ásnum og frá (4,4) að y-ásnum. Svæðið undir y=4 er skyggt.
Mynd 1.26. Samkvæmt meðalgildissetningunni tekur samfellda fallið f(x) meðalgildi sitt í c að minnsta kosti einu sinni á lokuðu bili.

Stöðumat 1.14

Finnið meðalgildi fallsins f(x)=x2 á bilinu [0,6] og finnið c þannig að f(c) sé jafnt meðalgildi fallsins á [0,6].

Dæmi 1.16

Punktur fundinn þar sem fall tekur meðalgildi sitt

Gefið er að ∫03x2dx=9, og finnið c þannig að f(c) sé jafnt meðalgildi f(x)=x2 á [0,3].

Lausn

Við leitum að gildi c þannig að

f ( c ) = 1 3 − 0 ∫ 0 3 x 2 d x = 1 3 ( 9 ) = 3 .

Í stað f(c) setjum við c2 og fáum

c 2 = 3 c = ± 3 .

Þar sem −3 er utan bilsins tökum við aðeins jákvæða gildið. Því fæst c=3 (mynd 1.27).

Graf fleygbogans f(x) = x^2 á [-2, 3]. Svæðið undir ferlinum og ofan x-ássins er skyggt og punkturinn (sqrt(3), 3) er merktur.
Mynd 1.27. Á bilinu [0,3], tekur fallið f(x)=x2 meðalgildi sitt í c=3.

Stöðumat 1.15

Gefið er að ∫03(2x2−1)dx=15, og finnið c þannig að f(c) sé jafnt meðalgildi f(x)=2x2−1 á [0,3].

Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 1. hluti: Heildi og stofnföll

Eins og áður hefur komið fram er undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar afar öflug. Hún lýsir sambandinu milli deildunar og heildunar og gerir okkur kleift að reikna ákveðin heildi án þess að nota Riemann-summur eða reikna flatarmál. Setningin er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn, 1. hluti undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar, er settur fram hér. 1. hluti lýsir sambandinu milli deildunar og heildunar.

Setning 1.4

Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 1. hluti

Ef f(x) er samfellt á bili [a,b], og fallið F(x) er skilgreint með

F(x)=∫axf(t)dt,
(1.16)

þá gildir F′(x)=f(x) á ]a,b[.

Áður en við förum nánar út í sönnunina er rétt að nefna tvö fíngerð atriði. Fyrra atriðið varðar táknunina. Við höfum skilgreint fallið F(x), sem ákveðið heildi annars falls, f(t), frá a til x. Við fyrstu sýn getur þetta virst ruglingslegt, því við höfum oft sagt að ákveðið heildi sé tala en hér virðist það vera fall. Lykilatriðið er að fyrir hvert tiltekið gildi x er ákveðna heildið tala. Fallið F(x) skilar því tölu, gildi ákveðna heildisins, fyrir hvert gildi x.

Í öðru lagi er vert að nefna nokkrar helstu afleiðingar setningarinnar. Hún er ekki að ástæðulausu kölluð undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar. Hún staðfestir ekki aðeins tengsl heildunar og deildunar heldur tryggir einnig að hvert heildanlegt fall eigi sér stofnfall.

Sönnun

Notum skilgreiningu afleiðunnar og fáum

F′(x)=limh→0F(x+h)−F(x)h=limh→01h[∫ax+hf(t)dt−∫axf(t)dt]=limh→01h[∫ax+hf(t)dt+∫xaf(t)dt]=limh→01h∫xx+hf(t)dt.

Ef við skoðum síðustu stæðuna vandlega sjáum við að 1h∫xx+hf(t)dt er einmitt meðalgildi fallsins f(x) á bilinu [x,x+h]. Samkvæmt meðalgildissetningunni fyrir heildi er því til tala c í [x,x+h] þannig að

1h∫xx+hf(x)dx=f(c).

Þar að auki er c milli x og x + h. Af því leiðir að c stefnir á x þegar h stefnir á núll. Þar sem f(x) er samfellt gildir limh→0f(c)=limc→xf(c)=f(x). Setjum nú alla þessa hluta saman og fáum

F′(x)=limh→01h∫xx+hf(x)dx=limh→0f(c)=f(x),

og sönnuninni er lokið.

□

Dæmi 1.17

Afleiða fundin með undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar

Notið 1. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar til að finna afleiðu

g(x)=∫1x1t3+1dt.

Lausn

Samkvæmt undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar er afleiðan gefin með

g ′ ( x ) = 1 x 3 + 1 .

Stöðumat 1.16

Notið 1. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar til að finna afleiðu g(r)=∫0rx2+4dx.

Dæmi 1.18

Afleiður reiknaðar með undirstöðusetningunni og keðjureglunni

Látum F(x)=∫1xsintdt. Finnið F′(x).

Lausn

Látum u(x)=x, þá fæst F(x)=∫1u(x)sintdt. Samkvæmt undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar og keðjureglunni fæst því

F ′ ( x ) = sin ( u ( x ) ) d u d x = sin ( u ( x ) ) · ( 1 2 x −1 / 2 ) = sin x 2 x .

Stöðumat 1.17

Látum F(x)=∫1x3costdt. Finnið F′(x).

Dæmi 1.19

Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar notuð með tveimur breytilegum heildismörkum

Látum F(x)=∫x2xt3dt. Finnið F′(x).

Lausn

Gefið er F(x)=∫x2xt3dt. Bæði heildismörkin eru breytileg og því þurfum við að skipta heildinu í tvennt. Þá fæst

F ( x ) = ∫ x 2 x t 3 d t = ∫ x 0 t 3 d t + ∫ 0 2 x t 3 d t = − ∫ 0 x t 3 d t + ∫ 0 2 x t 3 d t .

Deildum fyrri liðinn og fáum

d d x [ − ∫ 0 x t 3 d t ] = − x 3 .

Til að deilda síðari liðinn látum við fyrst u(x)=2x. Þá fæst

d d x [ ∫ 0 2 x t 3 d t ] = d d x [ ∫ 0 u ( x ) t 3 d t ] = ( u ( x ) ) 3 d u d x = ( 2 x ) 3 · 2 = 16 x 3 .

Því fæst

F ′ ( x ) = d d x [ − ∫ 0 x t 3 d t ] + d d x [ ∫ 0 2 x t 3 d t ] = − x 3 + 16 x 3 = 15 x 3 .

Stöðumat 1.18

Látum F(x)=∫xx2costdt. Finnið F′(x).

Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 2. hluti: Reiknisetningin

2. hluti undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar er ef til vill mikilvægasta setning stærðfræðigreiningarinnar. Eftir þrotlaust starf stærðfræðinga í um 500 ár komu fram nýjar aðferðir sem gáfu vísindafólki nauðsynleg verkfæri til að skýra fjölmörg fyrirbæri. Með stærðfræðigreiningu gátu stjörnufræðingar loks ákvarðað fjarlægðir í geimnum og kortlagt brautir reikistjarna. Nú var hægt að leysa dagleg fjármálaverkefni, svo sem að reikna jaðarkostnað eða spá fyrir um heildarhagnað, á einfaldan og nákvæman hátt. Verkfræðingar gátu reiknað beygjustyrk efna eða þrívíða hreyfingu hluta. Stærðfræðigreining breytti sýn okkar á heiminn til frambúðar.

Eftir að við höfum nálgað flatarmál með því að leggja saman flatarmál n rétthyrninga er einfalt í samanburði að nota þessa setningu. Það virðist næstum of einfalt að reikna megi flatarmál heils svæðis sem afmarkast af bognum ferli með því einu að reikna gildi stofnfalls í báðum endapunktum bilsins.

Setning 1.5

Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, 2. hluti

Ef f er samfellt á bilinu [a,b] og F(x) er eitthvert stofnfall f(x), þá

∫abf(x)dx=F(b)−F(a).
(1.17)

Táknunin F(x)|ab er oft notuð fyrir stæðuna F(b)−F(a). Lóðrétta strikið og mörkin a og b merkja að reikna skuli gildi fallsins F(x) við efra markið, hér b, og draga frá gildi fallsins F(x) við neðra markið, hér a.

2. hluti undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar, sem einnig kallast reiknisetningin, segir að ef við getum fundið stofnfall heildisstofnsins megi reikna ákveðna heildið með því að reikna gildi stofnfallsins í endapunktum bilsins og draga gildið í neðri endapunktinum frá gildinu í þeim efri.

Sönnun

Látum P={xi},i=0,1,…,n vera reglulega skiptingu á [a,b]. Þá getum við skrifað

F(b)−F(a)=F(xn)−F(x0)=[F(xn)−F(xn−1)]+[F(xn−1)−F(xn−2)]+…+[F(x1)−F(x0)]=∑i=1n[F(xi)−F(xi−1)].

Þar sem F er stofnfall f á [a,b], má samkvæmt meðalgildissetningunni (sjá Meðalgildissetninguna) fyrir i=0,1,…,n finna ci í [xi−1,xi] þannig að

F(xi)−F(xi−1)=F′(ci)(xi−xi−1)=f(ci)Δx.

Setjum þetta inn í jöfnuna hér á undan og fáum

F(b)−F(a)=∑i=1nf(ci)Δx.

Tökum markgildi beggja hliða þegar n→∞, og fáum

F(b)−F(a)=limn→∞∑i=1nf(ci)Δx=∫abf(x)dx.

□

Dæmi 1.20

Heildi reiknað með undirstöðusetningu stærðfræðigreiningarinnar

Notið 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar til að reikna

∫−22(t2−4)dt.

Lausn

Rifjum upp veldisregluna fyrir stofnföll:

Ef y = x n , ∫ x n d x = x n + 1 n + 1 + C .

Finnum stofnfall fallsins með þessari reglu og notum síðan setninguna. Þá fæst

∫ −2 2 ( t 2 − 4 ) d t = t 3 3 − 4 t | −2 2 = [ ( 2 ) 3 3 − 4 ( 2 ) ] − [ ( −2 ) 3 3 − 4 ( −2 ) ] = ( 8 3 − 8 ) − ( − 8 3 + 8 ) = 8 3 − 8 + 8 3 − 8 = 16 3 − 16 = − 32 3 .

Greining

Takið eftir að við tókum liðinn „+ C“ ekki með þegar við rituðum stofnfallið. Ástæðan er sú að samkvæmt 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar má nota hvaða stofnfall sem er. Til einföldunar völdum við því stofnfallið þar sem C=0. Hefðum við valið annað stofnfall hefði fastaliðurinn fallið út. Þetta gerist alltaf þegar við reiknum ákveðið heildi.

Svæðið sem við vorum að reikna er sýnt á mynd 1.28. Takið eftir að allt svæðið milli ferilsins og x-ássins liggur neðan x-ássins. Flatarmál er alltaf jákvætt en ákveðið heildi getur engu að síður gefið neikvæða tölu (formerkt flatarmál). Ef fallið væri til dæmis hagnaðarfall gæfi neikvæð tala til kynna að fyrirtækið væri rekið með tapi á gefna bilinu.

Graf fleygbogans f(t) = t^2 – 4 á [-4, 4]. Svæðið ofan ferilsins og neðan x-ássins á [-2, 2] er skyggt.
Mynd 1.28. Útreikningur ákveðins heildis getur gefið neikvætt gildi, þótt flatarmál sé alltaf jákvætt.

Dæmi 1.21

Ákveðið heildi reiknað með 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar

Reiknið eftirfarandi heildi með 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar:

∫19x−1xdx.

Lausn

Fyrst ritum við heildið með ræðum veldisvísum til að losna við rótarmerkið. Síðan skiptum við brotinu upp og ritum hvern lið teljarans yfir nefnaranum:

∫ 1 9 x − 1 x 1 / 2 d x = ∫ 1 9 ( x x 1 / 2 − 1 x 1 / 2 ) d x .

Einföldum með veldisreglunum:

∫ 1 9 ( x x 1 / 2 − 1 x 1 / 2 ) d x = ∫ 1 9 ( x 1 / 2 − x −1 / 2 ) d x .

Heildum nú með veldisreglunni:

∫ 1 9 ( x 1 / 2 − x − 1 / 2 ) d x = ( x 3 / 2 3 2 − x 1 / 2 1 2 ) | 1 9 = [ ( 9 ) 3 / 2 3 2 − ( 9 ) 1 / 2 1 2 ] − [ ( 1 ) 3 / 2 3 2 − ( 1 ) 1 / 2 1 2 ] = [ 2 3 ( 27 ) − 2 ( 3 ) ] − [ 2 3 ( 1 ) − 2 ( 1 ) ] = 18 − 6 − 2 3 + 2 = 40 3 .

Sjá mynd 1.29.

Graf fallsins f(x) = (x-1) / sqrt(x) á [0,9]. Svæðið undir grafinu á [1,9] er skyggt.
Mynd 1.29. Flatarmálið undir ferlinum frá x=1 til x=9 má reikna með ákveðnu heildi.

Stöðumat 1.19

Notið 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar til að reikna ∫12x−4dx.

Dæmi 1.22

Kapphlaup á hjólaskautum

James og Kathy keppa á hjólaskautum eftir langri og beinni braut. Sá sem hefur farið lengst eftir 5 sekúndur vinnur verðlaun. James getur skautað með hraðanum f(t)=3+0,8t m/s og Kathy með hraðanum g(t)=5+cos(π2t) m/s. Hvort þeirra vinnur kapphlaupið?

Lausn

Við þurfum að heilda bæði föllin á bilinu [0,5] og athuga hvort þeirra gefur stærra gildi. Fyrir James viljum við reikna

∫ 0 5 ( 3 + 0,8 t ) d t .

Notum veldisregluna og fáum

∫ 0 5 ( 3 + 0,8 t ) d t = ( 3 t + 0,4 t 2 ) | 0 5 = ( 15 + 10 ) = 25.

James hefur því skautað 25 metra eftir 5 sekúndur. Snúum okkur nú að Kathy og reiknum

∫ 0 5 5 + cos ( π 2 t ) d t .

Við vitum að sint er stofnfall cost, og því er eðlilegt að ætla að stofnfall cos(π2t) feli í sér sin(π2t). Þegar við deildum sin(π2t), fáum við hins vegar π2cos(π2t) vegna keðjureglunnar og því verðum við að taka tillit til þessa viðbótarstuðuls þegar við heildum. Við fáum

∫ 0 5 5 + cos ( π 2 t ) d t = ( 5 t + 2 π sin ( π 2 t ) ) | 0 5 = ( 25 + 2 π ) − ( 0 − 2 π sin 0 ) ≈ 25,6.

Kathy hefur skautað um það bil 25,6 metra eftir 5 sekúndur. Kathy vinnur, en naumlega!

Stöðumat 1.20

Gerum ráð fyrir að James og Kathy keppi aftur en nú stöðvi dómarinn keppnina eftir aðeins 3 sekúndur. Breytir það úrslitunum?

Nemendaverkefni

Fallhlífarstökkvari í frjálsu falli

Tveir fallhlífarstökkvarar í frjálsu falli.
Mynd 1.30. Fallhlífarstökkvarar geta stillt fallhraðann með því að breyta líkamsstöðu sinni í frjálsu falli. (Mynd: Jeremy T. Lock)

Julie er áhugasöm fallhlífarstökkkona. Hún hefur stokkið oftar en 300 sinnum og náð fullum tökum á að stilla líkamsstöðu sína í loftinu til að stjórna fallhraðanum. Ef hún fettir bakið og snýr kviðnum að jörðinni nær hún lokahraða sem er um það bil 176 km/klst (49 m/s). Ef hún snýr sér hins vegar með höfuðið beint niður fellur hún hraðar og nær lokahraðanum um 212 km/klst (58,8 m/s).

Julie hreyfist niður á við (hún fellur) og því látum við niðurstefnuna vera jákvæða til að einfalda útreikningana. Julie stekkur úr 4000 metra hæð. Um leið og hún yfirgefur flugvélina tekur hún að falla með hraðanum v(t)=9,8t. Hraði hennar heldur áfram að aukast samkvæmt þessu hraðafalli þar til hún nær lokahraða. Eftir það helst hraði hennar óbreyttur þar til hún togar í opnunarstrenginn og hægir á sér fyrir lendingu.

Í fyrsta stökki dagsins kemur Julie sér fyrir í hægari stöðunni „með kviðinn niður“ (lokahraðinn er 49 m/s). Notið þessar upplýsingar til að svara eftirfarandi spurningum.

  1. Hve löngu eftir að Julie yfirgefur flugvélina nær hún lokahraða?
  2. Notið svarið við spurningu 1 og setjið fram stæðu með einu eða fleiri heildum sem táknar vegalengdina sem Julie fellur á 30 sekúndum.
  3. Hve lengi er Julie í frjálsu falli ef hún togar í opnunarstrenginn í 1000 metra hæð?
  4. Julie togar í opnunarstrenginn í 1000 metra hæð. Það tekur fallhlífina 5 sekúndur að opnast að fullu og hægja á falli hennar. Á þeim tíma fellur hún um 120 metra til viðbótar. Þegar fallhlífin er fullopin hefur hraði hennar minnkað í 5 m/s. Finnið heildartímann sem Julie er í loftinu, frá því að hún yfirgefur flugvélina þar til fætur hennar snerta jörðina.
    Í öðru stökki dagsins ákveður Julie að falla örlítið hraðar og kemur sér fyrir í stöðunni „með höfuðið niður“. Lokahraði hennar í þeirri stöðu er 58,8 m/s. Svarið eftirfarandi spurningum miðað við þennan hraða:
  5. Hve lengi er Julie að ná lokahraða í þessu tilviki?
  6. Áður en Julie togar í opnunarstrenginn snýr hún sér aftur í stöðuna „með kviðinn niður“ svo hún fari ekki alveg eins hratt þegar fallhlífin opnast. Ef hún byrjar að snúa sér í 1300 metra hæð, hve lengi er hún þá í frjálsu falli fram að því?
    Sumir fallhlífarstökkvarar klæðast „vængjabúningum“ (sjá mynd 1.31). Þessir búningar eru með dúkflötum milli handleggja og fótleggja sem gera stökkvaranum kleift að svífa í frjálsu falli, líkt og flugíkorni. (Búningarnir eru reyndar stundum kallaðir „flugíkornabúningar“.) Í slíkum búningi getur lokahraðinn minnkað í um 70 km/klst (19,6 m/s) og því gefst stökkvaranum mun lengri tími í loftinu. Fólk í vængjabúningum notar þó enn fallhlíf við lendingu. Þótt lóðrétti hraðinn sé innan öryggismarka getur lárétti hraðinn farið yfir 110 km/klst, sem er allt of hratt fyrir örugga lendingu.
Einstaklingur fellur í vængjabúningi sem dregur úr lóðréttum fallhraða fallhlífarstökkvarans.
Mynd 1.31. Dúkfletirnir milli handleggja og fótleggja á vængjabúningi draga úr lóðréttum fallhraða fallhlífarstökkvara. (Mynd: Richard Schneider)

Svarið eftirfarandi spurningu miðað við hraðann í vængjabúningi.

  1. Hve lengi getur Julie svifið um loftið ef hún klæðist vængjabúningi fyrir þriðja stökk dagsins og togar í opnunarstrenginn í 1000 metra hæð?

Æfingar í undirkafla 1.3

144.

Skoðið tvo íþróttamenn sem hlaupa á breytilegum hraða, v1(t) og v2(t). Hlaupararnir hefja kapphlaupið og ljúka því á nákvæmlega sama tíma. Útskýrið hvers vegna þeir hljóta einhvern tímann að hlaupa á sama hraða.

145.

Tveir fjallgöngumenn hefja göngu sína í grunnbúðum og fara hvor sína leið, aðra brattari en hina, en ná á tindinn á nákvæmlega sama tíma. Er víst að til sé tímapunktur þegar báðir hækka sig með sama hraða?

146.

Til að aka inn á tiltekinn veggjaldaveg þarf ökumaður að taka kort sem tilgreinir kílómetramerkið við innkeyrsluna. Kortið er einnig tímastimplað. Við útkeyrsluna greiðir ökumaðurinn veggjaldið og fær sér til undrunar hraðasekt um leið. Útskýrið hvernig þetta getur gerst.

147.

Látum F(x)=∫1x(1−t)dt. Finnið F′(2) og meðalgildi F′ á [1,2].

Notið 1. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar til að finna afleiðurnar í eftirfarandi æfingum.

148.

d d x ∫ 1 x e − t 2 d t

149.

d d x ∫ 1 x e cos t d t

150.

d d x ∫ 3 x 9 − y 2 d y

151.

d d x ∫ 3 x d s 16 − s 2

152.

d d x ∫ x 2 x t d t

153.

d d x ∫ 0 x t d t

154.

d d x ∫ 0 sin x 1 − t 2 d t

155.

d d x ∫ cos x 1 1 − t 2 d t

156.

d d x ∫ 1 x t 2 1 + t 4 d t

157.

d d x ∫ 1 x 2 t 1 + t d t

158.

d d x ∫ 0 ln x e t d t

159.

d d x ∫ 1 e x ln u 2 d u

160.

Hér er sýnt graf y=∫0xf(t)dt, þar sem f er fall sem er fast á köflum.

Graf falls með línulegum hlutum sem liggur um punktana (0, 0), (1, 3), (2, 2), (3, 0), (4, 3), (5, 3) og (6, 2). Svæðið undir fallinu og ofan x-ássins er skyggt.
  1. Á hvaða bilum er f jákvætt? Á hvaða bilum er það neikvætt? Á hvaða bilum, ef einhver eru, er það jafnt og núll?
  2. Hver eru hágildi og lággildi f?
  3. Hvert er meðalgildi f?
161.

Hér er sýnt graf y=∫0xf(t)dt, þar sem f er fall sem er fast á köflum.

Graf falls með línulegum hlutum sem liggur um punktana (0, 0), (1, -1), (2, 1), (3, 1), (4, -2), (5, -2) og (6, 0). Svæðið ofan fallsins en neðan x-ássins á bilunum [0;  1,5] og [3,25;  6] er skyggt. Svæðið undir fallinu en ofan x-ássins á bilinu [1,5;  3,25] er skyggt.
  1. Á hvaða bilum er f jákvætt? Á hvaða bilum er það neikvætt? Á hvaða bilum, ef einhver eru, er það jafnt og núll?
  2. Hver eru hágildi og lággildi f?
  3. Hvert er meðalgildi f?
162.

Hér er sýnt graf y=∫0xℓ(t)dt, þar sem ℓ er fall sem er línulegt á köflum.

Graf falls sem liggur um punktana (0, 0), (1, -1), (2, 1), (3, 3), (4;  3,5), (5, 4) og (6, 2). Svæðið ofan fallsins og neðan x-ássins á [0;  1,8] er skyggt og svæðið undir fallinu og ofan x-ássins er skyggt.
  1. Á hvaða bilum er ℓ jákvætt? Á hvaða bilum er það neikvætt? Á hvaða bilum, ef einhver eru, er það jafnt og núll?
  2. Á hvaða bilum er ℓ vaxandi? Á hvaða bilum er það minnkandi? Á hvaða bilum, ef einhver eru, er það fast?
  3. Hvert er meðalgildi ℓ?
163.

Hér er sýnt graf y=∫0xℓ(t)dt, þar sem ℓ er fall sem er línulegt á köflum.

Graf falls sem liggur um punktana (0, 0), (1, 1), (2, 0), (3, -1), (4,5;  0), (5, 1) og (6, 2). Svæðið undir fallinu og ofan x-ássins á bilunum [0, 2] og [4,5;  6] er skyggt. Svæðið ofan fallsins og neðan x-ássins á bilinu [2;  2,5] er skyggt.
  1. Á hvaða bilum er ℓ jákvætt? Á hvaða bilum er það neikvætt? Á hvaða bilum, ef einhver eru, er það jafnt og núll?
  2. Á hvaða bilum er ℓ vaxandi? Á hvaða bilum er það minnkandi? Á hvaða bilum, ef einhver eru, er það fast?
  3. Hvert er meðalgildi ℓ?

Notið reiknivél í eftirfarandi æfingum til að áætla flatarmálið undir ferlinum með því að reikna T10, meðaltal Riemann-summanna með vinstri og hægri endapunktum fyrir N=10 rétthyrninga. Ákvarðið síðan nákvæmt flatarmál með 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar.

164.

[T] y=x2 á [0,4]

165.

[T] y=x3+6x2+x−5 á [−4,2]

166.

[T] y=x3 á [0,6]

167.

[T] y=x+x2 á [1,9]

168.

[T] ∫(cosx−sinx)dx á [0,π]

169.

[T] ∫4x2dx á [1,4]

Reiknið hvert ákveðið heildi í eftirfarandi æfingum með 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar.

170.

∫ −1 2 ( x 2 − 3 x ) d x

171.

∫ −2 3 ( x 2 + 3 x − 5 ) d x

172.

∫ −2 3 ( t + 2 ) ( t − 3 ) d t

173.

∫ 2 3 ( t 2 − 9 ) ( 4 − t 2 ) d t

174.

∫ 1 2 x 9 d x

175.

∫ 0 1 x 99 d x

176.

∫ 4 8 ( 4 t 5 / 2 − 3 t 3 / 2 ) d t

177.

∫ 1 / 4 4 ( x 2 − 1 x 2 ) d x

178.

∫ 1 2 2 x 3 d x

179.

∫ 1 4 1 2 x d x

180.

∫ 1 4 2 − t t 2 d t

181.

∫ 1 16 d t t 1 / 4

182.

∫ 0 2 π cos θ d θ

183.

∫ 0 π / 2 sin θ d θ

184.

∫ 0 π / 4 sec 2 θ d θ

185.

∫ 0 π / 4 sec θ tan θ d θ

186.

∫ π / 3 π / 4 csc θ cot θ d θ

187.

∫ π / 4 π / 2 csc 2 θ d θ

188.

∫ 1 2 ( 1 t 2 − 1 t 3 ) d t

189.

∫ −2 −1 ( 1 t 2 − 1 t 3 ) d t

Notið reiknisetninguna í eftirfarandi æfingum til að setja heildið fram sem fall F(x).

190.

∫ a x t 2 d t

191.

∫ 1 x e t d t

192.

∫ 0 x cos t d t

193.

∫ − x x sin t d t

Finnið núllstöðvar heildisstofnsins í eftirfarandi æfingum til að losna við algildismerkin og reiknið síðan heildið með 2. hluta undirstöðusetningar stærðfræðigreiningarinnar.

194.

∫ −2 3 | x | d x

195.

∫ −2 4 | t 2 − 2 t − 3 | d t

196.

∫ 0 π | cos t | d t

197.

∫ − π / 2 π / 2 | sin t | d t

198.

Gerum ráð fyrir að fjölda birtustunda á tilteknum degi í Seattle sé lýst með fallinu −3,75cos(πt6)+12,25, þar sem t er gefið upp í mánuðum og t=0 samsvarar vetrarsólstöðum.

  1. Hver er meðalfjöldi birtustunda á sólarhring yfir heilt ár?
  2. Á hvaða tímum t1 og t2, þar sem 0≤t1<t2<12, er fjöldi birtustunda jafn meðalfjöldanum?
  3. Ritið heildi sem lýsir heildarfjölda birtustunda í Seattle á milli t1 og t2.
  4. Reiknið meðalfjölda birtustunda í Seattle milli t1 og t2, þar sem 0≤t1<t2<12, og síðan milli t2 og t1, og sýnið að meðaltal þessara tveggja gilda sé jafnt meðallengd dags.
199.

Gerum ráð fyrir að lýsa megi notkunarhraða bensíns í Bandaríkjunum yfir árið með sínusfalli af gerðinni (42,4−3,8⁢cos(πt6))×109 lítrar á mánuði.

  1. Hver er meðalnotkunin á mánuði og fyrir hvaða gildi t er notkunarhraðinn á tíma t jafn meðalnotkunarhraðanum?
  2. Hve margir lítrar af bensíni eru notaðir í Bandaríkjunum á einu ári?
  3. Ritið heildi sem lýsir meðalnotkun bensíns á mánuði í Bandaríkjunum frá byrjun apríl (t=3) til loka september (t=9).
200.

Ef f er samfellt á [a,b], útskýrið þá hvers vegna til er að minnsta kosti einn punktur c∈[a,b] þannig að f(c)=1b−a∫abf(t)dt.

201.

Ef f er samfellt á [a,b] og er ekki fastafall, útskýrið þá hvers vegna til er að minnsta kosti einn punktur M∈[a,b] þannig að f(M)>1b−a∫abf(t)dt og að minnsta kosti einn punktur m∈[a,b] þannig að f(m)<1b−a∫abf(t)dt.

202.

Fyrsta lögmál Keplers segir að reikistjörnur gangi um sólu á sporbaugsbrautum og að sólin sé í öðrum brennipunkti hverrar brautar. Sá punktur brautar reikistjörnu sem er næstur sólu kallast sólnánd og jörðin er nú í sólnánd um 3. janúar. Fjarlægasti punkturinn kallast sólfirrð en jörðin er nú í sólfirrð um 4. júlí. Annað lögmál Keplers segir að reikistjörnur sópi yfir jafnstór svæði á sporbaugsbraut sinni á jafnlöngum tíma. Það tekur því jafnlangan tíma að fara eftir hvorum boganna tveggja sem merktir eru á eftirfarandi mynd. Á hvaða árstíma fer jörðin hraðast eftir braut sinni? Hvenær fer hún hægast?

Láréttur sporbaugur með merktum brennipunkti. Tveir jafnstórir bogar eru merktir, annar beint til vinstri við brennipunktinn og hinn hinum megin á sporbaugnum. Geirarnir sem afmarkast af brennipunktinum og endapunktum hvors boga eru skyggðir bláir.
203.

Punktur á sporbaug með lengd langáss 2a og lengd skammáss 2b hefur hnitin (acosθ,bsinθ),0≤θ≤2π.

  1. Sýnið að fjarlægðin frá þessum punkti til brennipunktsins (−c,0) er d(θ)=a+ccosθ, þar sem c=a2−b2.
  2. Notið þessi hnit til að sýna að meðalfjarlægðin d– frá punkti á sporbaugnum til brennipunktsins (−c,0), með tilliti til hornsins θ, er a.
204.

Eins og áður kom fram er braut jarðar samkvæmt lögmálum Keplers sporbaugur með sólina í öðrum brennipunktinum. Í sólnánd er fjarlægð jarðar frá sólu 147.098.290 km og í sólfirrð er hún 152.098.232 km.

  1. Leggið langásinn eftir x-ásnum og finnið meðalfjarlægð jarðar frá sólu.
  2. Samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu er stjarnfræðieining (SE) fjarlægðin frá jörðu til sólar og gildi hennar var reiknað sem meðaltal fjarlægðanna við sólnánd og sólfirrð. Er þessi skilgreining réttmæt?
205.

Þyngdaraðdráttarkrafturinn milli sólar og reikistjörnu er F(θ)=GmMr2(θ), þar sem m er massi reikistjörnunnar, M er massi sólar, G er algildur fasti og r(θ) er fjarlægðin milli sólar og reikistjörnunnar þegar reikistjarnan myndar hornið θ við langás brautar sinnar. Gerið ráð fyrir að M, m og sporbaugsstærðirnar a og b (hálflengdir langáss og skammáss) séu gefnar. Setjið fram, en reiknið ekki, heildi sem gefur meðalþyngdaraðdráttarkraftinn milli sólar og reikistjörnunnar sem fall af G,m,M,a,b.

206.

Færsla massa, sem festur er við gorm, frá jafnvægisstöðu uppfyllir jöfnu einfaldrar sveifluhreyfingar x(t)=Acos(ωt−ϕ), þar sem ϕ er fasafasti, ω er horntíðnin og A er útslagið. Finnið meðalhraða, meðalferð (stærð hraðans), meðalfærslu og meðalfjarlægð massans frá jafnvægisstöðu (stærð færslunnar).

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/calculus-volume-2/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

1.2 Ákveðið heildi

NÆSTI KAFLI

1.4 Heildunarreglur og setningin um heildarbreytingu