Short Answer
Stutt svör
8.1 Tækni í dag
Þekkir þú fólk sem staðfestir eða gengur gegn þeirri hugmynd að aðgangur að tækni skapi aukin tækifæri? Hvernig birtast tengsl tækninotkunar og tækifæra í reynslu þinni? Eða stangast reynsla þín á við þessa hugmynd?
Ættu stjórnvöld í Bandaríkjunum að bera ábyrgð á því að tryggja öllum borgurum internetaðgang? Eða ber hver einstaklingur ábyrgð á því að afla sér slíks aðgangs?
Hvernig hafa stafrænir miðlar breytt félagslegum samskiptum? Telur þú að þeir hafi styrkt eða veikt mannleg tengsl? Rökstyddu svarið.
Gerðu litla félagsfræðilega rannsókn. Leitaðu að nafni þínu á Google. Hversu miklar upplýsingar um þig eru aðgengilegar almenningi? Hversu mörg fyrirtæki bjóða gegn gjaldi einkaupplýsingar um þig og hvers konar upplýsingar eru það? Taktu saman gögnin og talnaefnið sem þú finnur. Skrifaðu eina eða tvær málsgreinar um þau félagslegu álitaefni og hegðunarmynstur sem þú verður vör við.
8.2 Fjölmiðlar og tækni í samfélaginu
Hvar og með hvaða hætti aflar þú þér frétta? Horfir þú á fréttir í sjónvarpi, lest dagblöð eða leitar frétta á netinu? Hvernig haga foreldrar þínir eða afar og ömmur fréttaöflun sinni? Telur þú máli skipta hvaðan upplýsinga er aflað? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
Telur þú að nýmiðlar geti skapað sameiginlegar stundir sem sameina fólk á sama hátt og sjónvarps- og útvarpsdagskrár gerðu áður? Nefndu dæmi ef svo er.
Hvar tekur þú helst eftir auglýsingum? Hvað fær þig til að veita þeim athygli?
8.3 Hnattræn áhrif fjölmiðla og tækni
Telur þú að tæknin hafi í raun jafnað tækifæri fólks um allan heim? Hvers vegna eða hvers vegna ekki? Rökstyddu svarið með dæmum.
Hvaðan aflar þú þér frétta? Eru fréttamiðlarnir í eigu stórrar fyrirtækjasamsteypu? Kannaðu það með leit á vefnum. Skiptir eignarhald fréttamiðla á þínu svæði þig máli? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
Hvaða aðilar eru líklegastir til að flytja nýsköpun og tækni, svo sem farsímaþjónustu, til Afríku sunnan Sahara: félagasamtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, stjórnvöld eða einkafyrirtæki? Hvers vegna?
8.4 Fræðileg sjónarhorn á fjölmiðla og tækni
Berðu saman hvernig virknihyggja og átakakenning skýra stafræna vöktun.
Með hvaða hætti hefur internetið mótað sýn þína á veruleikann? Skýrðu það út frá sjónarhorni táknrænnar samskiptahyggju.
Lýstu því hvernig netfemínisti gæti brugðist við því að valdamiklar konur í stjórnmálum séu oft gerðar að illmennum í hefðbundnum fjölmiðlum.
Fjölmiðlar hafa í vaxandi mæli fjallað um þreytu flugmanna. Veldu eitt fræðilegt sjónarhorn og skýrðu hvernig það túlkar þetta álitamál.
Telur þú þig vera tæknisinna eða lúddíta? Rökstyddu svarið með dæmum.