12 Inngangur að stærðfræðigreiningu
Inngangur að stærðfræðigreiningu

Yfirlit kaflans
Inngangur að stærðfræðigreiningu
Sifan Hassan er hollenskur hlaupari, fædd í Eþíópíu, og hefur verið meðal fremstu langhlaupara heims um árabil. Hún varð fyrst allra hlaupara til að vinna bæði 1500 og 10.000 metra hlaup á sama heimsmeistaramóti. Á Ólympíuleikunum í Tókýó keppti hún í 1500, 5000 og 10.000 metra hlaupum, en fáir reyna við þá þrennu. Hún varð aðeins annar hlauparinn í sögunni til að vinna til verðlauna í öllum þremur. Hún vann gull bæði í 5000 og 10.000 metra hlaupum og brons í 1500 metra hlaupi. Einkennandi keppnisaðferð Hassan er að halda sig aftarlega í hópnum mestan hluta hlaupsins en sækja síðan fram á síðustu hringjunum.
Hassan hleypur ekki á hámarkshraða á hverju augnabliki. Hvernig getum við þá nálgað hraða hennar á tilteknu augnabliki? Í þessum kafla finnum við svarið við þeirri spurningu og mörgum skyldum spurningum.