Hvers vegna skiptir þetta máli?

Kaflayfirlit
Hvers vegna skiptir þetta máli?
COVID-19-faraldurinn sýndi mörgum fjölskyldum og litlum fyrirtækjum hversu mikilvægur fjárhagslegur viðnámsþróttur er. Í einkafjármálum felst hann í því að geta staðist fjárhagslegt áfall, svo sem skyndilegan atvinnumissi eða veruleg óvænt útgjöld, og ná fljótt fótfestu á ný.
Til að efla slíkan viðnámsþrótt ráðleggja ráðgjafar í einkafjármálum fólki að eiga lausar eignir sem samsvara þriggja til sex mánaða framfærslukostnaði, halda skuldum í skefjum og gera áætlun um fjármál heimilisins. Einnig skiptir máli að viðhalda heilbrigðis-, eigna- og líftryggingum, byggja upp trausta lánasögu og fara skynsamlega með kreditkort og lánalínur með veði í húsnæði.
Í fyrirtækjarekstri reynir ekki aðeins á fjárhagslegan viðnámsþrótt í faraldri. Hann skiptir einnig máli þegar árstíðasveiflur ganga yfir eða samdráttur verður í efnahagslífinu. Með góðri stýringu handbærs fjár, viðskiptakrafna og birgða, ásamt hagkvæmri nýtingu viðskiptalána (viðskiptaskulda), getur fyrirtæki staðið undir rekstrinum og greitt skuldir á gjalddaga.
Stýring veltufjár skiptir ekki síður máli þegar vel árar. Aukin eftirspurn og vaxandi hagnaður tryggja ekki að fyrirtæki hafi þegar handbært fé til að greiða reikninga. Því þarf að áætla fjárþörfina fyrir fram, meðal annars með sjóðsáætlun.