22 Lausnir línulegra jafna og ójafna
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- skilyrt jafna
- Jafna sem er sönn fyrir eitt eða fleiri gildi breytunnar en ósönn fyrir öll önnur gildi hennar kallast skilyrt jafna.
- mótsögn
- Jafna sem er ósönn fyrir öll gildi breytunnar kallast mótsögn. Mótsögn hefur enga lausn.
- samsemd
- Jafna sem er sönn fyrir öll gildi breytunnar kallast samsemd. Lausnamengi samsemdar er mengi allra rauntalna.
- lausn jöfnu
- Lausn jöfnu er gildi breytu sem gerir fullyrðinguna sanna þegar það er sett í stað breytunnar í jöfnunni.