Gagnrýnin hugsun
Gagnrýnin hugsun
6.1 Snúningshorn og hornhraði
Þegar geisli hringferils í snúningshreyfingu eykst, hvað gerist þá við bogalengdina fyrir tiltekið snúningshorn?
- Bogalengdin er í réttu hlutfalli við geisla hringferilsins og eykst með geislanum.
- Bogalengdin er í öfugu hlutfalli við geisla hringferilsins og minnkar með geislanum.
- Bogalengdin er í réttu hlutfalli við geisla hringferilsins og minnkar með geislanum.
- Bogalengdin er í öfugu hlutfalli við geisla hringferilsins og eykst með geislanum.
Hugsaðu þér geisladisk sem snýst réttsælis. Hver er summa augnablikshraða tveggja punkta á sitt hvorum enda þvermálsins?
6.2 Jöfn hringhreyfing
Hverjar eru stefnur hraða og hröðunar hlutar í jafnri hringhreyfingu?
- Hraðinn er snertilægur og hröðunin stefnir út eftir geislanum.
- Hraðinn er snertilægur og hröðunin stefnir inn eftir geislanum.
- Hraðinn stefnir út eftir geislanum og hröðunin er snertilæg.
- Hraðinn stefnir inn eftir geislanum og hröðunin er snertilæg.
Gerum ráð fyrir að þú sért með hlut bundinn í reipi og snúir honum yfir höfði þér í jafnri hringhreyfingu. Ef þú eykur lengd reipisins, þarftu þá að beita meiri eða minni krafti til að viðhalda sama hraða?
- Meiri kraft þarf, því krafturinn er í öfugu hlutfalli við geisla hringferilsins.
- Meiri kraft þarf, því krafturinn er í réttu hlutfalli við geisla hringferilsins.
- Minni kraft þarf, því krafturinn er í öfugu hlutfalli við geisla hringferilsins.
- Minni kraft þarf, því krafturinn er í réttu hlutfalli við geisla hringferilsins.
6.3 Snúningshreyfing
Hugsaðu þér tvær skopparakringlur með mismunandi geisla. Báðar hafa sama línulega augnablikshraða við jaðarinn. Hvor skopparakringlan hefur meiri hornhraða?
- skopparakringlan með minni geislann, því sveigjugeislinn er í öfugu hlutfalli við hornhraðann
- skopparakringlan með minni geislann, því sveigjugeislinn er í réttu hlutfalli við hornhraðann
- skopparakringlan með stærri geislann, því sveigjugeislinn er í öfugu hlutfalli við hornhraðann
- skopparakringlan með stærri geislann, því sveigjugeislinn er í réttu hlutfalli við hornhraðann
Manneskja reynir að lyfta steini með vogarstöng. Ef vogararmurinn er fastur og massi steinsins eykst, hvað gildir þá um kraftvægið sem þarf til að lyfta honum?
- Það eykst, því kraftvægið er í réttu hlutfalli við massa hlutarins.
- Það eykst, því kraftvægið er í öfugu hlutfalli við massa hlutarins.
- Það minnkar, því kraftvægið er í réttu hlutfalli við massa hlutarins.
- Það minnkar, því kraftvægið er í öfugu hlutfalli við massa hlutarins.