Upprifjunarspurningar
Upprifjunarspurningar
1.
Nefndu þrjú meginsvið fjármála og skilgreindu hvert þeirra stuttlega.
2.
Nefndu þrjú meginviðfangsefni fjármála fyrirtækja.
3.
Skilgreindu eftirfarandi tegundir áhættu:
- verðbólguáhætta
- dreifanleg áhætta
- ódreifanleg áhætta
- stjórnmálaáhætta
4.
Nefndu þrjá algenga þætti góðrar fjárhagsáætlanagerðar.
5.
Í rammanum Hugtök í framkvæmd í kafla 1.3 er fjallað um mikilvægi gagna við ákvarðanatöku. Greinin bendir á ýmsar leiðir fyrir stjórnendur til að nýta reikningsskil. Nefndu að minnsta kosti þrjár þeirra.
6.
Lýstu hlutverki fjármálasérfræðings hjá fjármálastofnun, til dæmis banka eða fjárfestingarfélagi.
7.
Hvort er líklegra til að vera viðskiptavaki: verðbréfasali eða miðlari? Skilgreindu í svarinu hvað viðskiptavaki gerir.
8.
Hvernig getur skilningur á ör- og þjóðhagfræðilegum þáttum hjálpað litlum fyrirtækjum að taka ákvarðanir?
9.
Við mælum markaðsvirði hlutafélags með því að margfalda fjölda útistandandi hlutabréfa með núverandi verði á hlut. Farðu inn á finance.yahoo.com og finndu markaðsvirði Nike, Tesla og Walmart. Hvert þessara fyrirtækja er með hæsta markaðsvirðið? Hvert þeirra selur mest? Ef það eru ekki sömu fyrirtækin, hvers vegna telur þú að fyrirtækið sem selur minna hafi hærra markaðsvirði?