7.3.3 Annars stigs runur
7.3.3 Annars stigs runur
Verkefni
Teiknaðu næsta skref í mynstrinu. Útskýrðu hvað þú teiknaðir.
Lausn
Berðu saman svarið þitt: Skref 4 er rétthyrningur með 4 dálkum og 6 röðum.
Kiran segir að mynstrið vaxi línulega vegna þess að þegar númer skrefsins hækkar um 1 fjölgar bæði röðum og dálkum um 1. Ertu sammála? Rökstuddu svarið þitt.
Lausn
Berðu saman svarið þitt: Kiran hefur rétt fyrir sér að fjöldi raða og fjöldi dálka vex hvor um sig um 1. Heildarfjöldi ferninga eykst hins vegar ekki jafnmikið frá einu skrefi til þess næsta. Þess vegna vex heildarfjöldi ferninga annars stigs, ekki línulega.
Diego og Jada rituðu ólíkar jöfnur fyrir fjölda ferninga eftir skref. Diego ritaði:
Jada ritaði:
Hefur annað þeirra rétt fyrir sér? Rökstuddu svarið þitt.
Lausn
Berðu saman svarið þitt: Stæða Diego er rétt vegna þess að í skrefi eru dálkar og raðir af litlum ferningum.
Stæða Jödu er líka rétt. Hægt er að skipta ferningunum í sinnum ferning og sinnum 2 rétthyrning. Flatarmálin eru þá:

Myndband: Annars stigs runur
Horfðu á myndbandið til að læra meira um annars stigs runur.
Viðbótarefni
Flóknari annars stigs mynstur
Skoðaðu skref 1 til 3 í mynstrinu úr ferningum hér fyrir neðan. Ritaðu jöfnu sem sýnir sambandið milli númers skrefsins, , og fjölda ferninga, .

Reyndu fyrst að finna mynstrið eins og ferningarnir sem vantar væru til staðar. Gerðu töflu.
| Skref | Fjöldi dálka | Fjöldi raða | Fjöldi ferninga |
|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 2 | 2 |
| 2 | 3 | 3 | 7 |
| 3 | 4 | 4 | 14 |
Ef ferningana vantaði ekki væru þeir svona margir:
Þar sem tvo ferninga vantar í hverju skrefi verður stæðan:
Jafnan er því: