Inngangur

Yfirlit kaflans
Inngangur
Við höfum séð að gröf línulegra jafna eru beinar línur. Gröf annarra gerða jafna, sem kallast margliðujöfnur, eru ferlar, líkt og útlínur þessarar hengibrúar. Arkitektar nota margliður til að hanna lögun slíkra brúa og teikna uppdrætti þeirra. Verkfræðingar nota margliður til að reikna álagið á stoðir brúarinnar og tryggja að þær beri það álag sem þeim er ætlað. Í þessum kafla kynnið þið ykkur reikniaðgerðir með margliðum og eiginleika þeirra.