6.8.1 Notið vísisvaxtarlíkanið í hagnýtum verkefnum, meðal annars um fólksfjölgun og vaxtavexti.
6.8.2 Útskýrið hugtakið tvöföldunartími.
6.8.3 Notið vísishnignunarlíkanið í hagnýtum verkefnum, meðal annars um geislavirka hrörnun og kólnunarlögmál Newtons.
6.8.4 Útskýrið hugtakið helmingunartími.
Ein algengasta notkun vísisfalla er í líkönum af vexti og hnignun. Vísisvöxtur og vísishnignun koma fyrir í fjölmörgum náttúrulegum ferlum. Vísisföll eru alls staðar í náttúrunni, allt frá fólksfjölgun og samfelldum vöxtum til geislavirkrar hrörnunar og kólnunarlögmáls Newtons. Í þessum undirkafla skoðum við vísisvöxt og vísishnignun í samhengi við nokkur slík viðfangsefni.
Vísisvaxtarlíkan
Mörg kerfi sýna vísisvöxt. Þau fylgja líkani af gerðinni þar sem táknar upphafsástand kerfisins og er jákvæður fasti sem nefnist vaxtarfasti. Takið eftir að í vísisvaxtarlíkani gildir
(6.27)
Vaxtarhraðinn er sem sagt í réttu hlutfalli við gildi fallsins á hverjum tíma. Þetta er eitt megineinkenni vísisvaxtar. Jafna 6.27 inniheldur afleiður og nefnist deildajafna. Nánar er fjallað um deildajöfnur í Inngangi að deildajöfnum.
Vöxtur stofns er algengt dæmi um vísisvöxt. Skoðum til dæmis bakteríustofn. Eðlilegt virðist að vaxtarhraði stofnsins sé í réttu hlutfalli við stærð hans. Því fleiri bakteríur sem geta fjölgað sér, því hraðar vex stofninn. Mynd 6.79 og tafla 6.1 sýna vöxt bakteríustofns með bakteríur í upphafi og vaxtarfastann Takið eftir að eftir aðeins klukkustundir mínútur) er stofninn orðinn sinnum stærri en í upphafi!
Mynd 6.79. Dæmi um vísisvöxt bakteríustofns.
Tími (mín.)
Stofnstærð (fjöldi baktería)
Takið eftir að hér notum við samfellt fall til að líkja eftir hegðun sem er í eðli sínu strjál. Á hverjum tíma er fjöldi baktería í raunverulegum stofni heiltala, þótt líkanið taki einnig gildi sem eru ekki heiltölur. Þegar við notum vísisvaxtarlíkön verðum við alltaf að gæta þess að túlka fallgildin í samhengi við fyrirbærið sem líkanið lýsir.
Dæmi 6.42
Vöxtur stofns
Skoðum bakteríustofninn sem lýst var hér á undan. Hann vex samkvæmt fallinu þar sem t er mælt í mínútum. Hve margar bakteríur eru í stofninum eftir klukkustundir mínútur)? Hvenær nær stofninn bakteríum?
Lausn
Við höfum Þá
Í stofninum eru bakteríur eftir klukkustundir.
Til að finna hvenær stofninn nær bakteríum leysum við jöfnuna
Stofninn nær bakteríum eftir mínútur.
Snúum okkur nú að dæmi úr fjármálum: vaxtavöxtum. Vextir sem ekki leggjast við höfuðstólinn kallast einfaldir vextir. Einfaldir vextir eru greiddir einu sinni, í lok tiltekins tímabils (venjulega árs). Ef við leggjum inn á sparireikning sem ber einfalda ársvexti eigum við því í lok ársins
Vaxtavextir eru lagðir við höfuðstólinn nokkrum sinnum á ári, eftir lengd vaxtatímabilsins. Ef bankinn leggur vextina við höfuðstólinn á mánaða fresti færir hann því helming ársvaxtanna inn á reikninginn eftir mánuði. Síðari helming ársins ber reikningurinn ekki aðeins vexti af upphaflegu heldur einnig af vöxtunum sem söfnuðust á fyrri helmingi ársins. Stærðfræðilega séð eigum við því í lok ársins
Ef vextirnir eru á sama hátt lagðir við höfuðstólinn á mánaða fresti fæst
og ef vextirnir eru lagðir við höfuðstólinn daglega sinnum á ári) fæst Ef við útvíkkum þetta þannig að vextirnir séu lagðir samfellt við höfuðstólinn fæst eftir ár
Umritum nú þessa stæðu þannig að við fáum vísisfall sem lýsir vexti. Rifjum upp að töluna má setja fram sem markgildi:
Við viljum því að stæðan innan sviganna sé af gerðinni Látum Takið eftir að þegar gildir einnig. Þá fæst
Við þekkjum markgildið innan hornklofanna sem töluna Innistæðan á bankareikningnum eftir ár er því Almennt gildir að ef bankareikningur með upphafsinnistæðuna ber vexti sem nema með samfelldum vöxtum, er innistæðan eftir ár
Dæmi 6.43
Vaxtavextir
25 ára námsmanni býðst að leggja fé inn á lífeyrisreikning sem ber ársvexti með samfelldum vöxtum. Hversu mikið þarf hún að leggja inn í dag til að eiga milljón evra þegar hún verður Hvað ef hún gæti í staðinn fengið ársvexti með samfelldum vöxtum?
Lausn
Við höfum
Hún þarf að leggja inn með vöxtum.
Ef hún getur í staðinn fengið verður jafnan
Í þessu tilviki þarf hún aðeins að leggja inn Það er um tveir þriðju hlutar þeirrar fjárhæðar sem hún þarf að leggja inn ef vextirnir eru Af því að vextirnir leggjast samfellt við höfuðstólinn magnast áhrifin mjög þegar þeir hækka um .
Ef stærð vex samkvæmt vísisfalli er tíminn sem það tekur hana að tvöfaldast alltaf sá sami. Með öðrum orðum er bakteríustofn jafn lengi að vaxa úr í bakteríur og úr í bakteríur. Þessi tími nefnist tvöföldunartími. Til að reikna tvöföldunartímann finnum við hvenær stærðin verður tvöfalt upphafsgildi sitt. Því fæst
Dæmi 6.44
Notkun tvöföldunartíma
Gerum ráð fyrir að fiskistofn vaxi samkvæmt vísisfalli. Í upphafi er fiskum sleppt í tjörn. Eftir mánuði eru fiskar í tjörninni. Eigandinn ætlar að leyfa vinum sínum og nágrönnum að veiða í tjörninni þegar stofninn nær Hvenær mega vinir eigandans veiða?
Lausn
Við vitum að fiskistofninn tvöfaldast á mánuðum. Ef t táknar tíma í mánuðum gefur formúlan fyrir tvöföldunartíma Þá er Stofnstærðin er því gefin með Til að finna hvenær stofninn nær fiskum leysum við jöfnuna
Vinir eigandans þurfa að bíða mánuði (rúmlega ár) áður en þeir mega veiða í tjörninni.
Vísishnignunarlíkan
Vísisföll má einnig nota til að lýsa stofnum sem minnka (til dæmis vegna sjúkdóma) eða efnasamböndum sem brotna niður með tímanum. Við segjum að slík kerfi sýni vísishnignun en ekki vísisvöxt. Líkanið er nánast það sama, nema hvað veldisvísirinn hefur neikvætt formerki. Því gildir fyrir einhvern jákvæðan fasta að
Líkt og við vísisvöxt er til deildajafna sem lýsir vísishnignun. Við höfum
Myndin hér á eftir sýnir graf dæmigerðs vísisfalls sem lýsir vísishnignun.
Mynd 6.80. Dæmi um vísishnignun.
Skoðum hagnýtt dæmi um vísishnignun úr eðlisfræði. Kólnunarlögmál Newtons segir að hlutur kólni með hraða sem er í réttu hlutfalli við muninn á hitastigi hans og umhverfisins. Með öðrum orðum, ef táknar hitastig hlutarins og umhverfishitann í herberginu, þá er
Takið eftir að þetta er ekki alveg rétta líkanið fyrir vísishnignun. Við viljum að afleiðan sé í réttu hlutfalli við fallið, en í þessari stæðu er aukaliðurinn . Sem betur fer má leysa vandann með breytuskiptum. Látum Þá er og jafnan verður
Af fyrri niðurstöðum vitum við að þetta samband milli y og afleiðu þess leiðir til vísishnignunar. Því er
og við sjáum að
þar sem táknar upphafshitastigið. Notum þessa formúlu í næsta dæmi.
Dæmi 6.45
Kólnunarlögmál Newtons
Að mati reyndra kaffibarþjóna er best að bera kaffi fram við hitastig milli og Gerum ráð fyrir að kaffi sé hellt í bolla við hitastigið og að eftir mínútur í heitu herbergi hafi það kólnað niður í Hvenær verður kaffið fyrst nægilega svalt til að bera það fram? Hvenær verður það of kalt? Námundið svörin að næstu hálfu mínútu.
Lausn
Við höfum
Þá er líkanið
Kaffið nær þegar
Bera má kaffið fram um mínútum eftir að því er hellt í bollann. Kaffið nær þegar
Kaffið verður of kalt til að bera það fram um mínútum eftir að því er hellt í bollann.
Rétt eins og kerfi sem sýna vísisvöxt hafa fastan tvöföldunartíma hafa kerfi sem sýna vísishnignun fastan helmingunartíma. Til að reikna helmingunartímann finnum við hvenær stærðin verður helmingur upphafsgildis síns. Því fæst
Athugið: Þetta er sama stæðan og við fengum fyrir tvöföldunartímann.
Dæmi 6.46
Aldursgreining með geislakoli
Ein algengasta notkun vísishnignunarlíkans er geislakolsgreining. hrörnar (gefur frá sér geislavirka ögn) jafnt og þétt samkvæmt vísisfalli. Ef við vitum hve mikið kolefni var upphaflega í hlut og hve mikið er eftir getum við því ákvarðað aldur hlutarins. Fyrir samsætuna er helmingunartíminn um ár. Það merkir að eftir þann tíma hefur helmingur efnisins breyst úr upphafsefninu í ógeislavirka efnið Ef við höfum g af í dag, hve mikið verður eftir að liðnum árum? Ef forngripur sem upphaflega innihélt g af kolefni inniheldur nú g af kolefni, hve gamall er hann? Námundið svarið að næsta hundraði ára.
Lausn
Við höfum
Líkanið segir því
Eftir ár höfum við
Eftir ár verða því g af eftir.
Til að ákvarða aldur forngripsins leysum við jöfnuna
Forngripurinn er um ára gamall.
Æfingar úr kafla 6.8
Satt eða ósatt? Ef fullyrðingin er sönn, sannið hana. Ef hún er ósönn, finnið rétta svarið.
348.
Tvöföldunartíminn fyrir er
349.
Ef þið fjárfestið gefa ársvextir sem nema meiri ávöxtun á fyrsta árinu en samfelldir vextir.
350.
Ef þið skiljið tekönnu eftir við stofuhita og sams konar tekönnu í ísskáp við nær teið í ísskápnum drykkjarhæfu hitastigi meira en mínútum á undan teinu við stofuhita.
351.
Ef helmingunartíminn er t ár er fastinn í reiknaður með
Notið í eftirfarandi verkefnum
352.
Ef bakteríurækt tvöfaldast á klukkustundum, hve margar klukkustundir tekur hana að margfaldast með
353.
Ef fjöldi baktería margfaldast með á klukkustundum, hve margar klukkustundir tekur hann að margfaldast með
354.
Hve gömul er höfuðkúpa sem inniheldur fimmtung þess geislakols sem er í nútímahöfuðkúpu? Athugið að helmingunartími geislakols er ár.
355.
Ef forngripur inniheldur af því geislakoli sem er í nýju efni, getur hann þá verið frá tímum Krists (fyrir um árum)? Athugið að helmingunartími geislakols er ár.
356.
Íbúum Kaíró fjölgaði úr milljónum í milljónir á árum. Notið vísisvaxtarlíkan til að finna hvenær íbúafjöldinn var milljónir.
357.
Íbúum New York og Los Angeles fjölgar um og á ári, í sömu röð. Í upphafi eru íbúar New York milljónir og íbúar Los Angeles milljónir. Hvenær verður íbúafjöldi borganna jafn? Námundið svarið að heilum árum.
358.
Gerum ráð fyrir að virði í japönskum jenum lækki um á ári. Ef upphafsgildið er hvenær verður
359.
Áhrif auglýsinga dvína samkvæmt vísisfalli. Ef íbúanna muna eftir nýrri vöru eftir daga, eftir hve langan tíma munu aðeins muna eftir henni?
360.
Ef þegar og þegar hvað var þegar
361.
Ef þegar og þegar hvenær er
362.
Ef banki býður ársvexti eða samfellda vexti sem nema hvorir vextirnir gefa betri ársávöxtun?
363.
Hvaða samfelldu vextir gefa sömu ávöxtun og ársvextir sem nema
364.
Ef þið leggið inn á reikning með ársvöxtum, í hve mörg ár getið þið tekið út (frá lokum fyrsta árs) án þess að innistæðan klárist?
365.
Þið ætlið að safna á árum fyrir skólagjöldum barnsins ykkar. Ef vextirnir leggjast samfellt við höfuðstólinn og nema hve mikið þurfið þið að leggja inn í upphafi?
366.
Kalkúnn er tekinn úr ofninum þegar kjarnhiti hans er Þegar hann hefur staðið í mínútur í heitri íbúð er hitinn kominn niður í Hver er hiti kalkúnsins mínútum eftir að hann er tekinn úr ofninum?
367.
Gerum ráð fyrir að þíða eigi grænmeti sem er Til að þíða það á öruggan hátt þarf að setja það í ísskáp þar sem umhverfishitinn er Eftir klukkustundir í ísskápnum er grænmetið orðið Teiknið hitastigsferilinn og notið hann til að ákvarða hvenær grænmetið nær
368.
Þið eruð fornleifafræðingar og fáið bein sem sagt er vera úr grameðlu (Tyrannosaurus rex). Þið vitið að þessar risaeðlur lifðu á krítartímabilinu milljónum ára til milljónum ára síðan). Með geislakolsgreiningu komist þið að því að af upphaflegu magni geislakols er eftir. Er beinið frá krítartímabilinu?
369.
Notað eldsneyti úr kjarnakljúfi inniheldur plúton-239, sem hefur helmingunartímann ár. Ef tunna með af plúton-239 er innsigluð, hve mörg ár þurfa að líða þar til aðeins af plúton-239 eru eftir?
Notið eftirfarandi töflu í næstu verkefnum. Hún sýnir mannfjölda í heiminum eftir áratugum.
Ár frá 1950
Mannfjöldi (í milljónum)
2 , 5 5 6 2.556
3 , 0 3 9 3.039
3 , 7 0 6 3.706
4 , 4 5 3 4.453
5 , 2 7 9 5.279
6 , 0 8 3 6.083
6 , 8 4 9 6.849
370.
[T] Sá vísisferill af gerðinni sem fellur best að gögnunum er Notið grafreikni (t.d. GeoGebra) til að teikna gögnin og vísisferilinn á sama hnitakerfi.
371.
[T] Finnið og teiknið afleiðuna af jöfnunni ykkar. Hvar er hún vaxandi og hvað merkir sú aukning?
372.
[T] Finnið og teiknið aðra afleiðu jöfnunnar. Hvar er hún vaxandi og hvað merkir sú aukning?
373.
[T] Finnið hvenær líkanið spáir því að mannfjöldinn nái milljörðum. Notið fyrri svör ykkar um fyrstu og aðra afleiðu til að útskýra hvers vegna vísisvöxtur hentar illa til að spá fyrir um framtíðina.
Notið eftirfarandi töflu í næstu verkefnum. Hún sýnir íbúafjölda San Francisco á 19. öld.
Ár frá 1850
Mannfjöldi (í þúsundum)
374.
[T] Sá vísisferill af gerðinni sem fellur best að gögnunum er Notið grafreikni til að teikna gögnin og vísisferilinn á sama hnitakerfi.
375.
[T] Finnið og teiknið afleiðuna af jöfnunni ykkar. Hvar er hún vaxandi? Hvað merkir sú aukning? Er til gildi þar sem aukningin er mest?
376.
[T] Finnið og teiknið aðra afleiðu jöfnunnar. Hvar er hún vaxandi? Hvað merkir sú aukning?