Inngangur að vísis- og lograföllum

Kaflayfirlit
Inngangur að vísis- og lograföllum
Skoðið einn fersentímetra húðarinnar. Skoðið hann nánar og síðan enn nánar. Ef unnt væri að skoða hann nógu vel sæjust hundruð þúsunda örvera. Þetta eru bakteríur sem finnast ekki aðeins á húðinni heldur einnig í munni, nefi og jafnvel þörmum. Í líkamanum geta verið álíka margar bakteríufrumur og frumur líkamans sjálfs. Það er þó engin ástæða til að hafa áhyggjur. Sumar bakteríur geta valdið sjúkdómum en margar eru gagnlegar og jafnvel líkamanum nauðsynlegar.
Bakteríur fjölga sér oft með ferli sem nefnist tvískipting og felst í því að ein bakteríufruma skiptist í tvær. Við hagstæðar aðstæður geta þær fjölgað sér mjög hratt. Ný kynslóð baktería myndast oft á aðeins nokkrum mínútum eða klukkustundum en ekki á dögum eða árum eins og hjá mönnum og öðrum flóknum lífverum.1
Til einföldunar skulum við gera ráð fyrir að ræktunin hefjist með einni bakteríufrumu sem getur skipt sér á klukkustundar fresti. Tafla 1 sýnir hve margar frumurnar eru í lok hverrar klukkustundar. Ein bakteríufruma hefur myndað rúmlega eitt þúsund bakteríufrumur eftir aðeins tíu klukkustundir. Ef taflan væri framlengd til tuttugu og fjögurra klukkustunda væru frumurnar orðnar fleiri en 16 milljónir.
| Klukkustund | 0 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| Fjöldi baktería | 1 | 2 | 4 | 8 | 16 | 32 | 64 | 128 | 256 | 512 | 1024 |
Í þessum kafla skoðum við vísisföll. Þau má meðal annars nota til að lýsa vaxtarmynstrum eins og fjölgun baktería. Við skoðum einnig lograföll en þau eru nátengd vísisföllum. Báðar fallagerðirnar nýtast víða í raunveruleikanum við líkanagerð og túlkun gagna.
Neðanmálsgreinar
- 1 Todar, PhD, Kenneth. Todar's Online Textbook of Bacteriology. http://textbookofbacteriology.net/growth_3.html.