Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 5.1 Nálgun flatarmáls
    3. 5.2 Ákveðið heildi
    4. 5.3 Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar
    5. 5.4 Heildunarreglur og setningin um heildarbreytingu
    6. 5.5 Innsetning
    7. 5.6 Heildi með vísis- og lograföllum
    8. 5.7 Heildi sem skila andhverfum hornaföllum
    9. Lykilhugtök
    10. Helstu jöfnur
    11. Meginatriði
    12. Yfirlitsverkefni
  2. A | Tafla yfir heildi
  3. B | Tafla yfir afleiður
  4. C | Upprifjun fyrir stærðfræðigreiningu
  5. Atriðaskrá

Bókin og glærur

Sækja bókina (PDF)PowerPoint-glærur
Stærðfræðigreining, 1. bindi (IS)5 Heildun

5.5 Innsetning

Námsmarkmið

  • 5.5.1 Notið innsetningu til að reikna óákveðin heildi.
  • 5.5.2 Notið innsetningu til að reikna ákveðin heildi.

Undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar gaf okkur aðferð til að reikna heildi án þess að nota Riemann-summur. Ókostur aðferðarinnar er þó sá að við verðum að geta fundið stofnfall, sem er ekki alltaf auðvelt. Í þessum undirkafla skoðum við aðferð sem nefnist heildun með innsetningu og auðveldar okkur að finna stofnföll. Nánar tiltekið nýtist aðferðin þegar heildisstofninn verður til við deildun með keðjureglunni.

Í fyrstu er ef til vill ekki augljóst hvernig nota á innsetningu. Þetta er þó fyrst og fremst sjónrænt verkefni: heildisstofninn sýnir hvað gera skal og við þurfum að þekkja form fallsins. Að hverju leitum við þá? Við leitum að heildisstofni af gerðinni f⁡[g⁡(x)]⁢g′⁡(x)⁢d⁢x. Tökum sem dæmi heildið ∫(x2−3)3⁢2⁢xdx, þar sem f⁡(x)=x3,g⁡(x)=x2−3, og g′(x)=2⁢x. Þá er

f⁡[g⁡(x)]⁢g′⁡(x)=(x2−3)3⁢(2⁢x),

og heildisstofninn er því á réttu formi.

Aðferðin nefnist innsetning vegna þess að hluta heildisstofnsins er skipt út fyrir breytuna u og öðrum hluta hans fyrir du. Hún er einnig nefnd breytuskipti, enda skiptum við um breytu til að fá segð sem auðveldara er að nota heildunarreglurnar á.

Setning 5.7

Innsetning í óákveðnum heildum

Látum u=g⁡(x), þar sem g′⁡(x) er samfellt á bili, látum f⁡(x) vera samfellt á samsvarandi myndmengi fallsins g og látum F⁡(x) vera stofnfall f⁡(x). Þá gildir

∫f⁡[g⁡(x)]⁢g′⁡(x)dx=∫f⁢(u)⁢d⁢u=F⁡(u)+C=F⁡(g⁡(x))+C.
(5.19)

Sönnun

Látum f, g, u og F vera eins og tilgreint er í setningunni. Þá er

dd⁢x⁢F⁡(g⁡(x))=F′⁡(g⁡(x))⁢g′⁡(x)=f⁡[g⁡(x)]⁢g′⁡(x).

Með því að heilda báðar hliðar með tilliti til x fæst

∫f⁡[g⁡(x)]⁢g′⁡(x)dx=F⁡(g⁡(x))+C.

Ef við setjum nú inn u=g⁡(x), og d⁢u=g'(x)⁢d⁢x, fæst

∫f⁡[g⁡(x)]⁢g′⁡(x)dx=∫f⁢(u)⁢d⁢u=F⁡(u)+C=F⁡(g⁡(x))+C.

□

Snúum aftur að verkefninu sem við skoðuðum í upphafi. Látum u=x2−3 og þá er d⁢u=2⁢x⁢d⁢x. Umritum heildið með tilliti til u:

∫(x2−3)⏟u3⁢(2⁢x⁢d⁢x)⏟d⁢u=∫u3du.

Samkvæmt veldisreglunni fyrir heildi fæst

∫u3⁢d⁢u=u44+C.

Setjum upphaflegu segðina, sem rituð er með x, aftur inn í lausnina:

u44+C=(x2−3)44+C.

Við getum lýst aðferðinni almennt í lausnarleiðinni hér á eftir.

Lausnarleið

Heildun með innsetningu

  1. Skoðið heildisstofninn vandlega og veljið segð g⁡(x) í honum sem setja á jafnt og u. Veljið g⁡(x) þannig að g′⁡(x) sé einnig hluti af heildisstofninum.
  2. Setjið u=g⁡(x) og d⁢u=g′⁡(x)⁢d⁢x inn í heildið.
  3. Nú ætti að vera hægt að reikna heildið með tilliti til u. Ef það tekst ekki þarf að fara til baka og velja aðra segð fyrir u.
  4. Reiknið heildið með tilliti til u.
  5. Skrifið niðurstöðuna með breytunni x og segðinni g⁡(x).

Dæmi 5.30

Innsetning notuð til að finna stofnfall

Notið innsetningu til að finna stofnfallið ∫6⁢x⁢(3⁢x2+4)4dx.

Lausn

Fyrsta skrefið er að velja segð fyrir u. Við veljum u=3⁢x2+4 því þá er d⁢u=6⁢x⁢d⁢x, og du er þegar í heildisstofninum. Skrifum heildið með tilliti til u:

∫6⁢x⁢(3⁢x2+4)4dx=∫u4du.

Munið að du er afleiða segðarinnar sem valin er fyrir u, óháð því hvað annað er í heildisstofninum. Nú getum við reiknað heildið með tilliti til u:

∫u4du=u55+C=(3⁢x2+4)55+C.

Greining

Við getum sannreynt svarið með því að deilda niðurstöðuna. Þá ættum við að fá heildisstofninn. Veljum C = 1 og látum y=15⁢(3⁢x2+4)5+1. Þá fæst

y=15⁢(3⁢x2+4)5+1,

því

y′=(15)⁢5⁢(3⁢x2+4)4⁢6⁢x=6⁢x⁢(3⁢x2+4)4.

Þetta er nákvæmlega segðin sem var í heildisstofninum í upphafi.

Stöðumat 5.25

Notið innsetningu til að finna stofnfallið ∫3⁢x2⁢(x3−3)2dx.

Stundum þarf að laga fastana í heildinu þegar þeir samsvara ekki nákvæmlega segðunum sem settar eru inn.

Dæmi 5.31

Innsetning með aðlögun

Notið innsetningu til að finna ∫z⁢z2−5dz.

Lausn

Umritum heildið sem ∫z⁢(z2−5)1/2dz. Látum u=z2−5 og d⁢u=2⁢zd⁢z. Nú kemur upp vandi því d⁢u=2⁢zd⁢z en í upphaflegu segðinni er aðeins zd⁢z. Við verðum að breyta segðinni fyrir du, annars verður heildið með tilliti til u tvöfalt stærra en það á að vera. Við leysum vandann með því að margfalda báðar hliðar jöfnunnar fyrir du með 12. Þá fæst

u=z2−5d⁢u=2⁢zd⁢z12⁢d⁢u=12⁢(2⁢z)⁢d⁢z=zd⁢z.

Skrifum heildið með tilliti til u en tökum 12 út fyrir heildistáknið:

∫z⁢(z2−5)1/2⁢d⁢z=⁢12⁢∫u1/2⁢d⁢u.

Heildum segðina með tilliti til u:

12⁢∫u1/2du=(12)⁢u3/232+C=(12)⁢(23)⁢u3/2+C=13⁢u3/2+C=13⁢(z2−5)3/2+C.

Stöðumat 5.26

Notið innsetningu til að finna ∫x2⁢(x3+5)9dx.

Dæmi 5.32

Innsetning í heildum hornafalla

Notið innsetningu til að reikna heildið ∫sin⁡tcos3⁢tdt.

Lausn

Við vitum að afleiða cos⁡t er −sin⁡t, og því setjum við u=cos⁡t. Þá er d⁢u=−sin⁡t⁢d⁢t. Með innsetningu í heildið fæst

∫sin⁡tcos3⁢t⁢d⁢t=−∫duu3.

Þegar heildið er reiknað fæst

−∫duu3=−∫u−3du=−(−12)⁢u−2+C.

Þegar svarið er aftur sett fram með tilliti til t fæst

∫sin⁡tcos3⁢tdt=12⁢u2+C=12⁢cos2⁢t+C.

Stöðumat 5.27

Notið innsetningu til að reikna heildið ∫cos⁡tsin2⁢t⁢d⁢t.

Stundum þarf að umrita heildi á flóknari hátt en með því einu að margfalda eða deila með fasta. Fjarlægja þarf allar segðir í heildisstofninum sem eru settar fram með upphaflegu breytunni. Að því loknu á u að vera eina breytan í heildisstofninum. Í sumum tilvikum þarf því að einangra upphaflegu breytuna og rita hana með u. Næsta dæmi skýrir þessa aðferð.

Dæmi 5.33

Stofnfall fundið með u-innsetningu

Notið innsetningu til að finna stofnfallið ∫xx−1⁢d⁢x.

Lausn

Ef við látum u=x−1, þá er d⁢u=d⁢x. Þá er þó ekki tekið tillit til x í teljara heildisstofnsins. Við þurfum að rita x með u. Ef u=x−1, þá er x=u+1. Nú getum við umritað heildið með tilliti til u:

∫xx−1dx=∫u+1udu=∫u+1u⁢d⁢u=∫(u1/2+u−1/2)du.

Síðan heildum við á venjulegan hátt, setjum upphaflegu segðina í stað u og þáttum og einföldum niðurstöðuna. Þá fæst

∫(u1/2+u−1/2)du=23⁢u3/2+2⁢u1/2+C=23⁢(x−1)3/2+2⁢(x−1)1/2+C=(x−1)1/2⁢[23⁢(x−1)+2]+C=(x−1)1/2⁢(23⁢x−23+63)+C=(x−1)1/2⁢(23⁢x+43)+C=23⁢(x−1)1/2⁢(x+2)+C.

Stöðumat 5.28

Notið innsetningu til að reikna óákveðna heildið ∫cos3⁢t⁢sin⁡td⁢t.

Innsetning í ákveðnum heildum

Einnig má nota innsetningu í ákveðnum heildum. Þegar ákveðið heildi er reiknað með innsetningu þarf þó að breyta heildismörkunum. Ef skipt er um breytu í heildisstofninum breytast heildismörkin jafnframt.

Setning 5.8

Innsetning í ákveðnum heildum

Látum u=g⁡(x) og látum g′ vera samfellt á bilinu [a,b], og látum f vera samfellt á myndmengi u=g⁡(x). Þá gildir

∫abf⁡(g⁡(x))⁢g′⁡(x)⁢d⁢x=∫g⁡(a)g⁡(b)f⁡(u)du.

Við sönnum setninguna ekki formlega en rökstyðjum hana hér með nokkrum útreikningum. Ef F⁡(x) er stofnfall f⁡(x), fæst samkvæmt innsetningarreglunni fyrir óákveðin heildi

∫f⁡(g⁡(x))⁢g′⁡(x)⁢d⁢x=F⁡(g⁡(x))+C.

Þá er

∫abf⁡[g⁡(x)]⁢g′⁡(x)dx=F⁡(g⁡(x))|x=ax=b=F⁡(g⁡(b))−F⁡(g⁡(a))=F⁡(u)|u=g⁡(a)u=g⁡(b)=∫g⁡(a)g⁡(b)f⁢(u)⁢d⁢u,
(5.20)

og þar með fæst niðurstaðan sem sýna átti.

Dæmi 5.34

Ákveðið heildi reiknað með innsetningu

Notið innsetningu til að reikna ∫01x2⁢(1+2⁢x3)5⁢d⁢x.

Lausn

Látum u=1+2⁢x3, þannig að d⁢u=6⁢x2⁢d⁢x. Þar sem upphaflegi heildisstofninn inniheldur þáttinn x 2 og d⁢u=6⁢x2⁢d⁢x, margföldum við báðar hliðar jöfnunnar fyrir du með 1/6. Þá fæst

d⁢u=6⁢x2⁢d⁢x16⁢d⁢u=x2⁢d⁢x.

Til að laga heildismörkin athugum við að þegar x=0,u=1+2⁢(0)=1, og þegar x=1,u=1+2⁢(1)=3. Þá er

∫01x2⁢(1+2⁢x3)5⁢d⁢x=16⁢∫13u5du.

Þegar segðin er reiknuð fæst

16⁢∫13u5du=(16)⁢(u66)|13=136⁢[(3)6−(1)6]=1829.

Stöðumat 5.29

Notið innsetningu til að reikna ákveðna heildið ∫−10y⁢(2⁢y2−3)5dy.

Dæmi 5.35

Innsetning notuð með vísisfalli

Notið innsetningu til að reikna ∫01x⁢e4⁢x2+3dx.

Lausn

Látum u=4⁢x2+3. Þá er d⁢u=8⁢x⁢d⁢x. Til að laga heildismörkin athugum við að þegar x=0,u=3, og þegar x=1,u=7. Innsetningin gefur því

∫01x⁢e4⁢x2+3dx=18⁢∫37eudu=18⁢eu|37=e7−e38≈134,568.

Stöðumat 5.30

Notið innsetningu til að reikna ∫01x2⁢cos⁡(π2⁢x3)dx.

Stundum er innsetning aðeins ein af nokkrum aðferðum sem þarf til að reikna ákveðið heildi. Allir eiginleikar og allar reglur heildunar gilda eftir sem áður og stundum þarf að umrita hornaföll með hornafallasamsemd áður en hægt er að beita innsetningu. Einnig má setja upphaflegu segðina aftur í stað u eftir að stofnfallið hefur verið fundið og þá þarf ekki að breyta heildismörkunum. Þessar tvær leiðir eru sýndar í dæmi 5.36.

Dæmi 5.36

Hornafallsheildi reiknað með innsetningu

Notið innsetningu til að reikna ∫0π/2cos2⁢θdθ.

Lausn

Notum fyrst hornafallasamsemd til að umrita heildið. Með samsemdinni cos2⁢θ=1+cos⁡2⁢θ2 má umrita heildið sem

∫0π/2cos2⁢θdθ=∫0π/21+cos⁡2⁢θ2⁢d⁢θ.

Þá er

∫0π/2(1+cos⁡2⁢θ2)⁢d⁢θ=∫0π/2(12+12⁢cos⁡2⁢θ)dθ=12⁢∫0π/2dθ+12⁢∫0π/2cos⁡2⁢θ⁢d⁢θ.

Fyrra heildið má reikna eins og það stendur en nota þarf innsetningu til að reikna það síðara. Látum u=2⁢θ. Þá er d⁢u=2⁢d⁢θ, eða 12⁢d⁢u=d⁢θ. Auk þess gildir að þegar θ=0,u=0, og þegar θ=π/2,u=π. Ef síðara heildið er ritað með u fæst

12⁢∫0π/2d⁢θ+12⁢∫0π/2cos⁡2⁢θ⁢d⁢θ=12⁢∫0π/2d⁢θ+12⁢(12)⁢∫0πcos⁡u⁢d⁢u=θ2⁢|θ=0θ=π/2+14⁢sin⁡u|u=0u=π=(π4−0)+(0−0)=π4.

Æfingar í undirkafla 5.5

254.

Hvers vegna er u-innsetning einnig nefnd breytuskipti?

255.

2. Ef f=g∘h, þegar keðjureglunni er beitt öfugt, dd⁢x⁢(g∘h)⁡(x)=g′⁡(h⁡(x))⁢h′⁡(x), ættuð þið að velja u=g⁡(x) eða u=h⁡(x)?

Sannreynið hverja samsemd í eftirfarandi æfingum með deildun. Notið síðan tilgreinda u-innsetningu og ákvarðið f þannig að heildið verði á forminu ∫f⁡(u)du.

256.

∫x⁢x+1⁢d⁢x=215⁢(x+1)3/2⁢(3⁢x−2)+C;u=x+1

257.

Fyrir x>1:∫x2x−1dx=215⁢x−1⁢(3⁢x2+4⁢x+8)+C;u=x−1

258.

∫x⁢4⁢x2+9⁢d⁢x=112⁢(4⁢x2+9)3/2+C;u=4⁢x2+9

259.

∫x4⁢x2+9⁢d⁢x=14⁢4⁢x2+9+C;u=4⁢x2+9

260.

∫x(4⁢x2+9)2⁢d⁢x=−18⁢(4⁢x2+9);u=4⁢x2+9

Finnið stofnfallið í eftirfarandi æfingum með tilgreindri innsetningu.

261.

∫(x+1)4dx;u=x+1

262.

∫(x−1)5dx;u=x−1

263.

∫(2⁢x−3)−7dx;u=2⁢x−3

264.

∫(3⁢x−2)−11dx;u=3⁢x−2

265.

∫xx2+1dx;u=x2+1

266.

∫x1−x2dx;u=1−x2

267.

∫(x−1)⁢(x2−2⁢x)3dx;u=x2−2⁢x

268.

∫(x2−2⁢x)⁢(x3−3⁢x2)2dx;u=x3–3⁢x2

269.

∫cos3⁢θdθ;u=sin⁡θ (Vísbending:cos2⁢θ=1−sin2⁢θ)

270.

∫sin3⁢θdθ;u=cos⁡θ (Vísbending:sin2⁢θ=1−cos2⁢θ)

Notið viðeigandi breytuskipti í eftirfarandi æfingum til að reikna óákveðna heildið.

271.

∫x⁢(1−x)99dx

272.

∫t⁢(1−t2)10dt

273.

∫(11⁢x−7)−3dx

274.

∫(7⁢x−11)4dx

275.

∫cos3⁢θ⁢sin⁡θ⁢d⁢θ

276.

∫sin7⁢θ⁢cos⁡θ⁢d⁢θ

277.

∫cos2⁢(π⁢t)⁢sin⁡(π⁢t)dt

278.

∫sin2⁢x⁢cos3⁢xdx (Vísbending:sin2⁢x+cos2⁢x=1)

279.

∫t⁢sin⁡(t2)⁢cos⁡(t2)dt

280.

∫t2⁢cos2⁢(t3)⁢sin⁡(t3)⁢d⁢t

281.

∫x2(x3−3)2dx

282.

∫x31−x2dx

283.

∫y5(1−y3)3/2dy

284.

∫cos⁡θ⁢(1−cos⁡θ)99sin⁡θ⁢d⁢θ

285.

∫(1−cos3⁢θ)10cos2⁢θ⁢sin⁡θ⁢d⁢θ

286.

∫(cos⁡θ−1)⁢(cos2⁢θ−2⁢cos⁡θ)3⁢sin⁡θ⁢d⁢θ

287.

∫(sin2⁢θ−2⁢sin⁡θ)⁢(sin3⁢θ−3⁢sin2⁢θ)3⁢cos⁡θ⁢d⁢θ

Notið reiknivél í eftirfarandi æfingum til að áætla flatarmálið undir ferlinum með vinstri Riemann-summu með 50 liðum. Notið síðan innsetningu til að finna nákvæmt svar.

288.

[T] y=3⁢(1−x)2 á bilinu [0,2]

289.

[T] y=x⁢(1−x2)3 á bilinu [−1,2]

290.

[T] y=sin⁡x⁢(1−cos⁡x)2 á bilinu [0,π]

291.

[T] y=x(x2+1)2 á bilinu [−1,1]

Notið breytuskipti í eftirfarandi æfingum til að reikna ákveðna heildið.

292.

∫01x⁢1−x2⁢d⁢x

293.

∫01x1+x2dx

294.

∫02t5+t2dt

295.

∫01t21+t3dt

296.

∫0π/4sec2⁢θ⁢tan⁡θ⁢d⁢θ

297.

∫0π/4sin⁡θcos4⁢θdθ

Reiknið í eftirfarandi æfingum óákveðna heildið ∫f⁡(x)dx þar sem fastinn er C=0 og notið u-innsetningu. Teiknið síðan gröf fallsins og stofnfallsins á tilgreinda bilinu. Áætlið, ef hægt er, hvaða gildi C þarf að bæta við stofnfallið svo að það verði jafnt ákveðna heildinu F⁡(x)=∫axf⁡(t)dt, þar sem a er vinstri endapunktur gefna bilsins.

298.

[T] ∫(2⁢x+1)⁢ex2+x−6dx á bilinu [−3,2]

299.

[T] ∫cos⁡(ln⁡(2⁢x))xdx á bilinu [0,2]

300.

[T] ∫3⁢x2+2⁢x+1x3+x2+x+4dx á bilinu [−1,2]

301.

[T] ∫sin⁡xcos3⁢xdx á bilinu [−π3,π3]

302.

[T] ∫(x+2)⁢e−x2−4⁢x+3dx á bilinu [−5,1]

303.

[T] ∫3⁢x2⁢2⁢x3+1⁢d⁢x á bilinu [0,1]

304.

Ef h⁡(a)=h⁡(b) í ∫abg′(h⁡(x))⁢h′(x)⁢d⁢x, hvað má þá segja um gildi heildisins?

305.

Er innsetningin u=1−x2 í ákveðna heildinu ∫02x1−x2dx gild? Ef ekki, hvers vegna?

Notið breytuskipti í eftirfarandi æfingum til að sýna að hvert ákveðið heildi sé núll.

306.

∫0πcos2⁢(2⁢θ)⁢sin⁡(2⁢θ)dθ

307.

∫0πt⁢cos⁡(t2)⁢sin⁡(t2)dt

308.

∫01(1−2⁢t)dt

309.

∫011−2⁢t(1+(t−12)2)dt

310.

∫0πsin⁡((t−π2)3)⁢cos⁡(t−π2)dt

311.

∫02(1−t)⁢cos⁡(π⁢t)dt

312.

∫π/43⁢π/4sin2⁢t⁢cos⁡t⁢d⁢t

313.

Sýnið að meðalgildi f⁡(x) á bilinu [a,b] sé jafnt meðalgildi f⁡(c⁢x) á bilinu [ac,bc] þegar c>0.

314.

Finnið flatarmálið undir grafi f⁡(t)=t(1+t2)a milli t=0 og t=x þar sem a er fasti sem uppfyllir a>0 og a≠1. Reiknið síðan markgildið þegar x→∞.

315.

Finnið flatarmálið undir grafi g⁡(t)=t(1−t2)a milli t=0 og t=x, þar sem 0<x<1 og a er fasti sem uppfyllir a>0. Reiknið markgildið þegar x→1.

316.

Flatarmál hálfhrings með radíus 1 má rita sem ∫−111−x2dx. Notið innsetninguna x=cos⁡t til að rita flatarmál hálfhrings sem heildi hornafalls. Ekki þarf að reikna heildið.

317.

Langás sporbaugs er x-ásinn frá x=−a til x=a og skammás hans er y-ásinn frá y=−b til y=b. Flatarmál efri helmings sporbaugsins má rita sem ∫−aab⁢1−x2a2dx. Notið innsetninguna x=a⁢cos⁡t til að rita flatarmálið sem heildi hornafalls. Ekki þarf að reikna heildið.

318.

[T] Eftirfarandi graf sýnir fall af gerðinni f⁡(t)=a⁢sin⁡(n⁢t)+b⁢sin⁡(m⁢t). Áætlið stuðlana a og b og tíðnistikana n og m. Notið áætluðu gildin til að nálga ∫0πf⁡(t)dt.

Graf falls af gefinni gerð á bilinu [0, 2π] hefur sex vendipunkta. Þeir eru rétt á undan π/4, rétt á eftir π/2, milli 3π/4 og π, milli π og 5π/4, rétt á undan 3π/2 og rétt á eftir 7π/4; fallgildin eru um það bil 3, −2, 1, −1, 2 og −3. Grafið hefst í upphafspunktinum og endar í (2π, 0). Það sker x-ásinn milli π/4 og π/2, rétt á undan 3π/4, við π, rétt á eftir 5π/4 og milli 3π/2 og 4π/4.
319.

[T] Eftirfarandi graf sýnir fall af gerðinni f⁡(x)=a⁢cos⁡(n⁢t)+b⁢cos⁡(m⁢t). Áætlið stuðlana a og b og tíðnistikana n og m. Notið áætluðu gildin til að nálga ∫0π2f⁡(t)dt.

Grafið sýnir fall af gefinni gerð á bilinu [0, 2π]. Það hefst í (0, 1) og endar í (2π, 1). Grafið hefur fimm vendipunkta: rétt á eftir π/4, milli π/2 og 3π/4, við π, milli 5π/4 og 3π/2 og rétt á undan 7π/4; fallgildin eru um það bil −1,5, 2,5, −3, 2,5 og −1. Það sker x-ásinn milli 0 og π/4, rétt á undan π/2, rétt á eftir 3π/4, rétt á undan 5π/4, rétt á eftir 3π/2 og milli 7π/4 og 2π.

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/calculus-volume-1/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

5.4 Heildunarreglur og setningin um heildarbreytingu

NÆSTI KAFLI

5.6 Heildi með vísis- og lograföllum