Útskýra hvað það þýðir að gildi eða par af gildum sé lausn á jöfnu.
Finna lausnir á jöfnum með því að rökstyðja út frá aðstæðum eða nota algebru.
Hér eru verkefnin sem hjálpuðu þér að ná þessum markmiðum:
1.4.1: Að finna lausn á jöfnu með einni breytu, hluti 1 - Í þessu verkefni byrjaðir þú að ákvarða hvort gildi væri lausn á gefinni jöfnu með einni breytu. Þú greindir líka hvað lausnin gæti þýtt. Til þess að gildi sé lausn á jöfnu verður það að gera jöfnuna sanna.
1.4.2: Að rita jöfnur til að tákna skorður - Í þessu verkefni ritaðir þú jöfnur út frá aðstæðum og skorðum verkefnisins. 1.4.2: Sjálfspróf. 1.4.2: Ítarefni.
1.4.3: Að finna lausn á jöfnu með tveimur breytum - Í þessu verkefni fannst þú lausn á jöfnu með tveimur breytum þegar gildi annarrar breytunnar var gefið. 1.4.3: Sjálfspróf. 1.4.3: Ítarefni.
1.4.4: Að finna lausn á jöfnu með einni breytu, hluti 2 - Í þessu verkefni vannst þú að því að finna fleiri en eina lausn á jöfnum og greindir hvað lausnirnar þýða í aðstæðunum.
Eftir þessi verkefni kláraðir þú þessar æfingar:
1.4.5: Æfingar
Staðan tekin
Hve vel telur þú þig hafa náð námsmarkmiðum þessarar kennslustundar á kvarðanum 1 til 5?
Lausn
Vel ígrundað. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að ígrunda eigin hugsun.