Samantekt
Samantekt
2.1 Rekstrarform fyrirtækja
Algengustu rekstrarform fyrirtækja eru einkarekstur, sameignarfélög, hlutafélög og blönduð félagaform. Hvert rekstrarform hefur kosti og galla sem tengjast því hversu auðvelt er að stofna fyrirtækið, skattakröfum og persónulegri ábyrgð. Algengasta rekstrarform stærri fyrirtækja er hlutafélag. Til að stofna það þarf að skila stofnskjölum hlutafélags.
2.2 Samband hluthafa og stjórnenda félags
Hagsmunaaðili er hver sá einstaklingur eða hópur sem hefur hagsmuni af niðurstöðum starfsemi fyrirtækis eða stofnunar. Hluthafar skipta máli í hlutafélagsforminu vegna þess að þeir eiga hlutabréf í félaginu. Stjórn félags ber að lokum ábyrgð gagnvart hluthöfum á skilvirkum rekstri fyrirtækisins.
2.3 Hlutverk stjórnar félags
Stjórn félags gegnir trúnaðarskyldu gagnvart hluthöfum. Stjórnin ber einnig ýmsar aðrar skyldur, þar á meðal að setja markmið félagsins, móta stefnu um arðgreiðslur og kauprétti á hlutabréfum, ráða og segja upp forstjórum og tryggja að félagið hafi þau aðföng sem það þarf til að ná góðum árangri. Fjölbreytni og reynsla gegna mikilvægu hlutverki í stjórnarháttum fyrirtækja og í styrk og virkni stjórnar félags.
2.4 Umboðsvandi: hluthafar og stjórnir fyrirtækja
Álitaefni og hagsmunaárekstrar geta komið upp milli hluthafa (almennra eigenda) og æðstu stjórnenda, þar á meðal forstjóra, annarra lykilstjórnenda og stjórnar félagsins. Engin örugg leið er til að leysa alla hagsmunaárekstra, en sumar ráðstafanir geta dregið úr vandanum. Dæmi um þær eru hvatar fyrir góða frammistöðu og siðlega hegðun og hlutabréfatengdar greiðslur til þeirra sem taka ákvarðanir. Slíkar greiðslur hvetja þá til að hugsa til langs tíma.
2.5 Samskipti við fjárfesta, milliliði og aðra markaðsaðila
Fjárfestatengsl eru mikilvægur hluti af heildarstefnu fyrirtækis í stjórnarháttum. Skilvirk samskipti sem eru skýr, opin og laus við flókið fyrirtækjamál eru orðin lykilþáttur í ímynd fyrirtækis, heildarskilaboðum þess og árangri til langs tíma.
2.6 Fyrirtæki á innlendum og alþjóðlegum mörkuðum
Fyrirtæki færa starfsemi sína stundum út á alþjóðlega markaði og slíkum vexti fylgja bæði kostir og gallar. Alþjóðleg eða hnattræn útþensla krefst vandaðra og skilvirkra samskipta, áætlanagerðar og fjármögnunar.