Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Perlusnekkjan er heillandi skepna. Hún nærist á kuðungakröbbum, fiskum og öðrum krabbadýrum. Hún hefur harða ytri skel með mörgum hólfum sem raðast í kuðungsferil og getur dregið sig inn í skelina til að forðast afræningja. Þegar hluti skeljarinnar er skorinn burt kemur fullkominn kuðungsferill í ljós og hólfin inni í skelinni minna að nokkru leyti á árhringi í tré.
Stærðfræðifallið sem lýsir kuðungsferli má setja fram í rétthyrndum hnitum (eða kartesískum hnitum). Ef við skiptum hins vegar yfir í hnitakerfi sem hentar hringlaga mynstrum betur verður mun einfaldara að lýsa fallinu. Skauthnitakerfið hentar vel til að lýsa ferlum af þessu tagi. Hvernig getum við notað þetta hnitakerfi til að lýsa kuðungsferlum og öðrum geislalaga myndum? (Sjá dæmi 7.14.)
Í þessum kafla rannsökum við einnig stikajöfnur, sem eru þægileg leið til að lýsa ferlum eða stöðu agnar eða hlutar í tveimur víddum sem fall af tíma. Síðar í bókinni notum við stikajöfnur og skauthnit til að lýsa mörgum viðfangsefnum.