Samantekt
Samantekt
10.1 Meiri eða minni fjarvinna?
Fjarstarfsfólk sparar tíma og kostnað við ferðir til og frá vinnu og á auðveldara með að samræma vinnu og einkalíf. Fyrirtæki njóta oft aukinnar framleiðni og minni starfsmannaveltu meðal fjarstarfsfólks. Færri vinnuferðir geta jafnframt dregið úr umferðarþunga og mengun og þannig gagnast samfélaginu. Stjórnendur þurfa meðal annars að tryggja öryggi gagna fyrirtækisins, miðla fyrirtækjamenningu, skilgreina frammistöðumarkmið og stuðla að samstarfi. Fjarstarfsfólk þarf á móti að halda einbeitingu við vinnuna utan starfsstöðvarinnar. Siðleg fyrirtæki styðja fjarstarfsfólk sitt með því að byggja upp traust og verjast misnotkun. Þau setja skýrar og sanngjarnar kröfur, umbuna með réttlátum hætti og tryggja virk samskipti.
10.2 Vinnustaðasvæði
Hefðbundnar skrifstofubyggingar með aðskildum vinnurýmum fyrir hvern starfsmann víkja fyrir fjölnota vinnustöðum þar sem hvatt er til virks samstarfs. Sum fyrirtæki hafa bætt veitingastöðum, afþreyingaraðstöðu og ýmiss konar þjónustu við vinnustaðinn til að laða að starfsfólk og halda í það. Önnur reisa íbúðahverfi umhverfis vinnustaðasvæði sín til að auðvelda starfsfólki að samræma vinnu og einkalíf. Slíkt heildarumhverfi getur þó haft ókosti fyrir starfsfólk, meðal annars þá hættu að það verði um of bundið vinnustaðnum. Einnig hefur verið spurt hvaða áhrif fyrirkomulagið hafi á nærsamfélagið.
10.3 Valkostir við hefðbundið vinnufyrirkomulag
Þegar sanngirni og jafnræði eru höfð að leiðarljósi geta starfsdeiling og sveigjanlegur vinnutími veitt fólki sem þarf eða vill takmarka vinnutíma sinn aukið svigrúm. Fyrirkomulagið gerir vinnuveitendum kleift að ráða fjölbreyttari hóp starfsfólks og koma betur til móts við þörf þess fyrir jafnvægi vinnu og einkalífs. Starfsdeiling leiðir jafnframt saman sjónarmið fleiri en eins einstaklings við lausn vandamála. Vinnuveitendur þurfa þó að skilgreina skýrt kröfur og verklag fyrir hvern starfsmann svo fyrirkomulagið gangi vel.
Sveigjanlegur vinnutími og starfsdeiling benda til þess að bandarískt atvinnulíf sé að færast frá hefðbundnum ráðningarsamböndum í átt að nýjum viðskiptalíkönum. Þau skapa mörg tækifæri en einnig alvarlegar áskoranir. Siðferðileg álitaefni í aðgangshagkerfinu varða meðal annars ábyrgð aðila í viðskiptum og hvernig haga skuli reglusetningu og skattlagningu. Í verktakahagkerfinu snúa álitaefnin að ótryggri stöðu fólks og skorti á starfskjörum, ábyrgð vinnuveitenda á að greiða sanngjarnan hlut launatengdra skatta til almannatrygginga og sanngjarnri meðferð starfsnema.
10.4 Vélmennatækni, gervigreind og vinnustaður framtíðarinnar
Vélmenni og gervigreind vekja hjá flestum bæði áhuga og ótta. Óttinn við að störf hverfi á sér raunverulegar forsendur, en framtíðarmöguleikar tækninnar vekja jafnframt forvitni. Mikilvægt er að fyrirtæki hjálpi starfsfólki að endurmennta sig svo það geti orðið hluti af framtíðinni.