4.4.6 Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að:
- útskýra reiknireglur falla þegar þær eru skrifaðar með falltáknun og búa til töflur og gröf sem sýna föllin.
- skrifa jöfnur sem tákna reiknireglur falla.
Þessi verkefni hjálpuðu þér að ná markmiðunum:
- 4.4.1: Að nota falltáknun í gildistöflum.
- Í þessu verkefni skoðaðir þú gildistöflur þar sem falltáknun var notuð.
- 4.4.2: Að skilgreina föll með reglu.
- Í þessu verkefni tengdir þú jöfnur í falltáknun við orðalýsingar þeirra.
- Þú barst líka saman úttaksgildi þegar sama inntak var sett inn í mismunandi jöfnur.
- Sjálfspróf og ítarefni.
- 4.4.3: Að nota töflur til að finna fallreglur.
- Í þessu verkefni fannstu fallreglur út frá gildistöflum.
- Þú túlkaðir gildi í falltáknun út frá samhengi verkefnisins og teiknaðir síðan graf fallsins.
- Sjálfspróf og ítarefni.
- 4.4.4: Að rita reglu með falltáknun.
- Í þessu verkefni ritaðir þú reglu út frá gildistöflu með falltáknun og notaðir regluna til að finna önnur fallgildi.
Eftir þessi verkefni vannstu þessar æfingar:
- 4.4.5: Æfingar.
Staðan tekin
Hversu vel treystir þú þér til að ná námsmarkmiðum þessarar kennslustundar á kvarðanum 1 til 5?
Lausn
Góð ígrundun. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að velta fyrir þér hvernig þú hugsar.