Námsgögn
Innskráning
Hleð efnisyfirliti...

Efnisyfirlit

  1. Formáli
    1. Inngangur
    2. 2.1 Yrðingar og magnarar
    3. 2.2 Samsettar yrðingar
    4. 2.3 Gerð sanngildistaflna
    5. 2.4 Sanngildistöflur fyrir skilyrðingu og tvískilyrðingu
    6. 2.5 Jafngildar yrðingar
    7. 2.6 Reglur De Morgans
    8. 2.7 Rökfærslur
    9. Lykilhugtök
    10. Lykilhugtök
    11. Myndbönd
    12. Verkefni
    13. Kaflayfirlit
    14. Kaflapróf
  2. A | Viðauki: heiltöluveldi af 10
  3. Atriðisorðaskrá

Bókin og glærur

PowerPoint-glærur
Stærðfræði í daglegu lífi (IS)2 Rökfræði

2.5 Jafngildar yrðingar

Tvær manneskjur standa utandyra. Önnur talar með lófana opna en hin hlustar.
Mynd 2.11. Framsetning rökfærslu hefur áhrif á viðbrögðin, rétt eins og orðalag í samtali getur ráðið því hvernig orðum þínum er tekið. (mynd breytt frá Goelshivi/Flickr, Public Domain Mark 1.0)

Námsmarkmið

Eftir að hafa lokið þessum hluta átt þú að geta:

  1. ákvarðað með sanngildistöflu hvort tvær yrðingar séu rökfræðilega jafngildar.
  2. myndað umhverfu, andhverfu og gagnumhverfu skilyrðingar.

Hefur þú einhvern tíma átt samtal við einhvern eða sent einhverjum skilaboð sem viðkomandi misskildi? Hvernig þú orðar hugmyndir þínar getur skipt jafnmiklu eða jafnvel meira máli en inntak þeirra. Ef markmiðið er að sannfæra einhvern um að mál þitt sé rétt viltu ekki fæla viðkomandi frá með óheppilegu orðavali.

Rökfærslur má setja fram á marga ólíka vegu sem leiða engu að síður að sömu gildu niðurstöðu. Til að setja fram sannfærandi röksemd þarf meðal annars að kunna að raða staðreyndum og niðurstöðu þannig að framsetningin veki tilætluð viðbrögð hjá markhópnum.

Í þessum hluta lærir þú að ákvarða hvort tvær yrðingar séu rökfræðilega jafngildar með sanngildistöflum. Síðan beitir þú þeirri þekkingu til að mynda rökfræðilega jafngild form skilyrðingar. Þessi færni veitir þér frekari þekkingu og leikni til að setja fram vel rökstuddar og sannfærandi röksemdir sem má laga að tilteknum markhópum.

Stöðumat

Önnur leið til að hugsa um rökfræðilegt jafngildi er að sanngildin verði að vera eins. Þegar p er sönn á það sama við um q; þegar p er ósönn á það sama við um q.

Að ákvarða rökfræðilegt jafngildi

Tvær yrðingar, p og q, eru rökfræðilega jafngildar þegar p↔q er sísanna, það er þegar síðasti dálkur sanngildistöflunnar inniheldur aðeins sönn gildi. Rökfræðileg yrðing sem er alltaf sönn nefnist sísanna. Til að ákvarða hvort yrðingarnar p og q séu rökfræðilega jafngildar skaltu gera sanngildistöflu fyrir p↔q og kanna hvort tvískilyrðingin sé sísanna. Ef síðasti dálkurinn inniheldur aðeins T er tvískilyrðingin sísanna; þá er p rökfræðilega jafngild q. Annars er p ekki rökfræðilega jafngild q.

Dæmi 2.22

Rökfræðilegt jafngildi ákvarðað með sanngildistöflu

Gerðu sanngildistöflu til að ákvarða hvort eftirfarandi samsettu yrðingar séu rökfræðilega jafngildar.

  1. p→q; ~p→~q
  2. p→q; ~p∨q

Lausn

  1. Gerðu sanngildistöflu fyrir tvískilyrðinguna sem fæst með því að nota fyrri yrðinguna sem forlið og þá síðari sem baklið, (p→q)↔(~p→~q).
    p q p→q ~p ~q ~p→~q (p→q)↔(~p→~q)
    T T T F F T T
    T F F F T T F
    F T T T F F F
    F F T T T T T

    Þar sem síðasti dálkurinn inniheldur ekki aðeins T er tvískilyrðingin ekki sísanna og yrðingin p→q er ekki rökfræðilega jafngild yrðingunni ~p→~q.

  2. Gerðu sanngildistöflu fyrir tvískilyrðinguna sem fæst með því að nota fyrri yrðinguna sem forlið og þá síðari sem baklið, (p→q)↔(~p∨q).
    p q p→q ~p ~p∨q (p→q)↔(~p∨q)
    T T T F T T
    T F F F F T
    F T T T T T
    F F T T T T

    Þar sem síðasti dálkurinn inniheldur T í hverri röð er tvískilyrðingin sísanna og yrðingin p→q er rökfræðilega jafngild yrðingunni ~p∨q. Með táknum: p→q≡~p∨q.

Þú átt leik 2.22

Gerðu sanngildistöflu til að ákvarða hvort eftirfarandi samsettu yrðingar séu rökfræðilega jafngildar.

p→q;  q→~p
p→q; p∨~q

Að mynda umhverfu, andhverfu og gagnumhverfu skilyrðingar

Umhverfa, andhverfa og gagnumhverfa eru tilbrigði við skilyrðinguna p→q.

  • Umhverfan hefur formið „ef q, þá p“ og myndast með því að víxla forlið og baklið. Umhverfan er rökfræðilega jafngild andhverfunni.
  • Andhverfan hefur formið „ef ~p, þá ~q“ og myndast með því að setja neitun framan við bæði forliðinn og bakliðinn. Andhverfan er rökfræðilega jafngild umhverfunni.
  • Gagnumhverfan hefur formið „ef ~q, þá ~p“ og myndast með því að setja neitun framan við forliðinn og bakliðinn og víxla þeim. Gagnumhverfan er rökfræðilega jafngild skilyrðingunni.

Taflan hér á eftir sýnir táknræna framsetningu þessara tilbrigða.


SkilyrðingGagnumhverfaUmhverfaAndhverfa
pq~p~qp→q~q→~pq→p~p→~q
TTFFTTTT
TFFTFFTT
FTTFTTFF
FFTTTTTT

Dæmi 2.23

Að skrifa umhverfu, andhverfu og gagnumhverfu skilyrðingar

Láttu p tákna yrðinguna „Harry er galdramaður“ og q tákna yrðinguna „Hermione er norn“. Skrifaðu síðan eftirfarandi yrðingar:

  1. Skrifaðu skilyrðinguna p→q með orðum.
  2. Skrifaðu umhverfuna q→p með orðum.
  3. Skrifaðu andhverfuna ~p→~q með orðum.
  4. Skrifaðu gagnumhverfuna ~q→~p með orðum.

Lausn

  1. Skilyrðingin hefur formið „ef p, þá q“ og er því: „Ef Harry er galdramaður þá er Hermione norn.“ Mundu að orðin ef … þá … eru setningatengin sem mynda skilyrðinguna.
  2. Umhverfan víxlar forliðnum p og bakliðnum q. Hún hefur formið „ef q, þá p.“ Umhverfan er því: „Ef Hermione er norn þá er Harry galdramaður.“
  3. Til að mynda andhverfu yrðingar er neitun sett framan við bæði forliðinn og bakliðinn. Andhverfan hefur formið „ef ~p, þá ~q“ og er því: „Ef Harry er ekki galdramaður þá er Hermione ekki norn.“
  4. Gagnumhverfan myndast með því að setja neitun framan við forliðinn og bakliðinn og víxla þeim. Hún hefur formið „ef ~q, þá ~p“ og er því: „Ef Hermione er ekki norn þá er Harry ekki galdramaður.“

Þú átt leik 2.23

Notaðu yrðingarnar p: Elvis Presley klæddist skikkjum og q: Sumar ofurhetjur klæðast skikkjum. Skrifaðu eftirfarandi yrðingar:

Skrifaðu skilyrðinguna p→q með orðum.
Skrifaðu umhverfuna q→p með orðum.
Skrifaðu andhverfuna ~p→~q með orðum.
Skrifaðu gagnumhverfuna ~q→~p með orðum.

Dæmi 2.24

Að bera kennsl á umhverfu, andhverfu og gagnumhverfu

Notaðu skilyrðinguna „Ef allir hundar gelta þá finnst Lassie gaman að gelta“ til að bera kennsl á eftirfarandi.

  1. Skrifaðu forlið skilyrðingarinnar og merktu hann með p.
  2. Skrifaðu baklið skilyrðingarinnar og merktu hann með q.
  3. Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa: „Ef Lassie finnst gaman að gelta þá gelta allir hundar.“
  4. Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa: „Ef Lassie finnst ekki gaman að gelta þá gelta sumir hundar ekki.“
  5. Hvaða yrðing er rökfræðilega jafngild skilyrðingunni?

Lausn

  1. Forliðurinn er orðasambandið sem kemur á eftir ef. Svarið er p: Allir hundar gelta. Taktu eftir að orðið ef er ekki hluti forliðarins.
  2. Bakliður skilyrðingar er orðasambandið sem kemur á eftir þá. Orðið þá er ekki tekið með þegar bakliðurinn er tilgreindur. Svarið er q: Lassie finnst gaman að gelta.
  3. „Lassie finnst gaman að gelta“ er q og „Allir hundar gelta“ er p. Yrðingin „Ef Lassie finnst gaman að gelta þá gelta allir hundar“ hefur því formið „ef q, þá p“ sem er form umhverfunnar.
  4. „Lassie finnst ekki gaman að gelta“ er ~q og „Sumir hundar gelta ekki“ er ~p. Yrðingin „Ef Lassie finnst ekki gaman að gelta þá gelta sumir hundar ekki“ hefur formið „ef ~q, þá ~p“ sem er form gagnumhverfunnar.
  5. Gagnumhverfan ~q→~p er rökfræðilega jafngild skilyrðingunni p→q.

Þú átt leik 2.24

Notaðu skilyrðinguna „Ef Dóra er landkönnuður þá er Klossi api“ til að bera kennsl á eftirfarandi:

Skrifaðu forlið skilyrðingarinnar og merktu hann með p.
Skrifaðu baklið skilyrðingarinnar og merktu hann með q.

Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa: „Ef Dóra er ekki landkönnuður þá er Klossi ekki api.“

Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa: „Ef Klossi er api þá er Dóra landkönnuður.“

Hvaða yrðing er rökfræðilega jafngild andhverfunni?

Dæmi 2.25

Að ákvarða sanngildi umhverfu, andhverfu og gagnumhverfu

Gerum ráð fyrir að skilyrðingin p→q: „Ef Chadwick Boseman var leikari þá lék Chadwick Boseman ekki í kvikmyndinni Black Panther“ sé ósönn og notum hana til að svara eftirfarandi spurningum.

  1. Skrifaðu umhverfu yrðingarinnar með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.
  2. Skrifaðu andhverfu yrðingarinnar með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.
  3. Skrifaðu gagnumhverfu yrðingarinnar með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.

Lausn

  1. Skilyrðing er aðeins ósönn þegar forliður hennar, p: Chadwick Boseman var leikari, er sannur en bakliður hennar, q: Chadwick Boseman lék ekki í kvikmyndinni Black Panther, ósannur. Umhverfan er q→p, það er með orðum: „Ef Chadwick Boseman lék ekki í kvikmyndinni Black Panther þá var Chadwick Boseman leikari.“ Yrðingin er sönn því ósatt → satt er satt.
  2. Andhverfan hefur formið „~p→~q.“ Með orðum er hún: „Ef Chadwick Boseman var ekki leikari þá lék Chadwick Boseman í kvikmyndinni Black Panther.“ Þar sem p er sönn en q ósönn er ~p ósönn en ~q sönn. Andhverfan er því ósatt → satt, sem er satt. Af svari við spurningu 1 má einnig sjá að umhverfan er sönn. Þar sem andhverfan er rökfræðilega jafngild umhverfunni hlýtur hún einnig að vera sönn.
  3. Gagnumhverfan er rökfræðilega jafngild skilyrðingunni. Þar sem skilyrðingin er ósönn er gagnumhverfan einnig ósönn. Þetta má staðfesta með því að skoða sanngildi gagnumhverfunnar. Hún hefur formið „~q→~p.“ Þar sem q er ósönn en p sönn er ~q sönn en ~p ósönn. Því hefur ~q→~p sanngildið satt → ósatt, sem er ósatt. Með orðum er gagnumhverfan: „Ef Chadwick Boseman lék í kvikmyndinni Black Panther þá var Chadwick Boseman ekki leikari.“

Þú átt leik 2.25

Gerum ráð fyrir að skilyrðingin p → q: „Ef vinur minn býr í San Francisco þá býr vinur minn ekki í Kaliforníu“ sé ósönn og notum hana til að svara eftirfarandi spurningum.

Skrifaðu umhverfu yrðingarinnar með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.

Skrifaðu andhverfu yrðingarinnar með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.

Skrifaðu gagnumhverfu yrðingarinnar með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.

Athugaðu skilning þinn

Tvær yrðingar p og q eru rökfræðilega jafngildar ef tvískilyrðingin p↔q er ________________.
Yrðingin _____ hefur formið „ef p, þá q.“
Gagnumhverfan er _____________ ___________ skilyrðingunni og hefur formið „ef ~q, þá ~p.“
_________________ skilyrðingarinnar hefur formið „ef ~p, þá ~q.“
_________________ skilyrðingarinnar er rökfræðilega jafngild _______________ og hefur formið „ef q, þá p.“

Æfingar úr hluta 2.5

Í eftirfarandi æfingum skaltu gera sanngildistöflu og ákvarða hvort samsettu yrðingarnar í hverju pari séu rökfræðilega jafngildar.

1.
Umhverfa: q→p og andhverfa: ~p→~q
2.
Skilyrðing: p→q og gagnumhverfa: ~q→~p
3.
Andhverfa: ~p→~q og gagnumhverfa: ~q→~p
4.
Skilyrðing: p→q og umhverfa: q→p
5.
~p→q og p∨~q
6.
~p→q og p∨q
7.
~(p∧q) og ~p∧~q
8.
~(p∧q) og ~p∨~q
9.
p∧(q∨r) og (p∧q)∨(p∧r)
10.
p∧(q∨r) og (p∧q)∨r

Svaraðu eftirfarandi í hverri æfingu:

  1. Skrifaðu skilyrðinguna p→q með orðum.
  2. Skrifaðu umhverfuna q→p með orðum.
  3. Skrifaðu andhverfuna ~p→~q með orðum.
  4. Skrifaðu gagnumhverfuna ~q→~p með orðum.
11.
p: Sex er hræddur við Sjö og q: Sjö át Níu.
12.
p: Vonin er eilíf og q: Örvæntingin er tímabundin.
13.
p: Tom Brady er leikstjórnandi og q: Tom Brady spilar ekki knattspyrnu.
14.
p: Shakira syngur ekki óperu og q: Shakira syngur dægurtónlist.
15.
p: Formið hefur ekki þrjár hliðar og q: Formið er ekki þríhyrningur.
16.
p: Allir fuglar geta flogið og q: Emúar geta flogið.
17.
p: Mörgæsir geta ekki flogið og q: Sumir fuglar geta flogið.
18.
p: Sumar ofurhetjur klæðast ekki skikkjum og q: Köngulóarmaðurinn er ofurhetja.
19.
p: Engir Pokémonar eru litlir hestar og q: Bulbasaur er Pokémon.
20.
p: Rósir eru rauðar og fjólur eru bláar og q: Sykur er sætur og þú ert það líka.

Í eftirfarandi æfingum skaltu nota skilyrðinguna „Ef Clark Kent er Superman þá er Lois Lane ekki fréttamaður“ til að svara spurningunum.

21.
Skrifaðu forlið skilyrðingarinnar, merktu hann með p og ákvarðaðu sanngildi hans.
22.
Skrifaðu baklið skilyrðingarinnar, merktu hann með q og ákvarðaðu sanngildi hans.
23.
Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa og ákvarðaðu sanngildi hennar: „Ef Clark Kent er ekki Superman þá er Lois Lane fréttamaður.“
24.
Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa og ákvarðaðu sanngildi hennar: „Ef Lois Lane er fréttamaður þá er Clark Kent ekki Superman.“
25.
Hvaða form skilyrðingarinnar er rökfræðilega jafngilt umhverfunni?

Í eftirfarandi æfingum skaltu nota skilyrðinguna: „Ef The Masked Singer er ekki tónlistarkeppni þá var Donnie Wahlberg meðlimur í New Kids on the Block“ til að svara spurningunum.

26.
Skrifaðu forlið skilyrðingarinnar, merktu hann með p og ákvarðaðu sanngildi hans.
27.
Skrifaðu baklið skilyrðingarinnar, merktu hann með q og ákvarðaðu sanngildi hans.
28.
Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa og ákvarðaðu sanngildi hennar: „Ef Donnie Wahlberg var meðlimur í New Kids on the Block þá er The Masked Singer ekki tónlistarkeppni.“
29.
Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa og ákvarðaðu sanngildi hennar: „Ef The Masked Singer er tónlistarkeppni þá var Donnie Wahlberg ekki meðlimur í New Kids on the Block.“
30.
Hvaða form skilyrðingarinnar er rökfræðilega jafngilt gagnumhverfunni ~q→~p?

Í eftirfarandi æfingum skaltu nota skilyrðinguna „Ef allir hvalir eru spendýr þá eru engir fiskar hvalir“ til að svara spurningunum.

31.
Skrifaðu forlið skilyrðingarinnar, merktu hann með p og ákvarðaðu sanngildi hans.
32.
Skrifaðu baklið skilyrðingarinnar, merktu hann með q og ákvarðaðu sanngildi hans.
33.
Greindu hvort eftirfarandi yrðing sé umhverfa, andhverfa eða gagnumhverfa og ákvarðaðu sanngildi hennar: „Ef sumir fiskar eru hvalir þá eru sumir hvalir ekki spendýr.“
34.
Skrifaðu andhverfuna með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.
35.
Skrifaðu umhverfuna með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.

Í eftirfarandi æfingum skaltu nota skilyrðinguna „Ef sumir samsíðungar eru rétthyrningar þá eru sumir hringir ekki samhverfir“ til að svara spurningunum.

36.
Skrifaðu forlið skilyrðingarinnar, merktu hann með p og ákvarðaðu sanngildi hans.
37.
Skrifaðu baklið skilyrðingarinnar, merktu hann með q og ákvarðaðu sanngildi hans.
38.
Skrifaðu umhverfuna með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.
39.
Skrifaðu gagnumhverfuna með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.
40.
Skrifaðu andhverfuna með orðum og ákvarðaðu sanngildi hennar.

Námsgögn.is þýðing á efni frá OpenStax. Frítt frumrit: https://openstax.org/books/contemporary-mathematics/pages/1-introduction Leyfi upprunabókar: CC BY-NC-SA 4.0. Námsgögn er sjálfstætt verkefni; OpenStax hvorki styður né vottar þýðinguna.

FYRRI KAFLI

2.4 Sanngildistöflur fyrir skilyrðingu og tvískilyrðingu

NÆSTI KAFLI

2.6 Reglur De Morgans