44 Tilkoma klassískrar heimspeki
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- Samhengismiðuð nálgun
- nálgun í heimspeki sem túlkar hugmyndir heimspekinga út frá sögulegu og menningarlegu samhengi ritunartímans.
- Raunhyggja
- sú kenning að öll þekking sé leidd með aðleiðslu af skynreynslu.
- Túlkunarfræðileg nálgun
- nálgun í heimspeki sem tekur sögulegt samhengi frumtextans alvarlega en viðurkennir jafnframt áhrif viðfangsefna og sjónarhorna samtímans.
- Lógos
- hugsun Guðs sem, samkvæmt Fíló frá Alexandríu, er sá miðill sem Guð notar til að skapa efnisheiminn.
- Einhyggja
- sú kenning að alheimurinn sé gerður úr einu grunnefni.
- Náttúruspeki
- þau fræðasvið sem síðar gáfu af sér náttúruvísindin.
- Fjölhyggja
- sú kenning að alheimurinn sé gerður úr fleiri en einu grunnefni.
- Samtímamiðuð nálgun
- nálgun í heimspeki sem greinir rökin í heimspekitextum og metur hvort og hvernig þeir eigi enn erindi við samtímann.
- Frummyndakenning
- frumspekileg kenning sem kveður á um að sérhver einstakur hlutur í hinum breytilega efnisheimi eigi hlutdeild í óefnislegri frummynd eða eðli sem sé óbreytanlegt, ósýnilegt og fullkomið og geri hlutinn að því sem hann er.
- Þverstæður Zenons
- þverstæður sem Zenon setti fram til að reyna að sanna að breyting og hreyfing séu tálsýn.