4.2.1 Teikna stefnuvið fyrir gefna fyrsta stigs deildajöfnu.
4.2.2 Nota stefnuvið til að teikna lausnarferil fyrsta stigs deildajöfnu.
4.2.3 Nota aðferð Eulers til að nálga lausn fyrsta stigs deildajöfnu.
Það sem eftir er kaflans beinum við sjónum að ýmsum aðferðum til að leysa deildajöfnur og greina hegðun lausna þeirra. Stundum er hægt að segja fyrir um eiginleika lausnar deildajöfnu án þess að þekkja lausnina sjálfa. Við skoðum einnig tölulegar aðferðir til að leysa deildajöfnur. Þær má forrita í ýmsum forritunarmálum eða jafnvel útfæra í töflureikni á borð við Microsoft Excel.
Stefnuvið búin til
Stefnuvið (einnig kölluð hallasvið) nýtast vel við rannsókn fyrsta stigs deildajafna. Við skoðum sérstaklega fyrsta stigs deildajöfnu á forminu
Hagnýtt dæmi um deildajöfnu af þessu tagi kemur fyrir í kólnunarlögmáli Newtons, sem við leysum nákvæmlega síðar í kaflanum. Fyrst búum við þó til stefnuvið fyrir deildajöfnuna
Hér táknar hitastig hlutar (í Fahrenheit-gráðum) á tímanum en umhverfishitinn er Mynd 4.6 sýnir stefnuvið jöfnunnar.
Mynd 4.6. Stefnuvið deildajöfnunnar Tvær lausnir eru teiknaðar: önnur hefur lægra upphafshitastig en en hin hærra upphafshitastig en
Hugmyndin að baki stefnuviði byggist á því að afleiða falls í tilteknum punkti er hallatala snertils við graf fallsins í sama punkti. Önnur dæmi um deildajöfnur sem hægt er að búa til stefnuvið fyrir eru
Til að búa til stefnuvið byrjum við á fyrstu jöfnunni: Látum vera einhverja raðaða tvennd og setjum tölurnar inn í hægri hlið deildajöfnunnar. Ef við veljum til dæmis fæst við innsetningu í hægri hlið deildajöfnunnar
Þetta segir okkur að ef lausn deildajöfnunnar fer í gegnum punktinn þá verður hallatala lausnarinnar í þeim punkti að vera Við byrjum að búa til stefnuviðið með því að teikna stutt strik í punktinum sem hefur hallatöluna Þetta má gera fyrir sérhvern punkt í formengi fallsins sem samanstendur af öllum röðuðum tvenndum í Þannig tengist hallatala hverjum punkti í kartesíska planinu, að því gefnu að lausn deildajöfnunnar fari í gegnum punktinn. Stefnuvið deildajöfnunnar er sýnt á mynd 4.7.
Mynd 4.7. Stefnuvið deildajöfnunnar
Við getum búið til stefnuvið af þessu tagi fyrir sérhverja deildajöfnu á forminu
Stefnuvið notuð
Með stefnuviði getum við sagt fyrir um hegðun lausna deildajöfnu án þess að þekkja lausnina sjálfa. Stefnuviðið á mynd 4.7 leiðbeinir okkur til dæmis um hegðun lausna deildajöfnunnar
Til að nota stefnuvið veljum við fyrst einhvern punkt í stefnuviðinu. Strikið í punktinum er eins konar vegvísir sem sýnir í hvaða átt halda skal þaðan. Ef lausn deildajöfnunnar fer til dæmis í gegnum punktinn er hallatala lausnarinnar í punktinum gefin með Látum nú aukast lítillega, til dæmis í Með línulegri nálgun fæst formúla fyrir nálgað gildi þegar Nánar tiltekið fæst
Þegar er sett inn í fæst nálgaða -gildið
Í þessum punkti breytist hallatala lausnarinnar, aftur samkvæmt deildajöfnunni. Við getum haldið áfram, endurreiknað hallatölu lausnarinnar eftir hvert lítið skref til hægri og fylgst með hegðun hennar. Mynd 4.8 sýnir graf lausnarinnar sem fer í gegnum punktinn
Mynd 4.8. Stefnuvið deildajöfnunnar ásamt lausninni sem fer í gegnum punktinn
Ferillinn er graf lausnar upphafsgildisverkefnisins
Þessi ferill nefnist lausnarferillinn sem fer í gegnum punktinn Nákvæm lausn upphafsgildisverkefnisins er
og graf lausnarinnar fellur saman við ferilinn á mynd 4.8.
Skoðum nú stefnuvið deildajöfnunnar sem sýnt er á mynd 4.9. Stefnuviðið hefur nokkra athyglisverða eiginleika. Í fyrsta lagi sjást lárétt strik þvert yfir grafið þegar og sem merkir að ef þá er Þegar þessi stæða er sett inn í hægri hlið deildajöfnunnar fæst
Því er lausn deildajöfnunnar. Á sama hátt er lausn hennar. Þetta eru einu fastalausnir deildajöfnunnar, eins og eftirfarandi röksemd sýnir. Gerum ráð fyrir að sé fastalausn deildajöfnunnar. Þá er Þegar þessi stæða er sett inn í deildajöfnuna fæst Jafnan verður að gilda fyrir öll gildi svo seinni þátturinn verður að vera núll. Þá fæst jafnan Lausnir hennar eru og en það eru fastalausnirnar sem þegar hafa verið nefndar. Þær kallast jafnvægislausnir deildajöfnunnar.
Mynd 4.9. Stefnuvið deildajöfnunnar ásamt tveimur lausnum. Lausnirnar liggja mjög nálægt hvor annarri, en önnur er rétt ofan við jafnvægislausnina og hin rétt neðan við sömu jafnvægislausn.
Til að finna jafnvægislausnir deildajöfnunnar setjum við hægri hliðina jafna núlli. Jafnvægislausn deildajöfnunnar er sérhvert fall á forminu þannig að fyrir öll gildi í formengi
Mikilvægur eiginleiki jafnvægislausna er hvort þær nálgast línuna sem aðfellu fyrir stór gildi
Snúum okkur nú aftur að deildajöfnunni með upphafsskilyrðinu Stefnuvið upphafsgildisverkefnisins ásamt samsvarandi lausn er sýnt á mynd 4.10.
Mynd 4.10. Stefnuvið upphafsgildisverkefnisins
Gildi lausnar upphafsgildisverkefnisins haldast á milli og sem eru jafnvægislausnir deildajöfnunnar. Lausn upphafsgildisverkefnis sem byrjar með getur hins vegar aldrei farið yfir jafnvægislausnirnar og . Þar sem og er minnkandi og stefnir því á . Því er aðfellustöðug lausn deildajöfnunnar.
Hvað gerist þegar upphafsgildið er minna en Þetta tilvik er sýnt á mynd 4.11 með upphafsgildinu
Mynd 4.11. Stefnuvið upphafsgildisverkefnisins
Við sjáum að fyrir upphafsgildi og þegar er vaxandi og stefnir á . Þetta staðfestir enn frekar að er aðfellustöðug lausn deildajöfnunnar.
Dæmi 4.8
Stöðugleiki jafnvægislausnar
Búið til stefnuvið deildajöfnunnar og finnið allar jafnvægislausnir. Flokkið hverja þeirra sem stöðuga, óstöðuga eða hálfstöðuga.
Mynd 4.12. Stefnuvið deildajöfnunnar y ′ = ( y − 3 ) 2 ( y2 + y − 2 ) .
Jafnvægislausnirnar eru og Til að flokka lausnirnar skoðum við ör beint ofan eða neðan við hvert þessara gilda. Við vísa örvarnar beint neðan við lausnina til dæmis upp en örvarnar beint ofan við hana niður. Öll upphafsskilyrði nálægt nálgast því og lausnin er stöðug. Fyrir lausnina hrindast öll upphafsskilyrði ofan og neðan við frá svo lausnin er óstöðug. Lausnin er hálfstöðug því að fyrir upphafsskilyrði örlítið stærri en stefnir lausnin á óendanlegt, en fyrir upphafsskilyrði örlítið minni en stefnir hún á
Greining
Jafnvægislausnir deildajöfnunnar má finna með því að setja hægri hliðina jafna núlli og leysa jöfnuna með tilliti til Þessi aðferð gefur sömu jafnvægislausnir og sáust í stefnuviðinu.
Aðferð Eulers
Skoðum upphafsgildisverkefnið
Þegar báðar hliðar deildajöfnunnar eru heildaðar fæst og þegar jafnan er leyst með tilliti til fæst sérlausnin Lausn upphafsgildisverkefnisins er fleygboginn á mynd 4.13.
Mynd 4.13. Aðferð Eulers fyrir upphafsgildisverkefnið
Rauða grafið er myndað úr strikum sem nálga lausn upphafsgildisverkefnisins. Grafið byrjar í sama upphafsgildi, Hallatala lausnarinnar í hverjum punkti ræðst síðan af hægri hlið deildajöfnunnar og lengd striksins af því að -gildið er aukið um í hvert sinn (það er skrefstærð). Þessi nálgun er undirstaða aðferðar Eulers.
Áður en aðferð Eulers er sett fram sem setning skulum við skoða annað upphafsgildisverkefni:
Hugmyndina að baki stefnuviðum má einnig nota til að rannsaka hegðun lausnar þessa verkefnis. Í punktinum er hallatala lausnarinnar til dæmis gefin með svo hallatala snertils við lausnina í punktinum er einnig Skilgreinum nú og Þar sem hallatala lausnarinnar í þessum punkti er getum við notað línulega nálgun til að nálga í grennd við
Hér er og svo línulega nálgunin verður
Nú veljum við skrefstærð. Skrefstærðin er lítið gildi, venjulega eða minna, sem notað er til að hækka skrefstærðin er táknuð með breytunni Í dæminu látum við Þegar er hækkað um fæst næsta -gildi:
Við getum sett inn í línulegu nálgunina til að reikna
Nálgað -gildi lausnarinnar þegar er því Við getum síðan endurtekið ferlið og notað og til að reikna og Nýja hallatalan er gefin með Fyrst fæst Með línulegri nálgun fæst síðan
Að lokum setjum við inn í línulegu nálgunina til að reikna
Nálgað gildi lausnar deildajöfnunnar er því þegar
Þetta er hugmyndin að baki aðferð Eulers. Með því að endurtaka skrefin fæst listi af gildum lausnarinnar. Tafla 4.2 sýnir gildin námunduð að fjórum aukastöfum.
n
0
1
2
3
4
5
−1
−0.9
−0.8
−0.7
−0.6
−0.5
2
1.7
1.492
1.3334
1.2046
1.0955
n
6
7
8
9
10
−0.4
−0.3
−0.2
−0.1
0
1.0004
1.9164
1.8414
1.7746
1.7156
Venjulega er lítið gildi, til dæmis eða Því minna gildi sem valið er fyrir þeim mun fleiri útreikninga þarf. Því stærra gildi sem valið er fyrir þeim mun færri útreikninga þarf. Á móti kemur að stærri skrefstærð gefur minni nákvæmni, eins og mynd 4.14 sýnir.
Mynd 4.14. Aðferð Eulers fyrir upphafsgildisverkefnið með (a) skrefstærð og (b) skrefstærð
Dæmi 4.9
Aðferð Eulers notuð
Skoðum upphafsgildisverkefnið
Notið aðferð Eulers með skrefstærð til að búa til töflu yfir gildi lausnarinnar þegar er á milli og
Lausn
Gefið er að og Auk þess leiðir upphafsskilyrðið til þess að og Með jöfnu 4.2 og fæst tafla 4.3.
n
x n
y n = y n − 1 + h f ( x n − 1 , y n − 1 )
0
0
2
1
0.1
y1 = y0 + h f ( x0 , y0 ) = 1.7
2
0.2
y2 = y1 + h f ( x1 , y1 ) = 1.514
3
0.3
y3 = y2 + h f ( x2 , y2 ) = 1.3968
4
0.4
y4 = y3 + h f ( x3 , y3 ) = 1.3287
5
0.5
y5 = y4 + h f ( x4 , y4 ) = 1.3001
6
0.6
y6 = y5 + h f ( x5 , y5 ) = 1.3061
7
0.7
y7 = y6 + h f ( x6 , y6 ) = 1.3435
8
0.8
y8 = y7 + h f ( x7 , y7 ) = 1.4100
9
0.9
y9 = y8 + h f ( x8 , y8 ) = 1.5032
10
1.0
y10 = y9 + h f ( x9 , y9 ) = 1.6202
Með tíu útreikningum getum við nálgað gildi lausnar upphafsgildisverkefnisins þegar er á milli og
Æfingar úr hluta 4.2
Í eftirfarandi verkefnum skal nota stefnuviðið hér fyrir neðan fyrir deildajöfnuna Skissið graf lausnarinnar fyrir gefin upphafsskilyrði.
66.
67.
68.
69.
Eru til jafnvægislausnir? Hver er stöðugleiki þeirra?
Í eftirfarandi verkefnum skal nota stefnuviðið hér fyrir neðan fyrir deildajöfnuna Skissið graf lausnarinnar fyrir gefin upphafsskilyrði.
70.
71.
72.
73.
Eru til jafnvægislausnir? Hver er stöðugleiki þeirra?
Teiknið stefnuvið eftirfarandi deildajafna og leysið síðan deildajöfnurnar.
74.
75.
76.
77.
78.
Teiknið stefnuvið eftirfarandi deildajafna. Hvað má segja um hegðun lausnanna? Eru til jafnvægislausnir? Hver er stöðugleiki þeirra?
79.
80.
81.
82.
83.
Parið stefnuviðin við gefnar deildajöfnur. Rökstyðjið val ykkar.
84.
85.
86.
87.
88.
Parið stefnuviðin við gefnar deildajöfnur. Rökstyðjið val ykkar.
89.
90.
91.
92.
93.
Nálgið eftirfarandi lausnir með aðferð Eulers í skrefum yfir bilið Ef hægt er að leysa upphafsgildisverkefnið nákvæmlega skal bera nálgunina saman við nákvæmu lausnina. Ef ekki er hægt að leysa það nákvæmlega er nákvæma lausnin gefin til samanburðar við aðferð Eulers. Hversu nákvæm er aðferð Eulers?
94.
95.
96.
Nákvæma lausnin er
97.
Nákvæma lausnin er
98.
99.
[T] Nákvæma lausnin er
100.
Nákvæma lausnin er
101.
Nákvæma lausnin er
102.
Nákvæma lausnin er
103.
Nákvæma lausnin er
Nota má deildajöfnur til að setja fram líkön af farsóttum. Í næstu verkefnum skoðum við hvernig stærð tveggja hópa borgarbúa breytist: þeirra sem eru smitaðir og þeirra sem eru móttækilegir fyrir smiti. táknar fjölda móttækilegra einstaklinga og fjölda smitaðra. Við gerum ráð fyrir að þegar móttækilegur einstaklingur hittir smitaðan einstakling séu líkurnar á því að sá móttækilegi smitist. Hver smitaður einstaklingur nær bata eftir sýkinguna með hraðanum og verður þá aftur móttækilegur fyrir smiti. Við skoðum inflúensu og gerum ráð fyrir að enginn deyi af völdum sjúkdómsins. Heildarfjöldi einstaklinga í hópunum tveimur er því fastinn Deildajöfnurnar sem lýsa stærð hópanna eru
Hér táknar snertitíðnina og batahraðann.
104.
Sýnið að samkvæmt forsendunni um fastan heildarfjölda, megi einfalda kerfið í eina deildajöfnu fyrir
105.
Gerið ráð fyrir að stikarnir séu og og teiknið stefnuviðið sem fæst.
106.
[T] Notið tölvuhugbúnað eða reiknivél til að reikna nálgaða lausn upphafsgildisverkefnisins með aðferð Eulers og gefinni skrefstærð Finnið lausnina við sem fall af Ábending: Hér er gervikóði sem sýnir hvernig skrifa má tölvuforrit til að framkvæma aðferð Eulers fyrir
Búið til fallið
Skilgreinið stikana
skrefstærðina og heildarfjölda skrefa .
Skrifið
for-lykkju:
for
Notið svar ykkar við æfingu 4.106 til að leysa eftirfarandi verkefni.
107.
Leysið upphafsgildisverkefnið og finnið nákvæmu lausnina.
108.
Teiknið stefnuviðið.
109.
Reiknið með
110.
Reiknið með [T]
111.
Reiknið með [T]
112.
Reiknið með [T]
113.
[T] Reiknið nákvæmu lausnina við Gerið töflu yfir hlutfallslega skekkju lausnarinnar sem fæst með aðferð Eulers miðað við nákvæmu lausnina. Hversu mikið breytist skekkjan? Getið þið útskýrt breytinguna?
Skoðum upphafsgildisverkefnið
114.
Sýnið að leysi upphafsgildisverkefnið.
115.
Teiknið stefnuvið deildajöfnunnar.
116.
[T] Nálgið lausnina í höndunum eða með reiknivél eða tölvu með aðferð Eulers við og
117.
[T] Nálgið lausnina með reiknivél eða tölvu með aðferð Eulers við og
118.
[T] Teiknið nákvæmu lausnina og báðar nálganir Eulers (fyrir og inn á stefnuviðið fyrir hvert gildi . Hvað takið þið eftir?