Útskýra hvað lausn á línulegu jöfnuhneppi er og hvernig lausnin birtist á grafi.
Lýsa tveimur jöfnum sem jöfnuhneppi.
Nota töflur og gröf til að leysa jöfnuhneppi.
Þessi verkefni hjálpuðu þér að ná markmiðunum:
2.1.1: Að skilja skorður og gildi - Þú greindir ólíkar samsetningar í hnetu- og rúsínublöndu og athugaðir hvort þær uppfylltu ákveðna kostnaðarskorðu. Þú lærðir að ein leið til að athuga hvort gildin uppfylli skorðuna er að skrifa jöfnu.
2.1.2: Að skrifa og teikna jöfnur - Þú skrifaðir jöfnur fyrir tvær ólíkar skorður um kostnað og magn hnetu- og rúsínublöndu. Jöfnurnar mynda línulegt jöfnuhneppi. Síðan teiknaðir þú gröf jöfnuhneppisins og notaðir grafið til að fylla út töflu.
2.1.2: Sjálfspróf
2.1.2: Ítarefni
2.1.3: Að uppfylla skorður - Þú greindir aðstæður og fannst gildapar sem uppfyllti tvær ólíkar skorður í sömu aðstæðum. Síðan útskýrðir þú hvernig þú leystir jöfnuhneppið.
2.1.3: Sjálfspróf
2.1.3: Ítarefni
2.1.4: Að kanna jöfnuhneppi - Þú leystir jöfnuhneppi með þeirri aðferð sem hentaði þér. Jöfnuhneppi má leysa með grafi, með algebru, með því að giska á gildapör og prófa þau eða með töflum.
Eftir þessi verkefni kláraðir þú þessar æfingar:
2.1.5: Æfingar
Staðan tekin
Á kvarðanum 1 til 5, hversu vel treystir þú þér til að vinna með námsmarkmið þessarar kennslustundar?
Lausn
Góð ígrundun. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að hugsa um eigin hugsun.