Helstu hugtök og samantekt
Helstu hugtök og samantekt
1.1 Hvað er hagfræði og hvers vegna er hún mikilvæg?
Hagfræði fjallar um hvernig takast megi á við skort, sem verður þegar óskir fólks um vörur og þjónustu fara fram úr tiltæku framboði. Nútímahagkerfi byggjast á verkaskiptingu. Fólk sérhæfir sig í því sem það framleiðir, aflar þannig tekna og notar þær til að kaupa vörur og þjónustu sem það þarf eða vill. Verkaskipting gerir fólki og fyrirtækjum kleift að sérhæfa sig og auka framleiðslu. Þrjár meginástæður liggja þar að baki. Í fyrsta lagi geta þau einbeitt sér að sviðum þar sem náttúrulegar aðstæður eða færni veita þeim forskot. Í öðru lagi hvetur sérhæfingin til náms og nýsköpunar. Í þriðja lagi gerir hún kleift að nýta stærðarhagkvæmni. Verkaskipting og sérhæfing bera þó aðeins árangur þegar fólk getur keypt á mörkuðum það sem það framleiðir ekki sjálft. Hagfræðinám hjálpar þér að skilja helstu vandamál samtímans, býr þig undir virka þátttöku í samfélaginu og eflir víðsýni og rökhugsun.
1.2 Örhagfræði og þjóðhagfræði
Örhagfræði og þjóðhagfræði skoða hagkerfið frá ólíkum sjónarhornum. Örhagfræði beinist að einstökum hlutum þess, svo sem einstaklingum, fyrirtækjum og atvinnugreinum. Þjóðhagfræði skoðar hagkerfið í heild og leggur meðal annars áherslu á hækkandi lífskjör, lítið atvinnuleysi og litla verðbólgu. Beita má tvenns konar hagstjórn til að vinna að þessum markmiðum: peningastefnu og ríkisfjármálastefnu.
1.3 Hvernig hagfræðingar nota kenningar og líkön til að skilja efnahagsleg viðfangsefni
Hagfræðingar nálgast vandamál með öðrum hætti en sérfræðingar í öðrum fræðigreinum. Helstu verkfæri greinarinnar eru hagfræðikenningar og líkön. Kenning er ekki lýsing á svari sem þegar er fundið, heldur verkfæri til að komast að niðurstöðu.
1.4 Skipulag hagkerfa: yfirlit yfir efnahagskerfi
Hagkerfi samfélaga má í grófum dráttum flokka sem hefðbundin hagkerfi, tilskipanahagkerfi eða markaðshagkerfi. Flest eru þó blanda þessara kerfa. Hnattvæðing hefur aukist á undanförnum áratugum samhliða vexti viðskipta- og fjármálatengsla yfir landamæri. Fyrir vikið eykst gagnkvæmt hæði fyrirtækja og launafólks í ólíkum hagkerfum.