Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 3.1 Hlutheildun
    3. 3.2 Heildi hornafalla
    4. 3.3 Innsetning með hornaföllum
    5. 3.4 Stofnbrotaliðun
    6. 3.5 Aðrar heildunaraðferðir
    7. 3.6 Töluleg heildun
    8. 3.7 Óeiginleg heildi
    9. Lykilhugtök
    10. Lykiljöfnur
    11. Meginatriði
    12. Yfirlitsverkefni
  2. A | Heildistafla
  3. B | Afleiðutafla
  4. C | Upprifjun fyrir stærðfræðigreiningu
  5. Atriðisorðaskrá

Bókin og glærur

Sækja bókina (PDF)PowerPoint-glærur
Stærðfræðigreining 2. bindi (IS)3 Heildunaraðferðir

3.2 Heildi hornafalla

Námsmarkmið

  • 3.2.1 Leysa heildunarverkefni sem fela í sér margfeldi og veldi sin x og cos x .
  • 3.2.2 Leysa heildunarverkefni sem fela í sér margfeldi og veldi tan x og sec x .
  • 3.2.3 Nota lækkunarformúlur til að reikna heildi hornafalla.

Í þessum undirkafla skoðum við hvernig heilda má ýmis margfeldi hornafalla. Slík heildi nefnast heildi hornafalla. Þau eru mikilvægur þáttur heildunaraðferðarinnar sem nefnist innsetning með hornaföllum og fjallað er um hana í undirkaflanum Innsetning með hornaföllum. Með aðferðinni má breyta algebrusegðum sem við kunnum ekki að heilda í segðir með hornaföllum. Þær getum við ef til vill heildað með aðferðunum í þessum undirkafla. Heildi af þessu tagi koma einnig oft fyrir þegar við kynnumst síðar skaut-, sívalnings- og kúluhnitakerfum. Byrjum á margfeldum sinx og cosx.

Margfeldi og veldi sin x og cos x heildað

Lykilhugmynd aðferðarinnar við að heilda margfeldi og veldi sinx og cosx er að umrita segðirnar sem summur og mismun heilda af gerðinni ∫sinjxcosxdx eða ∫cosjxsinxdx. Eftir umritunina reiknum við heildin með u-innsetningu. Áður en við lýsum almennu aðferðinni nánar skulum við skoða nokkur dæmi.

Dæmi 3.8

Heildun á ∫ cos j x sin x d x

Reiknið ∫cos3xsinxdx.

Lausn

Notum u-innsetningu og látum u=cosx. Í þessu tilviki er du=−sinxdx. Því fæst

∫ cos 3 x sin x d x = − ∫ u 3 d u = − 1 4 u 4 + C = − 1 4 cos 4 x + C .

Stöðumat 3.5

Reiknið ∫sin4xcosxdx.

Dæmi 3.9

Undirbúningsdæmi: ∫ cos j x sin k x d x heildað þegar k er oddatala

Reiknið ∫cos2xsin3xdx.

Lausn

Til að breyta þessu heildi í heildi af gerðinni ∫cosjxsinxdx, umritum við sin3x=sin2xsinx og notum innsetninguna sin2x=1−cos2x. Því fæst

∫ cos 2 x sin 3 x d x = ∫ cos 2 x ( 1 − cos 2 x ) sin x d x Látum u = cos x ; þá er d u = − sin x d x . = − ∫ u 2 ( 1 − u 2 ) d u = ∫ ( u 4 − u 2 ) d u = 1 5 u 5 − 1 3 u 3 + C = 1 5 cos 5 x − 1 3 cos 3 x + C .

Stöðumat 3.6

Reiknið ∫cos3xsin2xdx.

Í næsta dæmi sjáum við hvaða aðferð á að nota þegar aðeins koma fyrir slétt veldi af sinx og cosx. Fyrir heildi af þessari gerð eru samsemdirnar

sin2x=12−12cos(2x)=1−cos(2x)2

og

cos2x=12+12cos(2x)=1+cos(2x)2

ómetanlegar. Þær eru stundum nefndar veldislækkunarsamsemdir og má leiða þær út frá tvöföldunarhornssamsemdinni cos(2x)=cos2x−sin2x og Pýþagórasarsamsemdinni cos2x+sin2x=1.

Dæmi 3.10

Heildun á sléttu veldi sin x

Reiknið ∫sin2xdx.

Lausn

Til að reikna heildið notum við hornafallasamsemdina sin2x=12−12cos(2x). Því fæst

∫ sin 2 x d x = ∫ ( 1 2 − 1 2 cos ( 2 x ) ) d x = 1 2 x − 1 4 sin ( 2 x ) + C .

Stöðumat 3.7

Reiknið ∫cos2xdx.

Almenna aðferðin við að heilda margfeldi og veldi sinx og cosx er dregin saman í leiðbeiningunum hér á eftir.

Lausnarleið

Margfeldi og veldi sin x og cos x heildað

Notið eftirfarandi aðferðir til að heilda ∫cosjxsinkxdx:

  1. Ef k er oddatala, umritið sinkx=sink−1xsinx og notið samsemdina sin2x=1−cos2x til að umrita sink−1x með cosx. Heildið með innsetningunni u=cosx. Við þessa innsetningu fæst du=−sinxdx.
  2. Ef j er oddatala, umritið cosjx=cosj−1xcosx og notið samsemdina cos2x=1−sin2x til að umrita cosj−1x með sinx. Heildið með innsetningunni u=sinx. Við þessa innsetningu fæst du=cosxdx. (Athugið: Ef bæði j og k eru oddatölur má nota annaðhvort aðferð 1 eða aðferð 2.)
  3. Ef bæði j og k eru sléttar tölur, notið sin2x=(1/2)−(1/2)cos(2x) og cos2x=(1/2)+(1/2)cos(2x). Einfaldið síðan og notið aftur aðferðir 1 til 3 eftir því sem við á.

Dæmi 3.11

Heildun á ∫ cos j x sin k x d x þegar k er oddatala

Reiknið ∫cos8xsin5xdx.

Lausn

Þar sem veldisvísir sinx er oddatala notum við aðferð 1. Því fæst

∫ cos 8 x sin 5 x d x = ∫ cos 8 x sin 4 x sin x d x Skiljið eftir þáttinn sin x . = ∫ cos 8 x ( sin 2 x ) 2 sin x d x Umritið sin 4 x = ( sin 2 x ) 2 . = ∫ cos 8 x ( 1 − cos 2 x ) 2 sin x d x Notið innsetninguna sin 2 x = 1 − cos 2 x . = ∫ u 8 ( 1 − u 2 ) 2 ( − d u ) Látum u = cos x og d u = − sin x d x . = ∫ ( − u 8 + 2 u 10 − u 12 ) d u Margfaldið upp úr svigum . = − 1 9 u 9 + 2 11 u 11 − 1 13 u 13 + C Reiknið heildið . = − 1 9 cos 9 x + 2 11 cos 11 x − 1 13 cos 13 x + C . Notið innsetninguna u = cos x .

Dæmi 3.12

Heildun á ∫ cos j x sin k x d x þegar k og j eru sléttar tölur

Reiknið ∫sin4xdx.

Lausn

Þar sem veldisvísir sinx er slétt tala (k=4) og veldisvísir cosx er slétt tala (j=0), verðum við að nota aðferð 3. Því fæst

∫ sin 4 x d x = ∫ ( sin 2 x ) 2 d x Umritið sin 4 x = ( sin 2 x ) 2 . = ∫ ( 1 2 − 1 2 cos ( 2 x ) ) 2 d x Notið innsetninguna sin 2 x = 1 2 − 1 2 cos ( 2 x ) . = ∫ ( 1 4 − 1 2 cos ( 2 x ) + 1 4 cos 2 ( 2 x ) ) d x Margfaldið upp úr svigum ( 1 2 − 1 2 cos ( 2 x ) ) 2 . = ∫ ( 1 4 − 1 2 cos ( 2 x ) + 1 4 ( 1 2 + 1 2 cos ( 4 x ) ) d x .

Þar sem cos2(2x) hefur sléttan veldisvísi setjum við inn cos2(2x)=12+12cos(4x):

= ∫ ( 3 8 − 1 2 cos ( 2 x ) + 1 8 cos ( 4 x ) ) d x Einfaldið . = 3 8 x − 1 4 sin ( 2 x ) + 1 32 sin ( 4 x ) + C Reiknið heildið .

Stöðumat 3.8

Reiknið ∫cos3xdx.

Stöðumat 3.9

Reiknið ∫cos2(3x)dx.

Á sumum sviðum eðlisfræðinnar, svo sem í skammtafræði, merkjavinnslu og útreikningum á Fourier-röðum, þarf oft að heilda margfeldi sem innihalda sin(ax), sin(bx), cos(ax), auk cos(bx). Við reiknum þessi heildi með hornafallasamsemdum eins og lýst er í reglunni hér á eftir.

Regla: Margfeldi sínus- og kósínusfalla mismunandi horna heildað

Til að heilda margfeldi sem innihalda sin(ax), sin(bx), cos(ax), auk cos(bx), skal nota innsetningarnar

sin(ax)sin(bx)=12cos((a−b)x)−12cos((a+b)x)
(3.3)
sin(ax)cos(bx)=12sin((a−b)x)+12sin((a+b)x)
(3.4)
cos(ax)cos(bx)=12cos((a−b)x)+12cos((a+b)x)
(3.5)

Þessar formúlur má leiða út frá samlagningarformúlunum fyrir sínus og kósínus.

Dæmi 3.13

Reikningur á ∫ sin ( a x ) cos ( b x ) d x

Reiknið ∫sin(5x)cos(3x)dx.

Lausn

Notum samsemdina sin(5x)cos(3x)=12sin(2x)+12sin(8x). Þá fæst

∫ sin ( 5 x ) cos ( 3 x ) d x = ∫ 1 2 sin ( 2 x ) dx + ∫ 1 2 sin ( 8 x ) dx = − 1 4 cos ( 2 x ) − 1 16 cos ( 8 x ) + C .

Stöðumat 3.10

Reiknið ∫cos(6x)cos(5x)dx.

Margfeldi og veldi tan x og sec x heildað

Áður en við heildum margfeldi og veldi tanx og secx, er gagnlegt að rifja upp heildin með tanx og secx sem við höfum þegar lært:

  1. ∫sec2xdx=tanx+C
  2. ∫secxtanxdx=secx+C
  3. ∫tanxdx=ln|secx|+C
  4. ∫secxdx=ln|secx+tanx|+C.

Í flestum heildum margfelda og velda tanx og secx, umritum við segðina sem heilda á sem summu eða mismun heilda af gerðinni ∫tanjxsec2xdx eða ∫secjxtanxdx. Eins og næsta dæmi sýnir má reikna þessi nýju heildi með u-innsetningu.

Dæmi 3.14

Reikningur á ∫ sec j x tan x d x

Reiknið ∫sec5xtanxdx.

Lausn

Byrjum á að umrita sec5xtanx sem sec4xsecxtanx.

∫ sec 5 x tan x d x = ∫ sec 4 x sec x tan x d x Látum u = sec x ; þá er , d u = sec x tan x d x . = ∫ u 4 d u Reiknið heildið . = 1 5 u 5 + C Notið innsetninguna sec x = u . = 1 5 sec 5 x + C

Margmiðlun

Á þessari vefsíðu má lesa áhugaverðan fróðleik um algengt heildi sem inniheldur sekant.

Stöðumat 3.11

Reiknið ∫tan5xsec2xdx.

Nú skoðum við mismunandi aðferðir við að heilda margfeldi og veldi secx og tanx.

Lausnarleið

Heildun á ∫tankxsecjxdx

Notið eftirfarandi aðferðir til að heilda ∫tankxsecjxdx, eftir því sem við á:

  1. Ef j er slétt tala og j≥2, skal umrita secjx=secj−2xsec2x og nota sec2x=tan2x+1 til að umrita secj−2x með tanx. Látum u=tanx og du=sec2xdx.
  2. Ef k er oddatala og j≥1, skal umrita tankxsecjx=tank−1xsecj−1xsecxtanx og nota tan2x=sec2x−1 til að umrita tank−1x með secx. Látum u=secx og du=secxtanxdx. (Athugið: Ef j er slétt tala og k er oddatala má nota annaðhvort aðferð 1 eða aðferð 2.)
  3. Ef k er oddatala, þar sem k≥3 og j=0, skal umrita tankx=tank−2xtan2x=tank−2x(sec2x−1)=tank−2xsec2x−tank−2x. Ef til vill þarf að endurtaka ferlið fyrir tank−2x-liðinn.
  4. Ef k er slétt tala og j er oddatala skal nota tan2x=sec2x−1 til að setja tankx fram með secx. Notið hlutheildun til að heilda oddatöluveldi secx.

Dæmi 3.15

Heildun á ∫ tan k x sec j x d x þegar j er slétt tala

Reiknið ∫tan6xsec4xdx.

Lausn

Þar sem veldisvísir secx er slétt tala umritum við sec4x=sec2xsec2x og notum sec2x=tan2x+1 til að umrita fyrra sec2x með tanx. Því fæst

∫ tan 6 x sec 4 x d x = ∫ tan 6 x ( tan 2 x + 1 ) sec 2 x d x Látum u = tan x og d u = sec 2 x dx . = ∫ u 6 ( u 2 + 1 ) d u Margfaldið upp úr svigum . = ∫ ( u 8 + u 6 ) d u Reiknið heildið . = 1 9 u 9 + 1 7 u 7 + C Notið innsetninguna tan x = u . = 1 9 tan 9 x + 1 7 tan 7 x + C .

Dæmi 3.16

Heildun á ∫ tan k x sec j x d x þegar k er oddatala

Reiknið ∫tan5xsec3xdx.

Lausn

Þar sem veldisvísir tanx er oddatala byrjum við á að umrita tan5xsec3x=tan4xsec2xsecxtanx. Því fæst

tan 5 x sec 3 x = tan 4 x sec 2 x sec x tan x . Umritið tan 4 x = ( tan 2 x ) 2 . ∫ tan 5 x sec 3 x d x = ∫ ( tan 2 x ) 2 sec 2 x sec x tan x d x Notið tan 2 x = sec 2 x − 1. = ∫ ( sec 2 x − 1 ) 2 sec 2 x sec x tan x d x Látum u = sec x og d u = sec x tan x d x . = ∫ ( u 2 − 1 ) 2 u 2 d u Margfaldið upp úr svigum . = ∫ ( u 6 − 2 u 4 + u 2 ) d u Heildið . = 1 7 u 7 − 2 5 u 5 + 1 3 u 3 + C Notið innsetninguna sec x = u . = 1 7 sec 7 x − 2 5 sec 5 x + 1 3 sec 3 x + C .

Dæmi 3.17

Heildun á ∫ tan k x d x þegar k er oddatala og k ≥ 3

Reiknið ∫tan3xdx.

Lausn

Byrjum á að umrita tan3x=tanxtan2x=tanx(sec2x−1)=tanxsec2x−tanx. Því fæst

∫ tan 3 x d x = ∫ ( tan x sec 2 x − tan x ) d x = ∫ tan x sec 2 x d x − ∫ tan x d x = 1 2 tan 2 x − ln | sec x | + C .

Í fyrra heildinu notum við innsetninguna u=tanx. Í síðara heildinu notum við formúluna.

Dæmi 3.18

Heildun á ∫ sec 3 x d x

Heildið ∫sec3xdx.

Lausn

Til að reikna þetta heildi þarf hlutheildun. Byrjum á að láta u=secx og dv=sec2xdx. Með þessu vali fáum við du=secxtanx og v=tanx. Því fæst

∫ sec 3 x d x = sec x tan x − ∫ tan x sec x tan x d x = sec x tan x − ∫ tan 2 x sec x d x Einfaldið . = sec x tan x − ∫ ( sec 2 x − 1 ) sec x d x Notið innsetninguna tan 2 x = sec 2 x − 1. = sec x tan x + ∫ sec x d x − ∫ sec 3 x d x Umritið . = sec x tan x + ln | sec x + tan x | − ∫ sec 3 x d x . Reiknið ∫ sec x d x .

Nú höfum við

∫ sec 3 x d x = sec x tan x + ln | sec x + tan x | − ∫ sec 3 x d x .

Þar sem heildið ∫sec3xdx hefur komið aftur fram hægra megin getum við einangrað ∫sec3xdx með því að leggja það við báðar hliðar. Þá fæst

2 ∫ sec 3 x d x = sec x tan x + ln | sec x + tan x | .

Með því að deila með 2 fæst

∫ sec 3 x d x = 1 2 sec x tan x + 1 2 ln | sec x + tan x | + C .

Stöðumat 3.12

Reiknið ∫tan3xsec7xdx.

Lækkunarformúlur

Til að reikna ∫secnxdx fyrir gildi n þar sem n er oddatala þarf hlutheildun. Auk þess þurfum við að þekkja gildi ∫secn−2xdx til að reikna ∫secnxdx. Til að reikna ∫tannxdx þarf einnig að geta heildað ∫tann−2xdx. Til að einfalda ferlið getum við leitt út og beitt eftirfarandi veldislækkunarformúlum. Með þeim má skipta heildi veldis af secx eða tanx út fyrir heildi lægra veldis af secx eða tanx.

Regla: Lækkunarformúlur fyrir ∫ sec n x d x og ∫ tan n x d x

∫secnxdx=1n−1secn−2xtanx+n−2n−1∫secn−2xdx
(3.6)
∫tannxdx=1n−1tann−1x−∫tann−2xdx
(3.7)

Staðfesta má fyrri veldislækkunarregluna með hlutheildun. Þá síðari má staðfesta með aðferðinni sem við lýstum til að heilda oddatöluveldi tanx.

Dæmi 3.19

Endurskoðun á ∫ sec 3 x d x

Beitið lækkunarformúlu til að reikna ∫sec3xdx.

Lausn

Með því að beita fyrri lækkunarformúlunni fæst

∫ sec 3 x d x = 1 2 sec x tan x + 1 2 ∫ sec x d x = 1 2 sec x tan x + 1 2 ln | sec x + tan x | + C .

Dæmi 3.20

Lækkunarformúla notuð

Reiknið ∫tan4xdx.

Lausn

Með því að beita lækkunarformúlunni fyrir ∫tan4xdx fæst

∫ tan 4 x d x = 1 3 tan 3 x − ∫ tan 2 x d x = 1 3 tan 3 x − ( tan x − ∫ tan 0 x d x ) Beitið lækkunarformúlunni á ∫ tan 2 x d x . = 1 3 tan 3 x − tan x + ∫ 1 d x Einfaldið . = 1 3 tan 3 x − tan x + x + C . Reiknið ∫ 1 d x .

Stöðumat 3.13

Beitið lækkunarformúlunni á ∫sec5xdx.

Æfingar úr undirkafla 3.2

Fyllið í eyðuna þannig að fullyrðingin verði sönn.

69.

sin 2 x + _______ = 1

70.

sec 2 x − 1 = _______

Notið samsemd til að umrita veldi hornafallsins sem hornafall í fyrsta veldi.

71.

sin 2 x = _______

72.

cos 2 x = _______

Reiknið eftirfarandi heildi með u-innsetningu.

73.

∫ sin 3 x cos x d x

74.

∫ cos x sin x d x

75.

∫ tan 5 ( 2 x ) sec 2 ( 2 x ) d x

76.

∫ sin 7 ( 2 x ) cos ( 2 x ) d x

77.

∫ tan ( x 2 ) sec 2 ( x 2 ) d x

78.

∫ tan 2 x sec 2 x d x

Reiknið eftirfarandi heildi samkvæmt leiðbeiningunum um heildun velda hornafalla. Staðfestið lausnirnar með tölvualgebrukerfi. (Athugið: Sum verkefnin má leysa með heildunaraðferðum sem þegar hafa verið kynntar.)

79.

∫ sin 3 x d x

80.

∫ cos 3 x d x

81.

∫ sin x cos x d x

82.

∫ cos 5 x d x

83.

∫ sin 5 x cos 2 x d x

84.

∫ sin 3 x cos 3 x d x

85.

∫ sin x cos x d x

86.

∫ sin x cos 3 x d x

87.

∫ sec x tan x d x

88.

∫ tan ( 5 x ) d x

89.

∫ tan 2 x sec x d x

90.

∫ tan x sec 3 x d x

91.

∫ sec 4 x d x

92.

∫ cot x d x

93.

∫ csc x d x

94.

∫ tan 3 x sec x d x

Finnið almenna formúlu fyrir heildin í eftirfarandi verkefnum.

95.

∫ sin 2 a x cos a x d x

96.

∫ sin a x cos a x d x .

Reiknið eftirfarandi heildi með tvöföldunarhornsformúlunum.

97.

∫ 0 π sin 2 x d x

98.

∫ 0 π sin 4 x d x

99.

∫ cos 2 3 x d x

100.

∫ sin 2 x cos 2 x d x

101.

∫ sin 2 x d x + ∫ cos 2 x d x

102.

∫ sin 2 x cos 2 ( 2 x ) d x

Reiknið ákveðnu heildin í eftirfarandi verkefnum. Gefið svörin á nákvæmu formi þegar þess er kostur.

103.

∫ 0 2 π cos x sin 2 x d x

104.

∫ 0 π sin 3 x sin 5 x d x

105.

∫ 0 π cos ( 99 x ) sin ( 101 x ) d x

106.

∫ − π π cos 2 ( 3 x ) d x

107.

∫ 0 2 π sin x sin ( 2 x ) sin ( 3 x ) d x

108.

∫ 0 4 π cos ( x / 2 ) sin ( x / 2 ) d x

109.

∫π/6π/3cos3xsinxdx (Námundið svarið að þremur aukastöfum.)

110.

∫ − π / 3 π / 3 sec 2 x − 1 d x

111.

∫ 0 π / 2 1 − cos ( 2 x ) d x

112.

Finnið flatarmál svæðisins sem afmarkast af gröfum jafnanna y=sinx,y=sin3x,x=0ogx=π2.

113.

Finnið flatarmál svæðisins sem afmarkast af gröfum jafnanna y=cos2x,y=sin2x,x=−π4ogx=π4.

114.

Ögn hreyfist eftir beinni línu með hraðafallið v(t)=sin(ωt)cos2(ωt). Finnið staðsetningarfall hennar x=f(t) ef f(0)=0.

115.

Finnið meðalgildi fallsins f(x)=sin2xcos3x á bilinu [−π,π].

Leysið deildajöfnurnar í eftirfarandi verkefnum.

116.

dydx=sin2x. Ferillinn liggur um punktinn (0,0).

117.

d y d θ = sin 4 ( π θ )

118.

Finnið lengd ferilsins y=ln(cscx),π4≤x≤π2.

119.

Finnið lengd ferilsins y=ln(sinx),π3≤x≤π2.

120.

Finnið rúmmálið sem myndast þegar ferlinum y=cos(3x) er snúið um x-ásinn, 0≤x≤π36.

Notið eftirfarandi upplýsingar í verkefnunum: Innfeldi tveggja falla f og g á [a,b] er skilgreint með f(x)·g(x)=〈f,g〉=∫abf·gdx. Tvö ólík föll f og g nefnast hornrétt ef 〈f,g〉=0.

121.

Sýnið að {sin(2x),cos(3x)} séu hornrétt á bilinu [−π,π].

122.

Reiknið ∫−ππsin(mx)cos(nx)dx.

123.

Heildið y′=tanxsec4x.

Ákvarðið hvort heildanna í hverju pari er erfiðara að reikna og rökstyðjið svarið.

124.

∫sin456xcosxdx eða ∫sin2xcos2xdx

125.

∫tan350xsec2xdx eða ∫tan350xsecxdx

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/calculus-volume-2/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

3.1 Hlutheildun

NÆSTI KAFLI

3.3 Innsetning með hornaföllum