6Mælikvarðar á fjárhagslega stöðu
Upprifjunarspurningar
Upprifjunarspurningar
1.
Telst fyrri árangur góð vísbending um framtíðarframmistöðu?
2.
Veltuhraði birgða hjá Pony Parts Tack Shop mældist 12,8, 12,2 og 9,9 á síðustu þremur árum, í þeirri röð. Hvað segir þessi þróun um birgðastýringu stjórnendateymis Pony Parts?
3.
Veltuhraði heildareigna hjá Pony Parts Tack Shop mældist 1,8, 2,1 og 2,4 á síðustu þremur árum, í þeirri röð. Hvað segir þessi þróun um nýtingu stjórnendateymisins á heildareignum fyrirtækisins?
4.
Birgðadagar Big Box Store Inc. mældust 30, 32 og 34 á síðustu þremur árum. Hjá Small Box Store Inc. mældust þeir 40, 38 og 36 á sama tímabili. Hvað má ráða af þróuninni um birgðastýringu fyrirtækjanna og hvort þeirra stendur sig betur?
5.
Veltufjárhlutfall Jackson’s Beef Jerky Shop er 2,35. Hvað felur það í sér? Telst 2,35 gott eða slæmt veltufjárhlutfall?
6.
Lausafjárhlutfall Jackson’s Beef Jerky Shop er 1,9. Hvað felur það í sér? Telst 1,9 gott eða slæmt lausafjárhlutfall?
7.
Hlutfall handbærs fjár hjá Jackson’s Beef Jerky Shop er 1,75. Hvað felur það í sér? Telst 1,75 gott eða slæmt hlutfall handbærs fjár?
8.
Þú hefur fjármuni til fjárfestingar. Finndu á netinu tvö skráð fyrirtæki í sömu atvinnugrein og berðu saman hagnað þeirra á hlut. Hefði uppgefinn hagnaður á hlut áhrif á ákvörðun þína um hvort fyrirtækið yrði fyrir valinu?
9.
Markaðsverð hlutabréfs í fyrirtæki A er 19,55 en bókfært virði á hlut 12,79. Hvaða ályktun myndir þú sem fjárfestir draga um núverandi virði hlutabréfanna?
10.
V/H-hlutfall fyrirtækis B er 21,2 en meðaltal atvinnugreinarinnar 20,75. Hvaða ályktun gæti fjárfestir dregið af samanburðinum þegar hann metur hvort fjárfesta eigi í fyrirtæki B?
11.
Hverjir eru meginþættir DuPont-formúlunnar og hvernig auðvelda þeir greinendum að meta fyrirtæki?