Lykilhugtök
Lykilhugtök
- viðskiptasiðfræði
- starfshættir sem felast í því að fyrirtæki og fulltrúar þeirra fari að lögum og virði réttindi hagsmunaaðila, einkum viðskiptavina, starfsfólks, nærsamfélagsins og umhverfisins
- reglufylgni
- hversu vel fyrirtæki fylgir gildandi reglugerðum og lögum í rekstri sínum
- fyrirtækjamenning
- sameiginleg viðhorf, gildi og hegðunarmynstur sem móta starfsumhverfi og samskipti starfsfólks og stjórnenda
- samfélagsábyrgð fyrirtækja (CSR)
- þegar fyrirtæki lítur á sig sem hluta af samfélaginu, með óskráðar skyldur gagnvart því og ábyrgð á eigin áhrifum á umhverfið og velferð fólks
- skyldusiðfræði
- kenning í boðandi siðfræði sem segir að þegar við tökum siðferðilegar ákvarðanir eigum við aðeins að líta til réttinda annarra og skyldna okkar gagnvart þeim; í viðskiptum þýðir það að mestu skiptir að gera rétt gagnvart öllum hagsmunaaðilum
- siðferðileg afstæðishyggja
- sú afstaða að það ráðist alfarið af samhengi hvað teljist siðferðilega rétt
- siðfræði
- þau viðmið um breytni sem við setjum okkur í einkalífi og starfi
- viðskiptavild
- verðmæti fyrirtækis umfram áþreifanlegar eignir þess; viðskiptavild felst yfirleitt meðal annars í orðspori, vörumerkisvirði, viðhorfum starfsfólks og samskiptum við viðskiptavini
- heilindi
- að fylgja siðferðilegum gildum sínum af festu; sá sem býr yfir heilindum er traustur, lætur ekki kaupa sig og lætur verk fylgja orðum
- langtímasjónarmið
- yfirveguð leið til að hámarka hagnað þar sem gert er ráð fyrir að áhrif viðskiptaákvörðunar komi stundum ekki fram fyrr en löngu síðar
- kenningar í boðandi siðfræði
- hópur heimspekikenninga sem lýsa því, á grundvelli skynsemi, hvernig fólk eigi að hegða sér
- hluthafi
- einstaklingur eða stofnun sem á hlutabréf eða hlut í hlutafélagi og er því ein tegund hagsmunaaðila; einnig nefndur hlutabréfaeigandi
- skammtímasjónarmið
- áhersla á að hámarka hagnað hvers uppgjörstímabils, svo sem ársfjórðungs- og árshagnað
- samfélagssáttmáli
- óskráð samkomulag allra í samfélagi um að vinna saman öllum til góðs; fyrir fyrirtæki þýðir það að gefa til baka til samfélagsins sem leyfir því að starfa, þannig að samfélagið hagnist um leið og fyrirtækið
- hagsmunaaðilar
- einstaklingar, hópar og aðrir aðilar sem ákvarðanir fyrirtækis hafa áhrif á, meðal annars viðskiptavinir, birgjar, fjárfestar, starfsfólk, samfélagið og umhverfið
- hlutabréfaeigandi
- einstaklingur eða stofnun sem á hlutabréf eða hlut í hlutafélagi og er því ein tegund hagsmunaaðila; einnig nefndur hluthafi
- nytjastefna
- kenning í boðandi siðfræði sem kveður á um að siðferðilega rétt athöfn sé sú sem leiðir af sér mesta hamingju fyrir sem flesta
- dygðakenning
- kenning í boðandi siðfræði sem leggur áherslu á rétta breytni sem byggist á því uppeldi og þeirri mótun sem fólk hlaut í æsku