2020 Segulmagn
Dæmi
Dæmi
20.1 Segulsvið, sviðslínur og kraftur
Dæmi 18. Beinn vírbútur ber 0,25 A straum. Hve langur þarf vírbúturinn að vera til að valda 4,0 mN krafti á segul sem myndar einsleitt 0,015 T segulsvið hornrétt á vírinn?
20.3 Rafsegulspan
Dæmi 19. Hver er straumurinn í vírlykkju með 10 Ω viðnám þegar segulflæðið í gegnum lykkjuna breytist úr núlli í 10 Wb á 1,0 s?
Dæmi 20. Íspenna spanast þegar spólu með 1.000 vafningum og 20,0 cm þvermáli er snúið í 5,00 10−5 T segulsviði jarðar. Hver er meðalíspennan ef flötur spólunnar er upphaflega hornréttur á segulsvið jarðar og er snúið þannig að hann verði samsíða sviðinu á 10,0 ms?