1111 Stjórnspeki
Upprifjunarspurningar
Upprifjunarspurningar
11.1Söguleg sjónarhorn á stjórnarhætti
1.
Á hvaða fjórum dygðum telur Platón að ríkið eigi að grundvallast?
2.
Hvernig skilgreinir Aristóteles samfélagsþegn?
3.
Hvers vegna var tímabil stríðandi ríkja í Kína einnig nefnt tímabil „hundrað hugsunarskóla“?
4.
Hvers vegna er móismi talinn ein elsta mynd afleiðingahyggju?
5.
Hvað er líkt með fyrirmyndarríki Platons og fyrirmyndarborgum Al-Farabis?
11.2Stjórnarform
6.
Hver er munurinn á einveldi og þingbundinni konungsstjórn?
7.
Hvaða breytingar leiddu til þess að þingbundnar konungsstjórnir urðu til?
8.
Hvernig móta hugmyndir um þjóðfélagsstéttir og erfðastéttir ólík stjórnarform?
9.
Hvert er endanlegt markmið alræðisstjórna að mati Hönnu Arendt?
11.3Pólitískt lögmæti og skyldur
10.
Hvað er náttúruástandið að mati Thomasar Hobbes?
11.
Nefndu þrjár uppsprettur lögmætis samkvæmt Max Weber.
12.
Hvað felst í normatífu lögmæti?
13.
Hvaða hlutverki gegnir hugtakið ahimsa í stjórnmálum að mati Gandhis?
11.4Stjórnmálastefnur
14.
Í hverju felst raunverulegt frelsi að mati Johns Stuarts Mill?
15.
Hvað merkir neikvætt frelsi í pólitískum skilningi?
16.
Hvaða tvær meginreglur telur John Rawls að eigi að móta samfélagið?
17.
Hvað setja jafnaðarhreyfingar í öndvegi?
18.
Hvaðan telja stjórnleysingjar að óreiða spretti?
19.
Hvers vegna telur Karl Marx að verkafólk firrist frá vinnu sinni?