Dæmi
Dæmi
19.1 Lögmál Ohms
Dæmi 20. Hvaða spennu þarf til að 6 C hleðsla fari um 100 Ω viðnám á 1 mín?
Dæmi 21. Viðnám fylgja yfirleitt lögmáli Ohms við lágan straum en sýna frávik við hærri straum vegna hitnunar. Gerðu ráð fyrir tilraun þar sem spennan V yfir viðnám er mæld sem fall af straumi I, þar með talið straumum þar sem frávik frá lögmáli Ohms fara að sjást. Fyrir graf af V sem falli af I, hvert eftirfarandi falla hentar best til að fella að gögnunum? Gerðu ráð fyrir að a, b og c séu fastar, ólíkar núlli, sem eru stilltar að gögnunum.
Dæmi 22. Rafhlaða með óþekkta spennu V₁ er tengd yfir viðnám R₁. Þú bætir annarri rafhlöðu, V₂ = 9,0 V, í röð við V₁ þannig að spennan yfir R₁ er nú V₁ + V₂, og mælir 0,3 A straum um R₁. Þú bætir þriðju rafhlöðunni, V₃ = 9,0 V, í röð við fyrstu tvær rafhlöðurnar þannig að spennan yfir R₁ er V₁ + V₂ + V₃, og mælir 0,4 A straum um R₁. Hvert er viðnámið R₁?
19.2 Raðtengdar rafrásir
Dæmi 23. Hvert er spennufallið yfir tvö 80 Ω viðnám sem eru raðtengd þegar 0,15 A straumur fer um þau?
Dæmi 24. Í þessari rás er spennufallið yfir efra viðnámið 4,5 V. Hver er spenna rafhlöðunnar?

19.3 Hliðtengdar rafrásir
Dæmi 25. Hvert er jafngilt viðnám þessarar rásar?

Dæmi 26. Hvert er jafngilt viðnám rásarinnar sem sýnd er hér fyrir neðan?

19.4 Rafafl
Dæmi 27. Þegar 12 V spenna er lögð yfir viðnám eyðir það 120 W rafafli. Hver er straumurinn um viðnámið?
Dæmi 28. Til að hita 1 g af vatni þarf 4,18 J orku fyrir hverja °C. Hve langan tíma tæki að hita 1 L af vatni úr 20 °C í 40 °C ef 1 kW viðnám, tengt yfir 9,0 V rafhlöðu, er sett í vatnið?