Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 5.1 Nálgun flatarmáls
    3. 5.2 Ákveðið heildi
    4. 5.3 Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar
    5. 5.4 Heildunarreglur og setningin um heildarbreytingu
    6. 5.5 Innsetning
    7. 5.6 Heildi með vísis- og lograföllum
    8. 5.7 Heildi sem skila andhverfum hornaföllum
    9. Lykilhugtök
    10. Helstu jöfnur
    11. Meginatriði
    12. Yfirlitsverkefni
  2. A | Tafla yfir heildi
  3. B | Tafla yfir afleiður
  4. C | Upprifjun fyrir stærðfræðigreiningu
  5. Atriðaskrá

Bókin og glærur

Sækja bókina (PDF)PowerPoint-glærur
Stærðfræðigreining, 1. bindi (IS)5 Heildun

5.2 Ákveðið heildi

Námsmarkmið

  • 5.2.1 Setjið fram skilgreiningu á ákveðnu heildi.
  • 5.2.2 Útskýrið hugtökin heildisstofn, heildismörk og heildunarbreyta.
  • 5.2.3 Útskýrið hvenær fall er heildanlegt.
  • 5.2.4 Lýsið tengslum ákveðins heildis og formerkts flatarmáls.
  • 5.2.5 Notið rúmfræði og eiginleika ákveðinna heilda til að reikna þau.
  • 5.2.6 Reiknið meðalgildi falls.

Í undirkaflanum á undan skilgreindum við flatarmál undir ferli með Riemann-summum:

A=limn→∞⁢∑i=1nf⁡(xi*)Δx.

Þessari skilgreiningu fylgdu þó takmarkanir. Við gerðum þá kröfu að f⁡(x) væri samfellt og óneikvætt. Raunveruleg viðfangsefni uppfylla því miður ekki alltaf þessi skilyrði. Í þessum undirkafla skoðum við hvernig ákveðið heildi gerir okkur kleift að nota hugmyndina um flatarmál undir ferli fyrir fleiri föll.

Skilgreining og táknun

Ákveðið heildi alhæfir hugmyndina um flatarmál undir ferli. Við fellum niður skilyrðin um að f⁡(x) sé samfellt og óneikvætt og skilgreinum ákveðið heildi sem hér segir.

Skilgreining

Ef f⁡(x) er fall sem skilgreint er á bili [a,b], er ákveðið heildi f frá a til b gefið með

∫abf⁡(x)dx=limn→∞⁢∑i=1nf⁡(xi*)Δx,
(5.8)

að því gefnu að markgildið sé til. Ef markgildið er til kallast fallið f⁡(x) heildanlegt á [a,b], eða einfaldlega heildanlegt fall.

Heildistáknið í skilgreiningunni hér á undan ætti að vera kunnuglegt. Við höfum séð svipaða táknun í kaflanum um notkun afleiða, þar sem við notuðum tákn óákveðins heildis (án a og b fyrir ofan og neðan) til að tákna stofnfall. Þótt táknun óákveðinna heilda líkist táknun ákveðins heildis eru þetta ekki sömu fyrirbæri. Ákveðið heildi er tala en óákveðið heildi er fjölskylda falla. Síðar í þessum kafla skoðum við hvernig hugtökin tengjast. Alltaf þarf þó að gæta vel að táknuninni svo ljóst sé hvort unnið er með ákveðið eða óákveðið heildi.

Heildatáknun á rætur að rekja til síðari hluta sautjándu aldar og er eitt af framlögum Gottfrieds Wilhelms Leibniz, sem ásamt Isaac Newton er oft talinn annar tveggja upphafsmanna stærðfræðigreiningarinnar. Heildistáknið ∫ er ílangt S og vísar til sigma eða summu. Fyrir ofan og neðan heildistáknið í ákveðnu heildi standa endamörk bilsins [a,b]. Tölurnar a og b eru x-gildi og kallast heildismörk; a er neðra heildismark og b efra heildismark. Til skýringar er orðið mark notað í tvenns konar merkingu í samhengi við ákveðið heildi. Annars vegar er talað um markgildi summu þegar n→∞. Hins vegar kallast endamörk svæðisins heildismörk.

Við köllum fallið f⁡(x) heildisstofn og dx gefur til kynna að f⁡(x) sé fall af breytunni x, sem er heildunarbreytan. Líkt og summuvísir í summu er heildunarbreytan gervibreyta og hefur engin áhrif á útreikning heildisins. Við gætum valið hvaða breytu sem er sem heildunarbreytu:

∫abf⁡(x)dx=∫abf⁡(t)dt=∫abf⁡(u)du

Áður kom fram að ef f⁡(x) er samfellt á [a,b], þá er markgildið limn→∞⁢∑i=1nf⁡(xi*)Δx til og ótvírætt ákvarðað. Af því leiðir næsta setning, sem við setjum fram án sönnunar.

Setning 5.1

Samfelld föll eru heildanleg

Ef f⁡(x) er samfellt á [a,b], þá er f heildanlegt á [a,b].

Föll sem eru ekki samfelld á [a,b] geta samt verið heildanleg, eftir eðli ósamfellnanna. Til dæmis eru föll heildanleg ef þau eru samfelld á lokuðu bili að undanskildum endanlega mörgum stökkósamfellum.

Einnig er vert að taka fram að við höfum haldið okkur við reglulega skiptingu í Riemann-summunum. Sú takmörkun er í raun óþörf. Nota má hvaða skiptingu sem er til að mynda Riemann-summu. Ef óregluleg skipting er notuð til að skilgreina ákveðið heildi nægir hins vegar ekki að taka markgildið þegar fjöldi hlutbila stefnir á óendanlegt. Þá verður þess í stað að taka markgildið þegar breidd stærsta hlutbilsins stefnir á núll. Við það verður táknun markgildanna nokkru flóknari og útreikningarnir erfiðari, án þess að skilningur okkar aukist að ráði. Því höldum við okkur við reglulegar skiptingar í Riemann-summum.

Dæmi 5.7

Heildi reiknað út frá skilgreiningunni

Notið skilgreiningu ákveðins heildis til að reikna ∫02x2dx. Notið nálgun með hægri endapunktum til að mynda Riemann-summuna.

Lausn

Fyrst setjum við upp Riemann-summu. Af heildismörkunum fæst a=0 og b=2. Fyrir i=0,1,2⁢,…,n, látum P={xi} vera reglulega skiptingu á [0,2]. Þá fæst

Δx=b−an=2n.

Við notum nálgun með hægri endapunktum til að mynda Riemann-summur og þurfum því, fyrir hvert i, að reikna fallgildið í hægri endapunkti hlutbilsins [xi−1,xi]. Hægri endapunktur hlutbilsins er xi, og þar sem P er regluleg skipting er

xi=x0+iΔx=0+i⁡[2n]=2⁢in.

Fallgildið í hægri endapunkti hlutbilsins er því

f⁡(xi)=xi2=(2⁢in)2=4⁢i2n2.

Þá er Riemann-summan á forminu

∑i=1nf⁡(xi)Δx=∑i=1n(4⁢i2n2)⁢2n=∑i=1n8⁢i2n3=8n3⁢∑i=1ni2.

Með summuformúlunni fyrir ∑i=1ni2, fæst

∑i=1nf⁡(xi)Δx=8n3⁢∑i=1ni2=8n3⁢[n⁢(n+1)⁢(2⁢n+1)6]=8n3⁢[2⁢n3+3⁢n2+n6]=16⁢n3+24⁢n2+8⁢n6⁢n3=83+4n+86⁢n2.

Til að reikna ákveðna heildið þurfum við nú að taka markgildið þegar n→∞. Við fáum

∫02x2dx=limn→∞⁢∑i=1nf⁡(xi)Δx=limn→∞⁢(83+4n+86⁢n2)=limn→∞⁢(83)+limn→∞⁢(4n)+limn→∞⁢(86⁢n2)=83+0+0=83.

Stöðumat 5.7

Notið skilgreiningu ákveðins heildis til að reikna ∫03(2⁢x−1)dx. Notið nálgun með hægri endapunktum til að mynda Riemann-summuna.

Útreikningur ákveðinna heilda

Það getur verið seinlegt að reikna ákveðin heildi á þennan hátt því að útreikningarnir eru flóknir. Síðar í kaflanum þróum við aðferðir til að reikna ákveðin heildi án þess að taka markgildi Riemann-summa. Í bili getum við hins vegar nýtt þá staðreynd að ákveðin heildi tákna flatarmál undir ferli og reiknað þau með rúmfræðiformúlum fyrir flatarmál. Þannig staðfestum við að ákveðin heildi tákna í raun flatarmál og getum síðan rætt hvað gera skuli þegar ferill falls liggur neðan x-ássins.

Dæmi 5.8

Rúmfræðiformúlur notaðar til að reikna ákveðin heildi

Notið formúluna fyrir flatarmál hrings til að reikna ∫369−(x−3)2dx.

Lausn

Fallið lýsir hálfhring með radíus 3. Til að finna

∫369−(x−3)2dx,

viljum við finna flatarmálið undir ferlinum á bilinu [3,6]. Formúlan fyrir flatarmál hrings er A=π⁢r2. Flatarmál hálfhrings er helmingur flatarmáls hrings, eða A=(12)⁢π⁢r2. Skyggða svæðið á mynd 5.16 er helmingur hálfhringsins, eða A=(14)⁢π⁢r2. Því fæst

∫369−(x−3)2=14⁢π⁢(3)2=94⁢π≈7,069.
Graf hálfhrings í fyrsta fjórðungi yfir bilinu [0,6] með miðju í (3,0). Flatarmálið undir ferlinum yfir bilinu [3,6] er skyggt með bláum lit.
Mynd 5.16. Gildi heildis fallsins f⁡(x) á bilinu [3,6] er flatarmál skyggða svæðisins.

Stöðumat 5.8

Notið formúluna fyrir flatarmál trapisu til að reikna ∫24(2⁢x+3)dx.

Flatarmál og ákveðið heildi

Þegar við skilgreindum ákveðna heildið felldum við niður kröfuna um að f⁡(x) væri óneikvætt. En hvernig túlkum við „flatarmálið undir ferlinum“ þegar f⁡(x) er neikvætt?

Formerkt flatarmál

Snúum okkur aftur að Riemann-summunni. Skoðum til dæmis fallið f⁡(x)=2−2⁢x2 (sýnt á mynd 5.17) á bilinu [0,2]. Notum n=8 og veljum {xi*} sem vinstri endapunkt hvers hlutbils. Teiknum rétthyrning yfir hvert hlutbil með hæðina f⁡(xi*) og breiddina Δx. Þegar f⁡(xi*) er jákvætt táknar margfeldið f⁡(xi*)Δx flatarmál rétthyrningsins, eins og áður. Þegar f⁡(xi*) er neikvætt táknar margfeldið f⁡(xi*)Δx hins vegar neikvætt gildi flatarmáls rétthyrningsins. Riemann-summan verður þá

∑i=18f⁡(xi*)Δx=(Flatarmál rétthyrninganna ofan viðx-ásinn)−(Flatarmál rétthyrninganna neðan viðx-ásinn)
Graf fleygboga sem opnast niður á bilinu [-1, 2] hefur topppunkt í (0,2) og sker x-ásinn í (-1,0) og (1,0). Átta rétthyrningar eru teiknaðir með jöfnu millibili yfir [0,2] og hæð þeirra ræðst af fallgildinu í vinstri endapunkti hvers hlutbils.
Mynd 5.17. Fyrir fall sem er neikvætt á hluta bilsins er Riemann-summan flatarmál rétthyrninganna ofan x-ássins að frádregnu flatarmáli rétthyrninganna neðan x-ássins.

Þegar n→∞, nálgast Riemann-summan flatarmálið milli ferilsins og x-ássins ofan við ásinn, að frádregnu flatarmálinu milli ferilsins og x-ássins neðan við ásinn, eins og sýnt er á mynd 5.18. Þá fæst:

∫02f⁡(x)dx=limn→∞⁢∑i=1nf⁡(ci)Δx=A1−A2.

Stærðin A1−A2 kallast formerkt flatarmál.

Graf fleygboga sem opnast niður á bilinu [-2, 2] hefur topppunkt í (0,2) og sker x-ásinn í (-1,0) og (1,0). Svæðið undir ferlinum í fyrsta fjórðungi er skyggt blátt og merkt A1. Svæðið ofan við ferilinn í fjórða fjórðungi og vinstra megin við x=2 er skyggt blátt og merkt A2.
Mynd 5.18. Í markgildinu er ákveðið heildi jafnt flatarmáli A1 að frádregnu flatarmáli A2, það er formerktu flatarmáli.

Athugið að formerkt flatarmál getur verið jákvætt, neikvætt eða núll. Ef flatarmálið ofan x-ássins er stærra er formerkta flatarmálið jákvætt. Ef flatarmálið neðan x-ássins er stærra er það neikvætt. Ef flatarmálin ofan og neðan x-ássins eru jafnstór er formerkta flatarmálið núll.

Dæmi 5.9

Formerkt flatarmál fundið

Finnið formerkt flatarmál milli grafs fallsins f⁡(x)=2⁢x og x-ássins á bilinu [−3,3].

Lausn

Graf fallsins er bein lína sem myndar tvo þríhyrninga: annan frá x=−3 til x=0 og hinn frá x=0 til x=3 (mynd 5.19). Með rúmfræðiformúlunni fyrir flatarmál þríhyrnings, A=12⁢b⁢h, er flatarmál þríhyrnings A1, sem er ofan við ásinn, jafnt

A1=12⁢3⁢(6)=9,

þar sem 3 er grunnlínan og 2⁢(3)=6 er hæðin. Flatarmál þríhyrnings A2 neðan ássins er

A2=12⁢(3)⁢(6)=9,

þar sem 3 er grunnlínan og 6 hæðin. Formerkta flatarmálið er því

∫−332⁢xdx=A1−A2=9−9=0.
Graf vaxandi línu á bilinu [-6, 6] sem liggur í gegnum upphafspunktinn og punktana (-3, -6) og (3,6). Flatarmálið undir línunni í fyrsta fjórðungi á bilinu [0,3] er skyggt blátt og merkt A1, en flatarmálið ofan línunnar í þriðja fjórðungi á bilinu [-3,0] er skyggt blátt og merkt A2.
Mynd 5.19. Flatarmálið ofan ferilsins og neðan x-ássins er jafnt flatarmálinu neðan ferilsins og ofan x-ássins.

Greining

Ef A1 er flatarmálið ofan x-ássins og A2 flatarmálið neðan hans er formerkta flatarmálið A1−A2. Þar sem þríhyrningarnir hafa sama flatarmál er formerkta flatarmálið núll.

Stöðumat 5.9

Finnið formerkt flatarmál f⁡(x)=x−2 á bilinu [0,6], eins og sýnt er á myndinni hér á eftir.

Graf vaxandi línu sem liggur í gegnum punktana (-2,-4), (0,-2), (2,0), (4,2) og (6,4). Flatarmálið ofan ferilsins í fjórða fjórðungi er skyggt blátt og merkt A2, en flatarmálið undir ferlinum og vinstra megin við x=6 í fyrsta fjórðungi er skyggt og merkt A1.

Heildarflatarmál

Ein notkun ákveðins heildis er að finna færslu þegar hraðafall er gefið. Ef v⁡(t) táknar hraða hlutar sem fall af tíma segir flatarmálið undir ferlinum til um hve langt hluturinn er frá upphafsstöðu sinni. Þetta er mjög mikilvæg notkun ákveðins heildis og við skoðum hana nánar síðar í kaflanum. Fyrst skoðum við grunnatriðin með því að athuga hreyfingu með föstum hraða.

Þegar hraðinn er fastur er flatarmálið undir ferlinum einfaldlega margfeldi hraða og tíma. Þetta þekkjum við vel. Ef bíll ekur í beinni línu frá upphafsstað sínum á 70 km/klst. hraða í 2 klukkustundir er hann 140 km frá upphafsstaðnum (mynd 5.20). Með heildatáknun fæst

∫0270dt=140.
Graf í fyrsta fjórðungi þar sem x-ásinn er merktur t (klukkustundir) og y-ásinn v (km/klst.). Flatarmálið undir línunni v(t) = 70 á bilinu [0,2] er skyggt blátt.
Mynd 5.20. Flatarmálið undir ferlinum v⁡(t)=70 segir okkur hversu langt bíllinn er frá upphafspunkti sínum á tilteknum tíma.

Þegar fjallað er um færslu gerir formerkt flatarmál okkur kleift að taka tillit til stefnu. Ef bíll ekur beint í norður á 60 km/klst. hraða í 2 klukkustundir er hann 120 km norðan við upphafsstað sinn. Ef bíllinn snýr þá við og ekur í suður á 40 km/klst. hraða í 3 klukkustundir er hann aftur kominn á upphafsstaðinn (mynd 5.21). Með heildatáknun fæst aftur

∫0260dt+∫25−40dt=120−120=0.

Í þessu tilviki er færslan núll.

Graf í fyrsta og fjórða fjórðungi þar sem x-ásinn er merktur t (klukkustundir) og y-ásinn v (km/klst.). Fyrri hluti grafsins er línan v(t) = 60 á bilinu [0,2] og svæðið undir línunni í fyrsta fjórðungi er skyggt. Seinni hlutinn er línan v(t) = -40 á bilinu [2,5] og svæðið ofan línunnar í fjórða fjórðungi er skyggt.
Mynd 5.21. Flatarmálið ofan ássins og flatarmálið neðan hans eru jafnstór og því er formerkta flatarmálið núll.

Gerum nú ráð fyrir að við viljum vita hversu langt bíllinn ekur alls, óháð stefnu. Þá viljum við finna flatarmálið milli ferilsins og x-ássins, óháð því hvort það liggur ofan eða neðan við ásinn. Þetta kallast heildarflatarmál.

Myndrænt er einfaldast að hugsa sér heildarflatarmálið sem summu flatarmálanna ofan og neðan ássins. Flatarmálin neðan ássins eru þá ekki dregin frá eins og við gerðum fyrir formerkt flatarmál. Stærðfræðilega gerum við þetta með algildisfallinu. Heildarvegalengd bílsins er því

∫02|60|dt+∫25|−40|dt=∫0260dt+∫2540dt=120+120=240.

Við tökum þessar hugmyndir formlega saman í eftirfarandi skilgreiningum.

Skilgreining

Látum f⁡(x) vera heildanlegt fall sem skilgreint er á bili [a,b]. Látum A1 tákna flatarmálið milli f⁡(x) og x-ássins ofan við ásinn og A2 flatarmálið milli f⁡(x) og x-ássins neðan við hann. Þá er formerkt flatarmál milli f⁡(x) og x-ássins reiknað sem

∫abf⁡(x)dx=A1−A2.

Heildarflatarmálið milli f⁡(x) og x-ássins er reiknað sem

∫ab|f⁡(x)|dx=A1+A2.

Dæmi 5.10

Heildarflatarmál fundið

Finnið heildarflatarmálið milli f⁡(x)=x−2 og x-ássins á bilinu [0,6].

Lausn

Skurðpunkturinn við x-ásinn er (2,0). Hann fæst með því að setja y=0, og leysa með tilliti til x. Til að finna heildarflatarmálið leggjum við saman flatarmálið neðan x-ássins á hlutbilinu [0,2] og flatarmálið ofan x-ássins á hlutbilinu [2,6] (mynd 5.22).

Graf vaxandi línunnar f(x) = x-2, sem liggur í gegnum punktana (-2,-4), (0,2), (2,0), (4,2) og (6,4). Svæðið undir línunni í fyrsta fjórðungi og vinstra megin við línuna x=6 er skyggt og merkt A1. Svæðið ofan við línuna í fjórða fjórðungi er skyggt og merkt A2.
Mynd 5.22. Heildarflatarmálið milli línunnar og x-ássins á bilinu [0,6] er A2 að viðbættu A1.

Við fáum

∫06|(x−2)|dx=A2+A1.

Með formúlunni fyrir flatarmál þríhyrnings fáum við þá

A2=12⁢b⁢h=12·2·2=2
A1=12⁢b⁢h=12·4·4=8.

Heildarflatarmálið er því

A1+A2=8+2=10.

Stöðumat 5.10

Finnið heildarflatarmálið milli fallsins f⁡(x)=2⁢x og x-ássins á bilinu [−3,3].

Eiginleikar ákveðins heildis

Eiginleikar óákveðinna heilda gilda einnig um ákveðin heildi. Ákveðin heildi hafa auk þess eiginleika sem tengjast heildismörkunum. Þessir eiginleikar, ásamt heildunarreglunum sem við skoðum síðar í kaflanum, gera okkur kleift að umrita stæður til að reikna ákveðin heildi.

Regla: Eiginleikar ákveðins heildis


  1. ∫aaf⁡(x)⁢d⁢x=0
    (5.9)

    Ef heildismörkin eru þau sömu er heildunarsvæðið aðeins línustrik og hefur því ekkert flatarmál.

  2. ∫baf⁡(x)dx=−∫abf⁡(x)dx
    (5.10)

    Ef heildismörkunum er snúið við er mínusmerki sett fyrir framan heildið.

  3. ∫ab[f⁡(x)+g⁡(x)]dx=∫abf⁡(x)dx+∫abg⁡(x)dx
    (5.11)

    Heildi summu er summa heildanna.

  4. ∫ab[f⁡(x)−g⁡(x)]⁢d⁢x=∫abf⁡(x)⁢d⁢x−∫abg⁡(x)dx
    (5.12)

    Heildi mismunar er mismunur heildanna.

  5. ∫abc⁢f⁡(x)dx=c⁢∫abf⁡(x)⁢d⁢x
    (5.13)

    fyrir fastann c. Heildi margfeldis fasta og falls er jafnt margfeldi fastans og heildis fallsins.

  6. ∫abf⁡(x)dx=∫acf⁡(x)dx+∫cbf⁡(x)dx
    (5.14)

    Þótt formúlan gildi venjulega þegar c er á milli a og b, gildir hún fyrir öll gildi a, b og c, að því gefnu að f⁡(x) sé heildanlegt á stærsta bilinu.

Dæmi 5.11

Eiginleikar ákveðins heildis notaðir

Notið eiginleika ákveðins heildis til að rita ákveðið heildi fallsins f⁡(x)=−3⁢x3+2⁢x+2 á bilinu [−2,1] sem summu þriggja ákveðinna heilda.

Lausn

Með heildatáknun fæst ∫−21(−3⁢x3+2⁢x+2)dx. Með eiginleikum 3 og 5 fæst

∫−21(−3⁢x3+2⁢x+2)dx=∫−21−3⁢x3dx+∫−212⁢xdx+∫−212dx=−3⁢∫−21x3dx+2⁢∫−21xdx+∫−212dx.

Stöðumat 5.11

Notið eiginleika ákveðins heildis til að rita ákveðið heildi fallsins f⁡(x)=6⁢x3−4⁢x2+2⁢x−3 á bilinu [1,3] sem summu fjögurra ákveðinna heilda.

Dæmi 5.12

Eiginleikar ákveðins heildis notaðir

Ef vitað er að ∫08f⁡(x)dx=10 og ∫05f⁡(x)dx=5, finnið gildi ∫58f⁡(x)dx.

Lausn

Samkvæmt eiginleika 6,

∫abf⁡(x)dx=∫acf⁡(x)dx+∫cbf⁡(x)dx.

Því fæst

∫08f⁡(x)dx=∫05f⁡(x)dx+∫58f⁡(x)dx10=5+∫58f⁡(x)dx5=∫58f⁡(x)dx.

Stöðumat 5.12

Ef vitað er að ∫15f⁡(x)dx=−3 og ∫25f⁡(x)dx=4, finnið gildi ∫12f⁡(x)dx.

Samanburðareiginleikar heilda

Mynd getur stundum sagt okkur meira um fall en niðurstöður útreikninga. Oft fæst betri skilningur á heildun með því að bera föll saman, bæði út frá gröfum þeirra og algebrulegum stæðum. Í fljótu bragði mætti ætla að ef fall f⁡(x) liggur ofan við annað fall g⁡(x), þá sé flatarmálið milli f⁡(x) og x-ássins stærra en flatarmálið milli g⁡(x) og x-ássins. Hvort það er rétt fer eftir bilinu sem samanburðurinn nær yfir. Eiginleikar ákveðinna heilda gilda hvort sem a<b,a=b, eða a>b. Eftirfarandi eiginleikar eiga hins vegar aðeins við þegar a≤b, og eru notaðir til að bera saman stærð heilda.

Setning 5.2

Samanburðarsetning

  1. Ef f⁡(x)≥0 fyrir a≤x≤b, þá
    ∫abf⁡(x)dx≥0.
  2. Ef f⁡(x)≥g⁡(x) fyrir a≤x≤b, þá
    ∫abf⁡(x)dx≥∫abg⁡(x)dx.
  3. Ef m og M eru fastar þannig að m≤f⁡(x)≤M fyrir a≤x≤b, þá
    m⁢(b−a)≤∫abf⁡(x)dx≤M⁢(b−a).

Dæmi 5.13

Samanburður tveggja falla á tilteknu bili

Berið saman f⁡(x)=1+x2 og g⁡(x)=1+x á bilinu [0,1].

Lausn

Nauðsynlegt er að teikna gröf fallanna til að geta borið þau saman á bilinu [0,1]. Þegar þau eru fyrst teiknuð með grafreikni (t.d. GeoGebra) virðist f⁡(x) liggja alls staðar ofan við g⁡(x). Þegar aðeins er litið á bilið [0,1], virðast gröfin þó falla saman. Við þurfum að stækka myndina til að sjá hvernig þau liggja á bilinu [0,1]:g⁡(x) liggur ofan við f⁡(x). Föllin skerast í x=0 og x=1 (mynd 5.23).

Graf fallsins f(x) = sqrt(1 + x^2) er sýnt með rauðum lit og graf fallsins g(x) = sqrt(1 + x) með bláum lit á bilinu [-2, 3]. Fallið f(x) liggur ofan við g(x) nema á bilinu [0,1]. Annað graf, sem sýnir stækkaða mynd, sýnir þetta bil skýrar.
Mynd 5.23. (a) Fallið f⁡(x) virðist liggja ofan við fallið g⁡(x) nema á bilinu [0,1] . (b) Þetta sést skýrar þegar sama graf er stækkað.

Af grafinu sést að á bilinu [0,1],g⁡(x)≥f⁡(x). Þegar heildin eru borin saman á bilinu [0,1], sést einnig að ∫01g⁡(x)dx≥∫01f⁡(x)dx (mynd 5.24). Mjóa rauðskyggða svæðið sýnir muninn á þessum tveimur heildum á bilinu [0,1].

Graf sem sýnir föllin f(x) = sqrt(1 + x^2) og g(x) = sqrt(1 + x) á bilinu [-3, 3]. Svæðið undir g(x) í fyrsta fjórðungi á bilinu [0,1] er skyggt. Svæðið undir g(x) og f(x) er innifalið í þessu skyggða svæði. Annað graf, sem sýnir stækkaða mynd, sýnir skýrar að föllin eru aðeins jöfn í endapunktunum.
Mynd 5.24. (a) Grafið sýnir að á bilinu [0,1],g⁡(x)≥f⁡(x), og jafnaðarmerkið gildir aðeins í endapunktum bilsins. (b) Þetta sést skýrar þegar sama graf er stækkað.

Meðalgildi falls

Oft þurfum við að finna meðaltal talnasafns, til dæmis meðaleinkunn á prófum. Gerum ráð fyrir að þið hafið fengið eftirfarandi einkunnir í algebruprófum: 89, 90, 56, 78, 100 og 69. Annareinkunnin er meðaltal prófseinkunnanna og þið viljið vita við hvaða einkunn þið megið búast. Meðaltalið fæst með því að leggja allar einkunnirnar saman og deila með fjölda þeirra. Hér eru prófseinkunnirnar sex og því fæst

89+90+56+78+100+696=4826≈80,33.

Meðaleinkunn ykkar á prófunum er því um það bil 80,33, sem jafngildir B− í flestum skólum.

Gerum hins vegar ráð fyrir að fallið v⁡(t) gefi hraða hlutar á hverjum tíma t og að við viljum finna meðalhraða hlutarins. Fallið v⁡(t) tekur óendanlega mörg gildi og því getum við ekki notað aðferðina hér á undan. Sem betur fer má nota ákveðið heildi til að finna meðalgildi slíks falls.

Látum f⁡(x) vera samfellt á bilinu [a,b] og skiptum [a,b] í n hlutbil með breiddina Δx=(b−a)/n. Veljum fulltrúa xi* í hverju hlutbili og reiknum f⁡(xi*) fyrir i=1,2⁢,…,n. Með öðrum orðum lítum við á hvert f⁡(xi*) sem úrtak úr fallinu á viðkomandi hlutbili. Þá má nálga meðalgildi fallsins með

f⁡(x1*)+f⁡(x2*)+⋯+f⁡(xn*)n,

sem er í meginatriðum sama stæða og notuð er til að reikna meðaltal stakra gilda.

En við vitum að Δx=b−an, þannig að n=b−aΔx, og við fáum

f⁡(x1*)+f⁡(x2*)+⋯+f⁡(xn*)n=f⁡(x1*)+f⁡(x2*)+⋯+f⁡(xn*)(b−a)Δx.

Ef við höldum útreikningnum áfram sést að teljarinn er summa sem rituð er ∑i=1nf⁡(xi*), og deilt er með broti. Til að deila með broti snúum við nefnaranum við og margföldum. Nálgun á meðalgildi fallsins er því gefin með

∑i=1nf⁡(xi*)(b−a)Δx=(Δxb−a)⁢∑i=1nf⁡(xi*)=(1b−a)⁢∑i=1nf⁡(xi*)Δx.

Þetta er Riemann-summa. Til að fá nákvæmt meðalgildi tökum við markgildið þegar n stefnir á óendanlegt. Meðalgildi falls er því gefið með

1b−a⁢limn→∞⁢∑i=1nf⁡(xi)Δx=1b−a⁢∫abf⁡(x)dx.

Skilgreining

Látum f⁡(x) vera samfellt á bilinu [a,b]. Þá er meðalgildi fallsins f⁡(x) (eða fave) á [a,b] gefið með

fave=1b−a⁢∫abf⁡(x)dx.

Dæmi 5.14

Meðalgildi línulegs falls fundið

Finnið meðalgildi f⁡(x)=x+1 á bilinu [0,5].

Lausn

Teiknum fyrst graf fallsins á tilgreinda bilinu, eins og sýnt er á mynd 5.25.

Graf í fyrsta fjórðungi sem sýnir skyggða svæðið undir fallinu f(x) = x + 1 á bilinu [0,5].
Mynd 5.25. Grafið sýnir flatarmálið undir grafi fallsins f⁡(x)=x+1 á bilinu [0,5].

Svæðið er trapisa sem liggur á hlið og því má nota flatarmálsformúluna fyrir trapisu A=12⁢h⁡(a+b), þar sem h táknar hæðina og a og b tákna samsíða hliðarnar tvær. Þá fæst:

∫05x+1⁢d⁢x=12⁢h⁡(a+b)=12·5·(1+6)=352.

Meðalgildi fallsins er því

15−0⁢∫05x+1⁢d⁢x=15·352=72.

Stöðumat 5.13

Finnið meðalgildi f⁡(x)=6−2⁢x á bilinu [0,3].

Æfingar í undirkafla 5.2

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið rita markgildin sem heildi.

60.

limn→∞⁢∑i=1n(xi*)Δx á [1,3]

61.

limn→∞⁢∑i=1n(5⁢(xi*)2−3⁢(xi*)3)Δx á [0,2]

62.

limn→∞⁢∑i=1nsin2⁢(2⁢π⁢xi*)Δx á [0,1]

63.

limn→∞⁢∑i=1ncos2⁢(2⁢π⁢xi*)Δx á [0,1]

Í eftirfarandi æfingum eru Ln eða Rn gefin eins og tilgreint er. Ritið markgildi þeirra þegar n→∞ sem ákveðin heildi og tilgreinið rétt bil.

64.

Ln=1n⁢∑i=1ni−1n

65.

Rn=1n⁢∑i=1nin

66.

Ln=2n⁢∑i=1n(1+2⁢i−1n)

67.

Rn=3n⁢∑i=1n(3+3⁢in)

68.

Ln=2⁢πn⁢∑i=1n2⁢π⁢i−1n⁢cos⁡(2⁢π⁢i−1n)

69.

Rn=1n⁢∑i=1n(1+in)⁢log⁡((1+in)2)

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið reikna heildi fallanna sem sýnd eru á gröfunum. Notið flatarmálsformúlur þríhyrninga og hringa og dragið flatarmál svæðanna neðan x-ássins frá.

70.
Graf sem sýnir efri helminga þriggja hringa á x-ásnum. Sá fyrsti hefur miðju í (1,0) og radíus 1. Hann samsvarar fallinu sqrt(2x – x^2) á bilinu [0,2]. Sá annar hefur miðju í (4,0) og radíus 2. Hann samsvarar fallinu sqrt(-12 + 8x – x^2) á bilinu [2,6]. Sá síðasti hefur miðju í (9,0) og radíus 3. Hann samsvarar fallinu sqrt(-72 + 18x – x^2) á bilinu [6,12]. Allir þrír hálfhringirnir, það er svæðin undir ferlunum og ofan x-ássins, eru skyggðir.
71.
Graf þriggja jafnarma þríhyrninga sem samsvara föllunum 1 - |x-1| á [0,2], 2 - |x-4| á [2,4] og 3 - |x-9| á [6,12]. Fyrsti þríhyrningurinn hefur hornpunkta í (0,0), (2,0) og (1,1). Annar þríhyrningurinn hefur hornpunkta í (2,0), (6,0) og (4,2). Sá síðasti hefur hornpunkta í (6,0), (12,0) og (9,3). Allir þrír eru skyggðir.
72.
Graf í þremur hlutum. Fyrsti hlutinn er efri helmingur hrings með miðju í (1, 0) og radíus 1 og samsvarar fallinu sqrt(2x – x^2) á bilinu [0,2]. Annar hlutinn er þríhyrningur með hornpunkta í (2, 0), (6, 0) og (4, -2) og samsvarar fallinu |x-4| - 2 á bilinu [2, 6]. Síðasti hlutinn er efri helmingur hrings með miðju í (9, 0) og radíus 3 og samsvarar fallinu sqrt(-72 + 18x – x^2) á bilinu [6,12]. Allir þrír hlutarnir eru skyggðir.
73.
Graf þriggja skyggðra þríhyrninga. Sá fyrsti hefur hornpunkta í (0, 0), (2, 0) og (1, 1) og samsvarar fallinu 1 - |x-1| á [0, 2]. Sá annar hefur hornpunkta í (2, 0), (6, 0) og (4, -2) og samsvarar fallinu |x-4| - 2 á [2, 6]. Sá þriðji hefur hornpunkta í (6, 0), (12, 0) og (9, 3) og samsvarar fallinu 3 - |x-9| á [6, 12].
74.
Graf með þremur skyggðum hlutum. Fyrsti hlutinn er efri helmingur hrings með miðju í (1, 0) og radíus 1. Hann samsvarar fallinu sqrt(2x – x^2) á bilinu [0, 2]. Annar hlutinn er neðri helmingur hrings með miðju í (4, 0) og radíus 2 og samsvarar fallinu -sqrt(-12 + 8x – x^2) á bilinu [2, 6]. Síðasti hlutinn er efri helmingur hrings með miðju í (9, 0) og radíus 3. Hann samsvarar fallinu sqrt(-72 + 18x – x^2) á bilinu [6, 12].
75.
Graf með þremur skyggðum hlutum. Fyrsti hlutinn er þríhyrningur með hornpunkta í (0, 0), (2, 0) og (1, 1) og samsvarar fallinu 1 - |x-1| á bilinu [0, 2] í fyrsta fjórðungi. Annar hlutinn er neðri helmingur hrings með miðju í (4, 0) og radíus 2 og samsvarar fallinu –sqrt(-12 + 8x – x^2) á bilinu [2, 6]. Síðasti hlutinn er þríhyrningur með hornpunkta í (6, 0), (12, 0) og (9, 3) og samsvarar fallinu 3 - |x-9| á bilinu [6, 12].

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið reikna heildið með flatarmálsformúlum.

76.

∫03(3−x)dx

77.

∫23(3−x)dx

78.

∫−33(3−|x|)dx

79.

∫06(3−|x−3|)dx

80.

∫−224−x2dx

81.

∫154−(x−3)2dx

82.

∫01236−(x−6)2dx

83.

∫−23(3−|x|)dx

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið nota meðaltöl gilda í vinstri (L) og hægri (R) endapunktum til að reikna heildi falla sem eru línuleg á köflum. Gröf fallanna liggja um gefnu punktana á tilgreindum bilum.

84.

{(0,0),(2,1),(4,3),(5,0),(6,0),(8,3)} á [0,8]

85.

{(0,2),(1,0),(3,5),(5,5),(6,2),(8,0)} á [0,8]

86.

{(−4,−4),(−2,0),(0,−2),(3,3),(4,3)} á [−4,4]

87.

{(−4,0),(−2,2),(0,0),(1,2),(3,2),(4,0)} á [−4,4]

Gerum ráð fyrir að ∫04f⁡(x)dx=5 og ∫02f⁡(x)dx=−3, og ∫04g⁡(x)dx=−1 og ∫02g⁡(x)dx=2. Reiknið heildin í eftirfarandi æfingum.

88.

∫04(f⁡(x)+g⁡(x))dx

89.

∫24(f⁡(x)+g⁡(x))dx

90.

∫02(f⁡(x)−g⁡(x))dx

91.

∫24(f⁡(x)−g⁡(x))dx

92.

∫02(3⁢f⁡(x)−4⁢g⁡(x))dx

93.

∫24(4⁢f⁡(x)−3⁢g⁡(x))dx

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið nota samsemdina ∫−AAf⁡(x)dx=∫−A0f⁡(x)dx+∫0Af⁡(x)dx til að reikna heildin.

94.

∫−ππsin⁡t1+t2dt (Vísbending:sin⁡(−t)=−sin⁡(t))

95.

∫−ππt1+cos⁡tdt

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið finna formerkt flatarmál milli f⁡(x) og x-ássins.

96.

∫13(2−x)dx (Vísbending: Skoðið graf f.)

97.

∫24(x−3)3dx (Vísbending: Skoðið graf f.)

Gefið er að ∫01xdx=12,∫01x2dx=13, og ∫01x3dx=14, og út frá því skuluð þið reikna heildin í eftirfarandi æfingum.

98.

∫01(1+x+x2+x3)dx

99.

∫01(1−x+x2−x3)dx

100.

∫01(1−x)2dx

101.

∫01(1−2⁢x)3dx

102.

∫01(6⁢x−43⁢x2)dx

103.

∫01(7−5⁢x3)dx

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið nota samanburðarsetninguna.

104.

Sýnið að ∫03(x2−6⁢x+9)dx≥0.

105.

Sýnið að ∫−23(x−3)⁢(x+2)dx≤0.

106.

Sýnið að ∫011+x3dx≤∫011+x2dx.

107.

Sýnið að ∫121+xdx≤∫121+x2dx.

108.

Sýnið að ∫0π/2sin⁡t⁢d⁢t≥π4. (Vísbending:sin⁡t≥2⁢tπ á [0,π2])

109.

Sýnið að ∫−π/4π/4cos⁡t⁢d⁢t≥π⁢2/4.

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið finna meðalgildið fave fyrir fallið f á bilinu frá a til b og finna punkt c þannig að f⁡(c)=fave.

110.

f⁡(x)=x2,a=−1,b=1

111.

f⁡(x)=x5,a=−1,b=1

112.

f⁡(x)=4−x2,a=0,b=2

113.

f⁡(x)=(3−|x|),a=−3,b=3

114.

f⁡(x)=sin⁡x,a=0,b=2⁢π

115.

f⁡(x)=cos⁡x,a=0,b=2⁢π

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið nálga meðalgildið með Riemann-summunum L100 og R100. Hvernig ber svarinu saman við gefna nákvæma svarið?

116.

[T] y=ln⁡(x) á bilinu [1,4]; nákvæma gildið er ln⁡(256)3−3.

117.

[T] y=ex/2 á bilinu [0,1]; nákvæma gildið er 2⁢(e−1).

118.

[T] y=tan⁡x á bilinu [0,π4]; nákvæma lausnin er 2⁢ln⁡(2)π.

119.

[T] y=x+14−x2 á bilinu [−1,1]; nákvæma lausnin er π6.

Í eftirfarandi æfingum skuluð þið reikna meðalgildið með vinstri Riemann-summunum LN fyrir N=1,10,100. Hversu nákvæmar eru niðurstöðurnar miðað við gefna nákvæma gildið?

120.

[T] y=x2−4 á bilinu [0,2]; nákvæma gildið er −83.

121.

[T] y=x⁢ex2 á bilinu [0,2]; nákvæma gildið er 14⁢(e4−1).

122.

[T] y=(12)x á bilinu [0,4]; nákvæma lausnin er 1564⁢ln⁡(2).

123.

[T] y=x⁢sin⁡(x2) á bilinu [−π,0]; nákvæma gildið er cos⁡(π2)−12⁢π.

124.

Gerum ráð fyrir að A=∫02⁢πsin2⁢tdt og B=∫02⁢πcos2⁢tdt. Sýnið að A+B=2⁢π og A=B.

125.

Gerum ráð fyrir að A=∫−π/4π/4sec2⁢tdt=π og B=∫−π/4π/4tan2⁢tdt. Sýnið að A−B=π2.

126.

Sýnið að meðalgildi sin2⁢t á bilinu [0,2⁢π] sé 1/2. Ákvarðið síðan án frekari útreikninga hvort meðalgildi sin2⁢t á bilinu [0,π] sé einnig 1/2.

127.

Sýnið að meðalgildi cos2⁢t á bilinu [0,2⁢π] sé 1/2. Ákvarðið síðan án frekari útreikninga hvort meðalgildi cos2⁢(t) á bilinu [0,π] sé einnig 1/2.

128.

Útskýrið hvers vegna graf annars stigs falls p⁡(x) (fleygbogi) og graf línulegs falls ℓ⁡(x) geta haft í mesta lagi tvo skurðpunkta. Gerum ráð fyrir að p⁡(a)=ℓ⁡(a) og p⁡(b)=ℓ⁡(b), og að ∫abp⁡(t)dt>∫abℓ⁡(t)dt. Útskýrið hvers vegna ∫cdp⁡(t)>∫cdℓ⁡(t)dt þegar a≤c<d≤b.

129.

Gerum ráð fyrir að fleygboginn p⁡(x)=a⁢x2+b⁢x+c opnist niður (a<0) og hafi topppunktinn y=−b2⁢a>0. Fyrir hvaða bil [A,B] er ∫AB(a⁢x2+b⁢x+c)dx stærst?

130.

Gerum ráð fyrir að [a,b] megi skipta í hlutbil a=a0<a1<a2<⋯<aN=b þannig að annaðhvort f≥0 á [ai−1,ai] eða f≤0 á [ai−1,ai]. Setjum Ai=∫ai−1aif⁡(t)dt.

  1. Útskýrið hvers vegna ∫abf⁡(t)dt=A1+A2+⋯+AN.
  2. Útskýrið síðan hvers vegna |∫abf⁡(t)dt|≤∫ab|f⁡(t)|dt.
131.

Gerum ráð fyrir að f og g séu samfelld föll þannig að ∫cdf⁡(t)dt≤∫cdg⁡(t)dt fyrir hvert hlutbil [c,d] í [a,b]. Útskýrið hvers vegna f⁡(x)≤g⁡(x) fyrir öll gildi x.

132.

Gerum ráð fyrir að meðalgildi f á [a,b] sé 1 og að meðalgildi f á [b,c] sé 1, þar sem a<c<b. Sýnið að meðalgildi f á [a,c] sé einnig 1.

133.

Gerum ráð fyrir að skipta megi bilinu [a,b] með skiptipunktunum a=a0<a1<⋯<aN=b þannig að meðalgildi f á hverju hlutbili [ai−1,ai]=1 sé 1 fyrir hvert i=1⁢,…,N. Útskýrið hvers vegna meðalgildi f á [a,b] er þá einnig 1.

134.

Gerum ráð fyrir að fyrir hvert i með 1≤i≤N gildi ∫i−1if⁡(t)dt=i. Sýnið að ∫0Nf⁡(t)dt=N⁢(N+1)2.

135.

Gerum ráð fyrir að fyrir hvert i með 1≤i≤N gildi ∫i−1if⁡(t)dt=i2. Sýnið að ∫0Nf⁡(t)dt=N⁢(N+1)⁢(2⁢N+1)6.

136.

[T] Reiknið vinstri og hægri Riemann-summurnar L10 og R10 og meðaltal þeirra L10+R102 fyrir f⁡(t)=t2 á [0,1]. Ef vitað er að ∫01t2dt=0,⁢33–, upp á hve marga aukastafi er L10+R102 nákvæmt?

137.

[T] Reiknið vinstri og hægri Riemann-summurnar, L10 og R10, og meðaltal þeirra L10+R102 fyrir f⁡(t)=(4−t2) á [1,2]. Ef vitað er að ∫12(4−t2)dt=1,⁢66–, upp á hve marga aukastafi er L10+R102 nákvæmt?

138.

Ef ∫151+t4dt=41,7133…, hvert er þá ∫151+u4du?

139.

Metið ∫01tdt með summu með vinstri endapunktum og summu með hægri endapunktum, hvorri með einum rétthyrningi. Hvernig ber meðaltali þessara summa saman við nákvæma gildið ∫01tdt?

140.

Metið ∫01tdt með því að bera það saman við flatarmál eins rétthyrnings þar sem hæðin er jöfn gildi t í miðpunktinum t=12. Hvernig ber þessu miðpunktsmati saman við nákvæma gildið ∫01tdt?

141.

Á grafinu hér á eftir er fallið sin⁡(2⁢π⁢x) sýnt:

  1. Útskýrið hvers vegna ∫01sin⁡(2⁢π⁢t)dt=0.
  2. Útskýrið hvers vegna almennt gildir að ∫aa+1sin⁡(2⁢π⁢t)dt=0 fyrir hvaða gildi a sem er.
    Graf fallsins f(x) = sin(2pi*x) á bilinu [0, 2]. Svæðið milli grafsins og x-ássins er skyggt ofan grafsins og neðan x-ássins á bilinu [.7, 1], neðan grafsins og ofan x-ássins á bilinu [1,1.5] og ofan grafsins og neðan x-ássins á bilinu [1.5, 1.7]. Grafið er andsamhverft um t = ½ á bilinu [0,1]. Graf fallsins f(x) = sin(2pi*x) á bilinu [0, 2]. Svæðið milli grafsins og x-ássins er skyggt ofan grafsins og neðan x-ássins á bilinu [,7; 1], neðan grafsins og ofan x-ássins á bilinu [1;1,5] og ofan grafsins og neðan x-ássins á bilinu [1,5; 1,7]. Grafið er andsamhverft um t = ½ á bilinu [0,1].
142.

Ef f er 1-lotubundið (f⁡(t+1)=f⁡(t)), oddstætt og heildanlegt á [0,1], gildir þá alltaf að ∫01f⁡(t)dt=0?

143.

Ef f er 1-lotubundið og ∫01f⁡(t)dt=A, gildir þá endilega að ∫a1+af⁡(t)dt=A fyrir öll A?

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/calculus-volume-1/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

5.1 Nálgun flatarmáls

NÆSTI KAFLI

5.3 Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar