Æfingapróf
Æfingapróf
Fyrir eftirfarandi jöfnuhneppi skuluð þið meta hvort hver röðuð tvennd sé lausn.
ⓐ ⓑ
Í eftirfarandi verkefnum skuluð þið leysa hneppin með grafískri aðferð.
Í eftirfarandi verkefnum skuluð þið leysa hvert jöfnuhneppi með innsetningaraðferð eða eyðingaraðferð.
Setjið eftirfarandi verkefni fram sem jöfnuhneppi og leysið.
Summa tveggja talna er −24. Önnur talan er 104 minni en hin. Finnið tölurnar.
Ramon vill gróðursetja gúrkur og tómata í garðinum. Hann hefur pláss fyrir 16 plöntur og vill hafa þrisvar sinnum fleiri gúrkuplöntur en tómatplöntur. Hve margar plöntur af hvorri tegund á hann að gróðursetja?
Tvö horn eru lagshorn. Stærð stærra hornsins er sex gráðum meiri en tvöföld stærð minna hornsins. Finnið stærð beggja hornanna.
Á mánudegi hljóp Lance í 30 mínútur og synti í 20 mínútur. Heilsuforritið hans sagði að hann hefði brennt 610 hitaeiningum. Á miðvikudegi sagði forritið að hann hefði brennt 695 hitaeiningum þegar hann hljóp í 25 mínútur og synti í 40 mínútur. Hve mörgum hitaeiningum brenndi hann á einni mínútu af hlaupi? Hve mörgum á einni mínútu af sundi?
Kathy gekk hratt að verslunarmiðstöðinni á 4 mílna hraða á klukkustund. Systir hennar Abby lagði af stað 15 mínútum síðar og hjólaði að verslunarmiðstöðinni á 10 mílna hraða. Hve lengi er Abby að ná Kathy?
Það tekur klukkustundir að fljúga 2.475 mílur í mótvindi frá San Jose í Kaliforníu til Lihue á Hawaii. Flugið til baka frá Lihue til San Jose tekur 5 klukkustundir í meðvindi. Finnið hraða þotunnar í kyrru lofti og vindhraðann.
Liz greiddi $160 fyrir 28 miða þegar hún fór með skátahóp á vísindasafnið. Barnamiðar kostuðu $5 og fullorðinsmiðar $9. Hve marga miða af hvorri gerð keypti Liz?
Lyfjafræðingur þarf 20 lítra af saltlausn með 2% styrk. Til eru lausnir með 1% og 5% styrk. Hve marga lítra af lausn með 1% styrk og hve marga af lausn með 5% styrk á að blanda til að fá lausn með 2% styrk?
Setjið verkefnið fram sem ójöfnuhneppi og leysið það.
Andi vill eyða í mesta lagi $50 í hrekkjavökusælgæti. Hún vill kaupa súkkulaðistykki sem kosta $1 hvert og sleikjóa sem kosta $0.50 hvern. Sleikjóarnir eiga að vera að minnsta kosti þrisvar sinnum fleiri en súkkulaðistykkin.
- ⓐ Setjið upp ójöfnuhneppi sem lýsir aðstæðunum.
- ⓑ Teiknið graf hneppisins.
- ⓒ Getur hún keypt 20 súkkulaðistykki og 70 sleikjóa?
- ⓓ Getur hún keypt 15 súkkulaðistykki og 65 sleikjóa?