6.3.2 Deiling margliða með langdeilingu
Verkefni
Rifjið saman upp hvernig 960 ÷ 20 er reiknað með langdeilingu. Notið sömu aðferð til að deila margliðunum hér að neðan. Eftir hvert dæmi berið þið svarið saman við félaga. Ræðið útreikningana og notið hugtökin deilistofn, deilir og kvóti í skýringunum.
Lausn
Lausn
Lausn
Lausn
Lausn
Lausn
Myndband: Deiling margliða með langdeilingu
Horfðu á myndbandið hér á eftir til að læra meira um hvernig margliðum er deilt með langdeilingu.
Viðbótarefni
Deiling margliða með langdeilingu
Til að deila margliðu með tvílið förum við nánast eins að og þegar við deilum tölum með langdeilingu. Skoðum því vel skrefin þegar við deilum þriggja stafa tölunni 875 með tveggja stafa tölunni 25.
Skref 1 - Byrjaðu á tölustafnum lengst til vinstri í deilistofninum og færðu þig til hægri um einn tölustaf í einu. Finndu minnsta mögulega gildi sem er stærra en deilirinn.
Deildu þessu gildi, 87, með deilinum 25. Skrifaðu heiltöluhlutann, án afgangs, í reitinn fyrir kvótann.

Skref 2 - Margfaldaðu þennan tölustaf í kvótanum með deilinum, 3 · 25.
Skrifaðu niðurstöðuna undir samsvarandi tölustafi í deilistofninum.

Skref 3 - Dragðu neðra gildið frá því efra.

Skref 4 - Færðu næsta tölustaf niður úr deilistofninum.

Skref 5 - Endurtaktu deilinguna með því að deila nýja gildinu, 125, með deilinum.
Skrifaðu niðurstöðuna, 5, yfir samsvarandi tölustaf í kvótanum.

Skref 6 - Margfaldaðu þennan tölustaf í kvótanum með deilinum, 5 · 25.
Skrifaðu niðurstöðuna neðst undir fyrri töluna.

Skref 7 - Dragðu neðra gildið frá því efra. Engir tölustafir eru eftir til að færa niður, svo þetta gildi er afgangurinn.
Kvótinn stendur efst.

Við athugum deilinguna með því að margfalda kvótann með deilinum.
Ef deilingin er rétt reiknuð er margfeldið jafnt deilistofninum.
Nú deilum við þrílið með tvílið. Þegar þú lest dæmið skaltu taka eftir því hversu lík skrefin eru skrefunum í talnadæminu hér að ofan.
Dæmi 1
Finndu kvótann: .
Skref 1 - Settu dæmið upp sem langdeilingu. Gakktu úr skugga um að deilistofninn sé á staðalformi.
Skref 2 - Deildu x2 með x. Það getur hjálpað að spyrja sig: Með hverju þarf ég að margfalda x til að fá x2?

Skref 3 - Settu svarið, x, í kvótann yfir x-liðinn. Margfaldaðu x með x + 5. Raðaðu líkum liðum undir deilistofninn.

Skref 4 - Dragðu x2 + 5x frá x2 + 9x. Þér getur reynst auðveldara að breyta merkjunum og leggja síðan saman. Færðu svo síðasta liðinn, 20, niður.

Skref 5 - Deildu 4x með x. Það getur hjálpað að spyrja sig: Með hverju þarf ég að margfalda x til að fá 4x? Settu svarið, 4, í kvótann yfir fastaliðinn.

Skref 6 - Margfaldaðu með .

Skref 7 - Dragðu frá .

Skref 8 - Athugun: Margfaldaðu kvótann með deilinum. Þá ættirðu að fá deilistofninn.
Þegar við deildum 875 með 25 fengum við engan afgang. Stundum skilur deiling talna þó eftir afgang. Sama gildir þegar við deilum margliðum. Í næsta dæmi verður afgangur. Við skrifum afganginn sem brot með deilinn sem nefnara.
Líttu aftur á deilistofninn í fyrra dæminu. Liðirnir voru skrifaðir í lækkandi röð eftir stigi og ekkert stig vantaði. Deilistofninn í næsta dæmi er x4 − x2 + 5x − 6. Það vantar x3-liðinn, svo við bætum við 0x3 sem plásshaldara.
Dæmi 2
Finndu kvótann: .
Taktu eftir að það vantar x3-lið í deilistofninn. Við bætum við 0x3 sem plásshaldara.
Skref 1 - Settu dæmið upp sem langdeilingu.
Gakktu úr skugga um að deilistofninn sé á staðalformi með plásshöldurum fyrir liði sem vantar.
Skref 2 - Deildu með .
Settu svarið, x3, í kvótann yfir x3-liðinn. Margfaldaðu x3 með x + 2.
Raðaðu líkum liðum hverjum undir annan. Dragðu frá og færðu svo næsta lið niður.

Skref 3 - Deildu með .
Settu svarið, −2x2, í kvótann yfir x2-liðinn.
Margfaldaðu með . Raðaðu líkum liðum hverjum undir annan.
Dragðu frá og færðu næsta lið niður.

Skref 4 - Deildu með .
Settu svarið, 3x, í kvótann yfir x-liðinn.
Margfaldaðu með .
Raðaðu líkum liðum hverjum undir annan. Dragðu frá og færðu næsta lið niður.

Skref 5 - Deildu −x með x. Settu svarið, −1, í kvótann yfir fastaliðinn.
Margfaldaðu með . Raðaðu líkum liðum hverjum undir annan.
Breyttu merkjunum og leggðu síðan saman.
Skrifaðu afganginn sem brot með deilinn sem nefnara.

Skref 6 - Til að athuga svarið margföldum við .
Niðurstaðan ætti að vera x4 − x2 + 5x − 6.
Í næsta dæmi deilum við með 2a + 3.
Þegar við deilum þurfum við að taka tillit bæði til stuðlanna og breytanna.
Dæmi 3
Finndu kvótann: .
Að þessu sinni sýnum við deilinguna í einu skrefi. Við þurfum að bæta við tveimur plásshöldurum áður en við deilum.

Til að athuga svarið margföldum við .
Niðurstaðan ætti að vera 8a3 + 27.
Dæmi 4
Finnið kvótann: (2x + 14) ÷ (x + 7). Sérðu fljótlega leið til að leysa þetta?
Langdeilingin sýnir að afgangurinn er 0.
Svarið er 2.