5.5.0 Yfirlit kennslustundar

Í þessari kennslustund vinnur þú áfram með vaxtarstuðla. Þú heldur áfram að rita jöfnur og túlka gröf um leið og þú lærir um vísishnignun.

Að lokinni kennslustundinni getur þú:

  • notað eingöngu margföldun til að sýna að stærð minnkar um brot af sjálfri sér.
  • ritað stæðu eða jöfnu sem sýnir stærð sem minnkar með vísishnignun.
  • útskýrt merkingu hugtakanna „veldisvöxtur“ og „vísishnignun“.
  • útskýrt merkingu a og b í jöfnu sem sýnir vísishnignun og er rituð á forminu: y=a·bx
  • fundið vaxtarstuðul út frá grafi og ritað jöfnu sem sýnir vísishnignun.
  • teiknað gröf jafna sem sýna stærðir sem breytast með vaxtarstuðli á milli 0 og 1.

Hér eru verkefnin sem hjálpa þér að ná þessum markmiðum:

  • 5.5.1: Að bera kennsl á línulegar stærðir og stærðir sem breytast veldislega
  • 5.5.2: Vísishnignun
    • 5.5.2: Sjálfspróf
    • 5.5.2: Viðbótarefni
  • 5.5.3: Að nota gröf til að sýna vísishnignun
    • 5.5.3: Sjálfspróf
    • 5.5.3: Viðbótarefni
  • 5.5.4: Að rökstyðja veldislíkön
    • 5.5.4: Sjálfspróf
    • 5.5.4: Viðbótarefni
  • 5.5.5: Að rita jöfnur sem sýna vísishnignun

Eftir það æfir þú þig og rifjar efnið upp.

  • 5.5.6: Æfingar
  • 5.5.7: Samantekt kennslustundar