Eftirspyrja heimili eftir vörum eða bjóða þau þær fram á vörumarkaði? Hvert er hlutverk fyrirtækja á sama markaði? Hvernig skiptast þessi hlutverk á vinnumarkaði og fjármálamarkaði?
15.
Nefndu nokkra þætti sem geta hliðrað eftirspurnarferlinum á vinnumarkaði.
16.
Nefndu nokkra þætti sem geta hliðrað framboðsferlinum á vinnumarkaði.
17.
Hvernig skilgreina hagfræðingar jafnvægi á fjármálamörkuðum?
18.
Hvaða merki gætu bent til skorts á fjármálamörkuðum?
19.
Myndu lög um hámarksvexti auðvelda eða torvelda að bæta úr skorti á fjármálamörkuðum?
20.
Hvað verður um jafnvægisverð og jafnvægismagn á vöru- eða vinnumarkaði í hverju þessara fjögurra tilvika? Eftirspurn eykst, eftirspurn minnkar, framboð eykst eða framboð minnkar.