22 Tungumál algebrunnar
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- stuðull
- Fastinn sem margfaldar breytuna eða breyturnar í lið nefnist stuðull.
- samsett tala
- Samsett tala er talningartala stærri en 1 sem er ekki frumtala.
- deilanleiki
- Ef talan er margfeldi af segjum við að sé deilanleg með .
- jafna
- Jafna er mynduð úr tveimur stæðum sem tengdar eru með jafnaðarmerki.
- finna gildi
- Að finna gildi algebrustæðu merkir að finna gildi stæðunnar þegar breytunni er skipt út fyrir tiltekna tölu.
- stæður
- Stæða er tala, breyta eða samsetning talna, breyta og reikniaðgerðartákna.
- minnsta sameiginlega margfeldi
- Minnsta talan sem er margfeldi tveggja talna nefnist minnsta sameiginlega margfeldi þeirra, skammstafað MSM.
- samkynja liðir
- Liðir sem annaðhvort eru fastir liðir eða hafa sömu breytur með sömu veldisvísum kallast samkynja liðir.
- margfeldi tölu
- Tala er margfeldi af ef hún er margfeldi talningartölu og .
- frumþáttun
- Frumþáttun tölu er margfeldi frumtalna sem er jafnt tölunni.
- frumtala
- Frumtala er talningartala stærri en 1 sem hefur aðeins þættina 1 og sjálfa sig.
- lausn jöfnu
- Með lausn jöfnu er átt við gildi breytu sem gerir staðhæfinguna sanna þegar það er sett inn fyrir breytuna í jöfnunni. Ferlið við að finna lausn jöfnu nefnist að leysa jöfnuna.
- liður
- Liður er fasti eða margfeldi fasta og einnar eða fleiri breyta.