33 Rauntalnakerfi og talnafræði
Kaflapróf
Kaflapróf
1.
Finndu frumþáttun 300.
2.
Flísar eiga að þekja svæði sem er 650 cm 1.200 cm. Hver er mesta mögulega hliðarlengd ferningslaga flísa ef aðeins má nota heilar flísar?
3.
Reiknaðu: .
4.
Fyrir hvað stendur minnisreglan PEMDAS?
5.
David fær 1.560 dali endurgreidda úr skatti og ákveður að eyða 20% fjárhæðarinnar. Hve miklu eyðir hann?
6.
Breyttu í blandaða tölu.
7.
Breyttu lotubundna tugabrotinu , þar sem lotan er 659, í brot tveggja heiltalna.
8.
Einfaldaðu ferningsrótina .
9.
Hver er samoki stæðunnar ?
10.
Eyddu ferningsrót úr nefnara brotsins .
11.
Hvaða tvö talnamengi mynda rauntölumengið?
12.
Hvaða eiginleika rauntalna sýnir jafnan ?
13.
Georita telur að akstur fjölskyldunnar á áfangastað í fríinu taki 30 klukkustundir. Ef þau leggja af stað klukkan 2:00, hvað verður klukkan þegar þau koma á áfangastað? Ekki þarf að greina á milli þess hvort klukkan sé fyrir eða eftir hádegi.
14.
Gerum ráð fyrir að baktería í meltingarvegi hafi 16 klukkustunda kynslóðartíma, það er tíma milli skiptinga. Ef hún skiptir sér fyrst klukkan 4:00, hvað verður klukkan við áttugustu skiptingu þar á eftir?
15.
Einfaldaðu .
16.
Tunglið er m frá jörðu. Bandarískur dollarseðill er m á þykkt. Hve marga seðla þyrfti í fullkomlega beinan stafla sem næði til tunglsins?
17.
Við eitt langt borð komast átta manns, þrír hvorum megin og einn við hvorn enda. Ef öðru borði er bætt við enda þess komast 14 manns að, sex hvorum megin og einn við hvorn enda. Hvert borð til viðbótar bætir sex sætum við. Hve margir komast að tíu borðum sem raðað er enda í enda?
18.
Í fremstu röð leikhúss sitja 25 manns. Í hverri röð þar fyrir aftan komast tveimur fleiri. Hve margir komast samtals í leikhúsið ef raðirnar eru 80?
19.
Alice kaupir skuldabréf fyrir 2.500 dali. Það ber 6% ársvexti sem leggjast við höfuðstólinn árlega. Hvert er verðmæti skuldabréfsins eftir 20 ár?
20.
Hver er 15. liður kvótarunu þar sem fyrsti liðurinn er 5 og kvótinn 3?