Fyrir hvert breytupar skaltu ákvarða hvort um sé að ræða:
mjög veikt samband eða ekkert samband
sterkt samband sem er ekki orsakasamband
orsakasamband
Gættu þess að geta rökstutt svarið þitt.
1.
1. Fjöldi snjóruðningstækja í eigu borgar og sala á vettlingum í borginni
Lausn
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband.
2.
2. Rökstyddu svarið við verkefni 1.
Lausn
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband. Breyturnar tengjast, því borgir með fleiri snjóruðningstæki eru líklega líka með meiri sölu á vettlingum en staðir með færri snjóruðningstæki. Loftslag, íbúafjöldi borgarinnar og snjómagn hafa áhrif á báðar breyturnar. Fleiri snjóruðningstæki í borg valda því ekki að fólk kaupi fleiri vettlinga, og það gildir ekki heldur öfugt.
3.
3. Fjöldi smáskilaboða sem einstaklingur sendir á dag og fjöldi skyrtna sem einstaklingurinn á
Lausn
Mjög veikt samband eða ekkert samband.
4.
4. Rökstyddu svarið við verkefni 3.
Lausn
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Mjög veikt samband eða ekkert samband. Þessar breytur virðast ótengdar og engin önnur breyta, til dæmis aldur eða efnahagur, virðist tengjast báðum breytunum á stöðugan hátt.
5.
5. Verð á pizzu og fjöldi hitaeininga í pizzunni
Lausn
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband.
6.
6. Rökstyddu svarið við verkefni 5.
Lausn
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband. Breyturnar tengjast, því dýrari pizza er yfirleitt stærri eða með meira áleggi og hefur því fleiri hitaeiningar. Það er þó stærð pizzunnar eða magn áleggsins sem veldur því að báðar breyturnar aukast.
7.
7. Magn eldsneytis sem er notað í ferð og fjöldi kílómetra sem ekið er í ferðinni
Lausn
Orsakasamband.
8.
8. Rökstyddu svarið við verkefni 7.
Lausn
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Orsakasamband. Lengri ferðir valda meiri eldsneytisnotkun og styttri ferðir þurfa minna eldsneyti.
Myndband: Að ákvarða tegund sambands
Horfðu á myndbandið hér á eftir til að læra meira um hvernig hugtakið orsakasamband er notað.